blaðið - 31.01.2006, Qupperneq 15

blaðið - 31.01.2006, Qupperneq 15
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 ÁLITI 15 Íhl! Evrópudómstóllinn og verkalýðshreyfingin Með EES-samningnum seldu Islend- ingar sig með óbeinum hætti undir lögsögu Evrópudómstólsins, sem fer með æðsta dómsvald innan Evrópu- sambandsins. Á þetta var rækilega bent af undirrituðum og öðrum sem beittu sér á Alþingi gegn aðild Islands að evrópska efnahagssvæð- inu. Nú hangir Damoklesarsverð dómstólsins yfir norrænum vinnu- markaði og verkalýðshreyfingu vegna svonefndrar Lavaldeilu sem getur orðið prófmál um hvaða kjara- samningar gildi þegar fyrirtæki flytja starfsmenn milli landa innan EES-svæðisins. Á heimasíðu Starfs- greinasambandsins 18. janúar 2006 má lesa eftirfarandi: „Niðurstaðan er talin geta haft mikla þýðingu fyrir uppbyggingu norrænnar og evrópskrar verkalýðs- hreyfingar í framtíðinni. Það snýst um hvort norrænu stéttarfélögin hafi rétt til þess að krefjast þess að gerðir séu kjarasamningar við þau um störf sem unnin eru á Norður- löndunum og um rétt þeirra til að beita hefðbundnum ogstjórnarskrár- vörðum rétti til aðgerða eða hvort slíkar aðgerðir brjóti gegn reglum um frjálst flæði þjónustu, banni gegn mismunun á grundvelli þjóð- ernis og hvort skipti meira máli og séu rétthærri kjarasamningar sem gerðir eru í upprunalandi fyrirtækis eða því landi sem vinna fer fram í. Hver er heimild verkalýðsfélaga í ESB ríkjum til að grípa til aðgerða gegn félagslegum undirboðum?” I Morgunblaðinu 19. janúar sl. er haft eftir Hágglund framkvæmda- stjóra Norræna bygginga- og tréiðn- aðarsambandsins að ef málið tapast fyrir ESB-dómstólnum myndi “... það í raun þýða að ekki yrði hægt að setja neinar reglur um lágmarkslaun í hverju aðildarríki fyrir sig sem geti ekki leitt til annars en að evrópskur vinnumarkaður muni taka hraðlest til lægstu vinnukjara á evrópska efnahagssvæðinu”. Þannig muni nið- urstaðan hafa afgerandi áhrif á það hvort norræna vinnumarkaðsmód- elið haldi velli. Formsatriði málsins Lettneskt fyrirtæki, Laval un Partn- eri, vann útboð um endurbyggingu skólahúss í Vaxholm í Svíþjóð og ætlaði að nota verkamenn frá heima- landinu sem fyrirtækið sagðist hafa gert kjarasamning við. Byggnad, samband byggingamanna í Svíþjóð, krafðist þess að sænskir kjarasamn- ingar giltu (kollekivaftal) og stöðv- aði framkvæmdir Laval. Lettnesk stjórnvöld sögðu aðgerðir sænskra verkalýðsfélaga stríða gegn ESB- rétti, þær mismuni eftir þjóðerni og hindri auk þess frjálsa för vinnu- afls. Evrópudómstóllinn hefur nú til athugunar hvort sænska Byggnad hafi brotið gegn 49. grein ESB-samn- ingsins um frjáls þjónustuviðskipti. Málið hefur sömu þýðingu á öllu EES-svæðinu og þarmeð fyrir ísland og Noreg. Ríkisstjórn island getur því sent inn álit sitt um mál þetta til dómstólsins fyrir 26. janúar 2006 og skulum ætla að það verði gert. Mikil óvissa um niðurstöðu Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur lýst yfir stuðningi við lettnesku kröfuna með McCreevy kommissar fyrir málefni innri mark- aðarins í fararbroddi og það sama á við um talsmenn hægri meirihlut- ans á Evrópuþinginu. Á móti standa sósíaldemókratar, vinstrisósíalistar og græningjar. Pólitísk viðhorf í ein- stökum ríkjum virðast í aðalatriðum skiptast eftir svipuðum brautum, m.a. i Svíþjóð, þar sem ráðherrar og verkalýðsforingjar tala um uppreisn gegn ESB falli dómurinn Lettlandi í vil. Ekkert verður á þessari stundu fullyrt um niðurstöðu, en hafa ber i huga að dómar Evrópudómstólsins sem snúa að grundvallaratriðum fjórfrelsisins svonefnda hafa oft- ast fallið þeim sjónar- miðum í vil. Evrópudóm- stóllinn er þ e k k t u r fyrir að binda sig ekki við b ó k s t a f ESB-tilskip- ana heldur Hjörleifur Guttorms- túlka út frá son markmiðs- greinum, m.a. um samruna. Því kæmi ekki á óvart að niðurstaðan falli gegn sænsku kröfunni og norræna vel- ferðarmódelinu. Um áhrifniðurstöð- unnar á löggjöf aðildarríkjanna þarf þá ekki að spyrja, þar gildir Rómars- amningurinn ofar öllu. Sumir telja að opinber lágmarkslaun einstakra ríkja þar sem þau eru lögákveðin haldi gegn slíkum dómi. I islenskri löggjöf nr. 55/1980 (sbr. einnig lög nr. 54/2001,3. grein, með nýlegum breyt- ingum skv. lögum nr. 139/2005 um starfsmannaleigur) segir í 1. grein: ‘Laun og önnur starfskjör, sem aðild- arsamtök vinnumarkaðarins semja um, skulu vera lágmarkskjör, óháð kyni, þjóðerni eða ráðningartíma fyrir alla launamenn í viðkomandi starfsgrein ... “. Óvíst er að þetta dugi gegn hugsanlegri niðurstöðu Evrópudómstólsins Lettum í vil. Hér er ekki um opinber lágmarkslaun að ræða, en í löndum þar sem slík laun eru lögákvæðin liggja þau oft langt undir töxtum stéttarfélaga. Verkalýðshreyfingin og ESB-aðild Sem kunnugt er hafa sósialdemó- kratar á Norðurlöndum að meiri- hluta til stutt aðild landa sinna að Evrópusambandinu líkt og Samfylk- ingin gerir eindregið hérlendis. Með slíkri aðild eru menn að afhenda fjöregg sitt ekki aðeins í hendur fjöl- þjóðlegu pólitísku valdi sem hefur að leiðarljósi samruna í átt að ríkis- heild heldur jafnframt erlendu dóms- valdi sem kveður upp dóma sem eru æðri lögum og stjórnarskrár- bundnum ákvæðum einstakra ríkja. EES-samningurinn lýtur að hinu sama, þótt með óbeinum hætti sé að því er varðar dómsvald. Allt ætti þetta að vera íslendingum og ekki sist íslensku launafólki umhugsun- arefni á tímum alþjóðavæðingar þar sem fjölþjóðafyrirtæki og fjármagn ráða för. Hjörleifur Guttormsson http://www.eldhom.is/hjorleifur í Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut Flexor býður upp á alhliða þjónustu sem er sérstaklega ætluð þeim sem finna fyrir óþægindum í baki, mjöðmum, hnjám eða iljum, fá sinadrátt í kálfa, þreytuverk eða pirring í fætur. Stoðtækjafræðingar, sjúkraþjálfarar og annað sérhæft starfsfólk veitir faglega ráðgjöf varðandi val á vörum. Samstarf Flexor við bæklunarlækna og aöra sérfræðinga sem starfa í Orkuhúsinu gerir okkur kleift að veita þér bestu þjónustu sem völ er á. Hjá Flexor færðu: • Göngugreiningu • Stuðningshlífar • Innlegg Hitahlífar Ráðgjöf Armstafi fþróttaskó Gönguskó Barnaskó OSSUR •samz* <2cco' ^asks FLEXOR —X NÆSTA SKREF Suðurlandsbraut 34 • Sími 517 3900 GOTT FÖLK McCANN

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.