blaðið - 31.01.2006, Qupperneq 18

blaðið - 31.01.2006, Qupperneq 18
26 I HEILSA ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 blaöiö SÖLVAS' DARAStS' BMii/Frikki Hollusta úr hafinu Sœlt er að borða sjávarfang Mataræði íslendinga hefur tekið örum breytingum undanfarin ár. Bæði neikvæðum sem jákvæðum. Ein þessara jákvæðu breytinga er aukið framboð á margskonar holl- ustu og lífrænum matvælum. Fyrir skemmstu byrjaði lítið fyr- irtæki að bjóða upp á margskonar nýungar úr sjávarfangi en fyrirtækið heitir Hollusta úr hafinu og er rekið af Eyjólfi Friðgeirssyni líffræðingi. Eyjólfur er fróður um sjávarfang og hefur mikla trú á því sem viðbót í mataræði okkar. „Þetta er hluti af matarmenningu okkar en um leið arfleifð sem við höfum verið að tapa niður. Mér fannst upplagt að ráða bót á því. Sjávarfang er hollur matur; í honum er lítil fita og mikið af steinefnum en svolítið af vítamínum líka. Vinkona mín ein var nýverið á heilsuhæli í Þýskalandi og þar var til dæmis ekki boðið upp á annað en mulinn þara til að salta matinn. Það má vel skipta saltinu út með þara og er mun hollara.“ Ævagömul íslensk/írsk hefð „Sjávargróður hefur verið nýttur um þúsundir ára sem bæði matur, áburður og lyf og notkun hans í matargerð nær aftur á fjórðu öld í Japan og til sjöttu aldar í Kína. Til Islands barst hefðin í upphafi byggðar en kemur samt hvergi við sögu á hinum Norðurlönd- unum þar sem hún kom með for- mæðrum okkar frá írlandi. Þetta finnst mér mjög merkilegt,“ segir Eyjólfur. „Undanfarin ár hefur verið mikil vakning á þessu sviði um hinn vestræna heim og víða mikið að gerast. Sérlega þó í Frakk- landi, Japan og á austur og vest- urströnd Bandaríkjanna." Hvaða vörur býður þú upp á? „Ég er með fjórar teg- undir af þurrkuðum og möluðum þara sem hafa undan- farið verið notaðir heilmikið sem krydd á Næstu Grösum. Svo framleiði ég líka þarasósur, en það er sojasósa sem er krydduð með þör- unum. Hún er alveg frábær. Ég hef verið að gefa Japönum að smakka þetta og þeir eru mjög hrifnir. Þessi sósa er mjög góð með hrásalati, fiski, í pottrétti og súpur og svo framvegis en það má nota hana á margvíslegan hátt.“ Er eitthvað fleira nýtt í vændum? „Núna er ég að undirbúa fram- leiðslu á hökkuðum og frystum stórþara, en hann er alveg frábær í súpur og pottrétti. Um þessar mundir á ég í viðræðum við fyrir- tæki á Snæfellsnesi um að vinna hann fyrir mig og vona að það gangi vel. Svo er ég líka að undir- búa kryddlegin söl og þara, en það er alveg frábær matur líka!“ Hvar er hægt að nálgast vörurnar? „1 heilsuhúsunum, Maður lifandi, Yggdrasil, Fjarðakaupum og Mela- búðinni. Sem sagt öllum helstu heilsuverslunum og svo í Fylgi- fiskum. Stefnan er samt að dreifa þessu víðar,“ segir þessi framtaks- sami líffræðingur að lokum. Um kosti sjávargróðurs má fræð- ast enn frekar á vefsíðunni; www. seaveg.com 1 íslenskum sjávarháttum segir: “Ásamt sölvum og fjörugrösum var marinkjarnitm talinn bestur til manneldis af sœþörungum. Ýmsir fullyrða reyndar að hann sé betri til mann- eldis enfjörugrös. Allir, sem greina frá því, hvernig marinkjarni var matbúinn, gera það mjög á sömu lund. Hann var (þá þurrkaður), afvatnaður í tvö dægur, síðan saxaður smátt sem kál og að því búnu soðinn ímjólkur- blandi, mysu eða vatni. Maukþetta var mjölfest. Reynt var að nota hann í brauð ásamt sölvum. Ef hann er vel saxaður, má nota hann ‘á móti mjöli 3á. Slík brauð þóttu mjög bragðgóð”. margret@bladid.net mn Nagalskóii Professionails Viðurkennt nám þar sem nem- endur út.skrifast með alþjóðlegt diplóma sem gcfur þeim at- vinnumöguleika í yfir 60 löndum. Sveigjanlegt nám sem tekur tillit til mismuuandi náms- liraða nemenda. Orvegum nemendum stört herlendis og erlendis. Innritun allt árið. Heildverslunin Hjölur, sími 588 8300. Nánari upplýsingar á www.profcssionails.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.