blaðið - 31.01.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 31.01.2006, Blaðsíða 12
12 I WEYTENDUR ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 blaöi6 Jón Páll Leifsson rekstrarstjóri elísabetar. Tryggingar i einn mánuð í senn Hœgt aðfá svipuð kjör annars staðar Bensínverð stendur í stað Verðsviftingar í síðustu viku c ^ Hverjii eru ódýrastir? Samanburður á verði 95 oktana bensíns AD Sprengisandi 109,8 kr. Kópavogsbraut 109,8 kr. Óseyrarbraut 109,8 kr. eGO Óseyrarbraut 109,8 kr. Fellsmúla 109,8 kr. Salarvegi 109,8 kr. <0> Ægissíðu 110,9 kr. Borgartúni 111,2 kr. fönsl Ananaustum 110,9 kr. Gullinbrú 110,7 kr. ORKAN Eiðistorgi 109,7 kr. Klettagörðum 109,7 kr. Skemmuvegi 109,7kr. 03 Mýr1b«nln Amarsmára 109,8 kr. Starengi 109,8 kr. Snorrabraut 109,8 kr. Gylfaflöt 110,7 kr. Bæjarbraut 111,2 kr. Bústaðavegi 110.9 kr. Verð ^95 oktanabensínistendur í stað milli vikna. 1 síðustu viku urðu nokkrar sviftingar í eldsneytisverði þegar það hækk- aði og lækkaði síðan aftur tveimur dögum siðar. Sem íyrr er Orkan með lægsta verð á 95 oktana bensíni 109,7 krónur lítrinn. Næst á eftir koma svo Atlantsolía, Egó og ÓB sem selja bensínlítrann á 109,8 krónur. Hæst er verðið hjá Essó, Olís og Shell en á sumum afgreiðslustöðum þessara félaga er sjálfsafgreiðsluverðið 111,2 krónur lítrinn á 95 oktana bensíni. Hjá Olíufélaginu hækkaði verð á bensíni þann 23. janúar en lækkaði síðan aftur tveimur dögum síðar. Samkvæmt upplýsingum frá Magn- úsi Ásgeirssyni deildarstjóra hjá Essó er ekkert í spilunum í augnablikinu um að frekari brey tingar eigi sér stað en þó er alltaf erfitt að spá um það því slíkt getur gerst með stuttum fyrirvara. „Olíufélögin endurspegla samkeppnina líkt og matvöruversl- anir og það er mikilvægt fyrir okkur að fylgjast með því sem aðrir eru að gera“, segir Magnús. Á heimasíðu Olís kemur fram að Olíuverslun fslands hf sé eitt fjög- urra stórfyrirtækja sem bjóða íslend- ,Fólk getur valið um að fá filmur samdægurs, eftir sólarhring eða eftir þrjá daga“, segir Linda Sigurðar- dóttirstarfsmaðurhjáHansPetersen. „Framköllun á 24 mynda filmu sem afgreidd er samdægurs kostar 1.890 krónur, sé beðið í sólarhring kostar hún 1.490 krónur og 1.390 krónur sé filman sótt að þrem dögum liðnum. Sæki fólk myndirnar samdægurs fylgja þær með á diski.“ Linda segir að verulega hafi dregið úr filmuframköllun og áætlar að fækkunin sé um 30% árlega. „Fólk er í meira mæli komið með staf- rænar myndavélar en kostnaður við að framkalla stafrænar myndir hefur farið lækkandi. Kostnaður við að framkalla 24 myndir á stafrænu formi er 936 krónur. Framköllun stafrænna mynda tekur mun skemri ingum upp á beinar útsendingar frá HM í Þýskalandi í sumar á sjónvarps- stöðinni Sýn. I síðustu viku var und- irritaður samningur þar að lútandi í bústað þýska sendiherrans við Tún- götu. Aðrir styrktaraðilar HM eru tíma en filmuframköllunin og er öll vinnsla ódýrari. Framköllun á einni stafrænni mynd er 39 krónur en kostnaður á hverja mynd á filmu er dýrari. Pixlar ódýrastir Hjá Pixlum kostar 1.390 krónur að framkalla og tekur framköllunin tæpan klukkutíma. „Meirihluta þeirra mynda sem við framköllum eru á stafrænu formi og kostar 28 krónur að framkalla eina mynd á stafrænu formi“, segir Arn- heiður Stefánsdóttir starfsmaður hjá Pixlum. „Það hefur minnkað að fólk sé að framkalla stafrænu myndirnar heima. Þegar við framköllum myndirnar fara þær í gegnum fram- köllunarvökva og þannig verður Landsbankinn, Iceland Express og MasterCard. Allir leikirnir 64 verða sýndir beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. hugrun@bladid.net ending myndanna betri. Pixlar prenta einnig á striga en þannig fær myndin öðruvísi áferð og líkist hún olíumálverki. Tilboð á stafrænni framköllun Egill Ingi Jónsson eigandi Mynd- vals í Mjódd segir hraðframköllun hjá þeim kosta 1.880 en þá fær fólk myndirnar samdægurs. „Sæki fólk myndirnar eftir tvo daga kostar framköllunin 1.580 krónur en fimm daga framköllun er á 1.200 krónur. Stafæn mynd kostar 39 kónur en séu myndirnar 50 eða fleiri er verðið 34 krónur. Núna erum við með tilboð og er verðið 29 krónur á stafræna mynd óháð myndafjölda. h ugrun@bladid. net .Elísabet kemur inn á markaðinn á öðrum forsendum en önnur trygg- ingafélög“, segir Jón Páll Leifsson rekstrarstjóri elísabetar. „Ástæða þess að við getum boðið upp á svona lág tryggingagjöld er sú að yfirbyggingin er lítil og við sam- nýtum hluta þjónustu Elísabetar og Tryggingamiðstöðvarinnar og má þar nefna starfsfólk, bakvinnslu og tjónaþjónustu.“ Jón Páll segir helsta muninn á elísabetu og öðrum tryggingum vera að ekki er nauðsynlegt að binda sig í lengri tíma en fólk þarf ekki að binda sig lengur en í mánuð hjá elísa- betu. „Ef fólk segir upp tryggingum í miðjum mánuði þarf það ekki að greiða út mánuðinn og er laust sam- dægurs og felst ágóðinn í því að vera alltaf laus.“ Jón Páll segir að greiðslufyrirkomulagið sé þægilegt en greiðsla er tekin af kreditkorti og þarf því ekki að fara í bankann og borga reikninginn. Hann segir að þrátt fyrir þetta fyrirkomulag sé gert ráð fyrir því að fólk bindi sig lengur en í tvo mánuði. ,Það er mikið um að fólk vilji nýta sér þennan nýja tryggingamögu- leika segir,“ Jón Páll en vill að öðru leyti ekki tjá sig um hversu margir hafi skráð sig síðan elísabet hóf starf- semi þann 13. janúar síðastliðinn. Á heimasíðu elísabetar má fá upp- lýsingar um verð trygginganna, skil- mála og annað sem skiptir máli. Á síðunni kemur fram að ódýrustu tryggingarnar séu á 3.789 krónur á mánuði. I þessum flokki er miðað við að óhappagjald sé 50 þúsund krónur. Þetta þýðir að lendi við- komandi í tjóni greiðir hann fyrstu 50 þúsund krónurnar. Kaupi Fólk tryggingar fyrir hærri upphæð lækkar óhappagjald niður í 15 þús- und krónur. Kaskótrygging kostar 6.544 krónur á mánuði. „Fyrstu við- brögð fólks er ánægja með að þurfa ekki að vera bundið í heilt ár en markmiðið er einmitt að gera við- skiptavinina ánægða.“ Hægt að velja tímabil Einar Baldvinsson, framkvæmda- stjóri Varðar Islandstryggingar segir viðbót elísabetar óverulega á tryggingamarkaði og segir að hjá Verði sé hægt að velja um mislöng tímabil í tryggingum. „Ef fólk segir upp tryggingum á miðju tímabili fær það afganginn af trygging: unum endurgreiddar." Einar segir að gerðir séu samningar við hvern og einn um upphæð trygginga en meðalverð er um 50 þúsund krónur á ári. Til samanburðar má geta þess að ódýrasta tryggingin hjá elísabetu kostar um 45 þúsund krónur á ári og þar er óhappagjald 50 þúsund krónur. Einar hefur ekki orðið var við að fólk sé að fara frá þeim og gerast áskrifendur af elísabetu en Vörður hefur um 8% af markaði. „Til þægindarauka í greiðslufyrir- komulagi hvetjum við fólk til að nýta sér boðgreiðslur en þá dreifist gjaldið jafnt yfir árið.“ Einar segir að eftir að Vörður kom inn á tryggingamarkaðinn fyrir þremur árum hafi tryggingar lækkað. „Við gerum út á lágar trygg- ingar og við höldum verðinu niðri með því að auglýsa ekki.“ hugrun@bladid.net Stafrœn framköllun ódýrari Islenska verzlunarfélagið flytur í Ogurhvarf 8 Víðidalur ISLENZKA VERZLUNARFÉLA6IÐ Ögurhvarf 8 • 203 Kópavogur • Sími 564 5500 • Fax 564 5555 isv@ isv.is • www.isv.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.