blaðið - 31.01.2006, Qupperneq 10
10 I ERLENDAR FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 bla6Í6
Vopnaöir menn lögðu
undir sig skrifstofur ESB
Grímuklœddir menn lögðu undir sig skrifstofur Evrópusambands-
ins á Gasaströnd til að mótmœla skopmyndum afMúhammeð sem
birst hafa í dagblöðum í Noregi og í Danmörku. Enginn sœrðist í
aðgerðunum.
Paestínumenn kveiktu í norska fánanum fyrir utan skrifstofur Evrópusambandsins á
Gasaströnd f gaer.
Berlusconi
lofar skírlífi
Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra
Ítalíu, hefur lofað
því að láta kynlíf
eiga sig þangað til
að loknum þing-
kosningum í land-
inu sem fram fara
þann 9. apríl næst-
komandi. Berlusconi, sem er tæp-
lega sjötugur og margfaldur millj-
arðamæringur, lýsti þessu yfir á
kosningafundi á Sardiníu. Skömmu
áður en forsætisráðherrann lét þessi
orð falla hafði sjónvarpspredikar-
inn Massimiliano Pusceddu þakkað
honum fyrir skuldbindingar sínar
við fjölskyldugildi og andstöðu við
hjónabönd samkynhneigðra.
„Ég mun reyna að bregðast ykkur
ekki. Ég lofa því að halda mig alger-
lega frá kynlífi næstu tvo og hálfa
máuðinn eða til 9. apríl,“ sagði
Berslusconi. Ekki fylgir sögunni
hvernig Veronica Lario, eiginkona
Berlusconis tók tíðindunum en hún
sést sjaldan opinberlega.
Ekíci er víst hvort Berlusconi
standi við þetta loforð frekar en
mörg önnur, en honum hefur verið
legið á hálsi að efna ekki gefin kosn-
ingaloforð. Þrátt fyrir að Berlusconi
hafi ekki mátt vera að því að efna
loforð sín hefur hann haft nægan
tíma til að hljóðrita tvær geisla-
plötur með ástarlögum frá síðustu
kosningum. ■
Grímuklæddir, vopnaðir menn
lögðu undir sig skrifstofur Evrópu-
sambandsins á Gasaströnd í gær til
að mótmæla birtingu Jótlandspósts-
ins á skopmyndum af Múhammeð
spámanni. Mennirnir kröfðust þess
að dönsk og norsk stjórnvöld bæð-
ust afsökunar og sögðu að ríkisborg-
urum landanna tveggja yrði ekki
hleypt inn á Gasaströnd. Danska
utanríkisráðuneytið hvatti í gær
Dani til að gæta sérstakrar varúðar
í löndum múslima.
Teiknimyndirnar tólf birtust í
Jótlandspóstinum í september og
voru endurbirtar í norska blaðinu
Magazinet á dögunum. Bannað
er að gera teikningar af spámann-
inum samkvæmt íslamstrú af
ótta við að það kunni að leiða til
persónudýrkunar spámannsins.
Teiknimyndunum hefur víða verið
mótmælt og sums staðar hefur fólk
verið hvatt til að sniðganga danskar
vörur. Þá brenndu menn danska fán-
ann á götu úti í tveimur bæjum á
Vesturbakkanum.
Mennirnir réðust inn á skrif-
stofur Evrópusambandsins en yfir-
gáfu þær fáeinum mínútum síðar.
Um 15 grímuklæddir og vopnaðir
menn stóðu fyrir utan og sáu til
þess að enginn kæmist inn. Ekki var
hleypt af skotum og enginn særðist
í aðgerðunum.
Hersveitir píslarvotta A1 Aqsa
moskunnar lýstu yfir ábyrgð á
aðgerðunum.
Silvio Berlusconi
Maður kveikir á kerti fyrir utan sýningar-
höllina í Chorzow.
Þjóðarsorg
í Póllandi
Lech Kaczynski hefur heitið því að
hafa sjálfur umsjón með rannsókn
á tildrögum þess að þak sýningar-
hallar í bænum Chorzow hrundi
um helgina. Hann hét því jafnframt
að slíkt slys myndi ekki endurtaka
sig en 66 manns fórust. Þriggja
daga þjóðarsorg var lýst yfir í land-
inu á sunnudag í kjölfar harmleiks-
ins sem talið er að megi rekja til
snjóþunga á þakinu. Að minnsta
kosti 200 manns voru í höllinni
þegar þakið gaf sig. Að minnsta
kosti 140 slösuðust, þar af margir
útlendingar. ■
Sprenging í
flugeldageymslu
Líbýa lokar sendiráði sínu
Stjórnvöld i Líbýu hafa lýst því yfir
að þau hyggist loka sendiráði sínu
í Kaupmannahöfn i mótmælaskyni.
Sendiherrar nokkurra múslima-
ríkja hafa kvartað undan myndbirt-
ingunum við Anders Fogh Rasmus-
sen, forsætisráðherra Danmerkur
og hótað að sniðganga danskar
vörur. 1 síðustu viku kölluðu Sádí
arabar heim sendiherra sinn í
Kaupmannahöfn. ■
Sextán manns fórust og nærri 40
slösuðust þegar sprenging varð í
flugeldageýmslu í Kína á sunnu-
dag. Þeir sem létust voru að fagna
kínverskum áramótum í grennd
við geymsluna þegar hún sprakk.
1 Peking þurftu á annað hundrað
manns að leita sér aðhlynningar
á slysavarðstofum um helgina og
í borginni Chongqing í suðvestur-
hluta landsins kviknuðu nærri 200
eldar af völdum flugelda. ■
Einstök trjáþyrp-
ing frá júratíma-
bilinu i hættu
Sveppasýkingar hefur orðið vart í einstakri
og afskekktri trjáþyrpingu í Ástralíu. Talið
er að hún hafi borist þangað með óboðnum
gesti.
Eina þyrping sjaldgæfrar trjáteg-
undar, sem hefur verið til frá júra-
tímabilinu, er talin vera í hættu.
Wollemi-furan var talin útdauð
þegar þjóðgarðsvörður gekk fram
á þyrpingu tæplega hundrað trjáa
í afskekktu gili í Wollemi-þjóðgarð-
inum í Ástralíu árið 1994.
Staðsetningu trjánna hefur verið
haldið vandlega leyndri síðan trén
fundust. Fáum er leyft að skoða trén
og er klæðnaður og búnaður þeirra
ætíð sótthreinsaður vandlega til að
koma í veg fyrir sýkingar.
1 nóvember á síðasta ári uppgötv-
aðist afbrigði sveppasýkingar í
tveimur trjánna sem talið er nán-
ast fullvíst að hafi borist með ferða-
manni sem hefur farið þangað í
heimildarleysi.
John Dengate, talsmaður umhverf-
isstofnunar Nýju Suður Wales, segir
að trjáþyrpingunni kunni að stafa
hætta af sýkingunni. „Það veit eng-
inn á þessu stigi hve mikil hættan
er en við tökum þetta mjög alvar-
lega,“ sagði Dengate. Hann sagði að
starfsmenn stofnunarinnar væru
vongóðir um að þeim tækist að eyða
óværunni.
Tegundin ekki í útrýmingarhættu
Þrátt fyrir allt er tegundin ekki talin
Steingervingur af Wollemi-furu. Hún var
lengi vel talin útdauö en fyrir rúmum
áratug fannst trjáþyrping í Wollemi-þjóð-
garðinum í Ástralíu.
í útrýmingarhættu þar sem þús-
undir trjáa hafa verið ræktuð utan
trjáþyrpingarinnar og sum þeirra
seld til almennings.
„Fururnar hafa verið þarna í um
200 milljón ár án utanaðkomandi
áhrifa,“ sagði Dengate og bætti við
að þess hefði verið vandlega gætt að
starfsfólk bæri ekkert með sér inn
í lundinn. „Við skiljum að fólk vilji
sjá trén í sínu eðlilega umhverfi en
þar sem aðeins eru fáeinir tugir eftir
og þau eru afar viðkvæm fyrir sýk-
ingum verðum við að biðja fólk um
að halda sig fjarri," sagði hann. ■