blaðið - 31.01.2006, Side 20
28 I TÆKI OG TÓL
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 2006 blaðið
Rafdrifið rúm skekur
veröld Gisla Hattdórs
„Uppáhaldstœkið mitt!“
Gísli Halldór Halldórsson, fjármála-
stjóri Menntaskólans á Isafirði, er
tækjamógúll vikunnar. Hann segir
að erfitt hafi verið að velja sitt uppá-
haldstæki, en á endasprettinum hafi
nýlega keypt rafdrifið rúm sigrað
sjálfvirku kaffivélina með bauna-
malaranum og freyðistútnum.
„Að vísu grét ég mig i svefn fyrsta
kvöldið, yfir verðinu á þessu ferlíki,
en eftir reynslu þeirrar nætur og
annarra sem í kjölfarið fylgdu sé
ég að það er ekkert annað en bylt-
ing í heilbrigðismálum heimilisins.
Skyndilega hvarf öll bakþreyta eins
og dögg fyrir sólu. Auðveldara er að
takast á við flensur ef maður getur
legið í rúminu án þess að þreytast.
Svefn er auðvitað allra meina bót og
því mikils virði að hann sé góður;
hann getur læknað ýmsa krank-
leika, breytt depurð og vonleysi í
gleði og áræðni og skerpt greindina.
Góður svefn getur haft allt um það
að segja hvort upp rennur dagur vel
heppnaðra verka og ánægju fremur
en mistaka og leiðinda.
í þessu rúmi eru að minnsta kosti
Gísli Halldór við rúmið góða
12 mismunandi gerðir af nuddi, en
mér finnst það litlu skipta. Það er
svo sem ágætt að eiga kost á nuddi
og getur hjálpað við afslöppun, en
heilar 12 gerðir rugla mann bara í
ríminu. Annars er ég dauðfeiminn
við að kveikja á nuddinu, því ég bý í
timburhúsi og það leikur allt á reiði-
skjálfi þegar hundruð kílóa rúm fer
að nötra.“
USB-öskubakkinn!
Nema hvað?
Þrátt fyrir að öld tóbaksreyk-
inga muni væntanlega
brátt líða undir lok
má enn finna fjölda
reykingafólks víða
um borg og bæ,
sé vel að gáð.
Reykingafólk
er semsagt
ennþá til og
ef að líkum
lætur má
ætla að eitt-
hvert þeirra
sinni sinum
störfum eða hugðar
efnum á tölvu, oft með sig-
arettu í öðru munnvikinu. Iðnir
vísindamenn nútimans hafa nú
lagt fram frá-
bæra lausn
fyrir þá sem
kjósa að reykja
við heimilis-
tölvuna en eru
hræddir um að reyk
urinn geti
valdið
skaða á viðkvæmum
smárum og
rafrásum
hennar. Hér
er átt við
hinn magn-
þ r u n g n a
USB-ösku-
bakka, en
auk þess
að vera hin
mesta stofu-
prýði kemur hann
í veg fyrir að reykur sigar-
ettunnar fari á flandur um her-
bergið með því að soga hann til
sin með þar til gerðri viftu.
Af lýsingu framleiðandans er
ekki ljóst nákvæmlega hvað USB
tengingin gerir fyrir öskubakkann
góða, en ætla má að vifta hans sé
knúin áfram af rafmagni sem
hún leiðir. Af sömu lýsingu
er erfitt að ráða hvað verður
um reykinn þegar öskubakk-
inn hefur sogað hann til sín,
líklega er þó einhvers konar
síunarbúnað að finna í inn-
viðum hans.
Sem stendur er hægt að fá bakkann í
formi bíls og fótbolta, en fleiri gerðir
munu væntanlegar á markað bráðlega.
Hrekktu gónarann
Og skapaðufrið á heimilinu
~~—waR
Þetta indæla tæki er 6/ \ s
þeim eiginleikum gætt að ^
geta slökkt á nær hvaða sjón-
varpi sem er, svo fremi það
sé móttækilegt fyrir fjarstýr-
ingum. Það er forritað með
209 kóðum til þess að slökkva
á ólíkum gerðum sjónvarpa og
dregur í alít að 17 metra, en er þó
í lyklakippustærð. Þegar kemur að
notagildi tækisins eru möguleik-
arnir nær ótæmandi, enda samfé-
lagið nær gegnsósa af sjónvarps-
Tækið góða er litlu stærra
en lyklakippa!
tækjum sem gaman væri
að fá frið frá endrum
og eins. Einnig
mætti skemmta
sér vel með
það að vopni á
EM í handbolta,
sem og heims-
meistaramótinu í
knattspyrnu. Festa má
kaup á tækinu - og öðrum
slíkum - á vefnum thinkgeek.com.
Framhliðin er meira í ætt
við það það sem tíðkast í
símageiranum
Séð aftan frá líkist
Samsung SCH
B500frekarmynda-
vél en síma
Simi eða myndavél?
Eða hara bœði?
Á sínum tíma þótti talsverð bylting
þegar lítilli stafrænni myndavél
var fyrst komið fyrir í GSM-síma.
Þrátt fyrir að fyrstu kynslóðir þess-
háttar myndavélasíma hafi skilað
óskýrum lággæða myndum, nutu
þeir snemma vinsælda, ekki síst í
kjölfar þess að símafyrirtæki gerðu
notendum sínum kleift að skiptast
á myndum með svonefndri MMS-
tækni. Einkar hentugt þótti að geta
sent mömmu kornótta mynd af nýju
klippingunni eða vinkonunum af
kjól kvöldsins, svo dæmi séu tekin.
Eftir því sem tækninni hefur fleygt
fram hafa myndavélasímarnir orðið
fullkomnari; nú á dögum er jafnvel
hægt að fá slíka sem eru í fáu eftir-
bátar dýrra stafrænna myndavéla.
Og enn batna þeir, því frá kóreska
framleiðandanum Samsung er nú
væntanlegur sími með 7.7 megap-
ixla myndavél. Til samanburðar má
geta þess að dýrustu gerðir mynda-
vélasíma, sem fáanlegir eru nú á
dögum, taka 2 megapixla myndir
- og algengustu símarnir skila mun
lægri upplausn.
Að auki hefur síminn aðdráttar-
linsu (e. „Optical Zoom), fyrirbæri
sem er fá- ef ekki óséð á mynda-
vélasímum nútímans. Myndir í svo
hárri upplausn krefjast eðlilega
mikils geymslupláss, nokkuð sem
Samsung menn hafa leyst með því
að bjóða upp á stuðning við stærri
gerðir minniskorta. Margir hafa
bent á að fásinna sé að tala um þetta
undratæki sem síma með mynda-
vél áfastri, nær væri að segja það
myndavél með áföstum síma. Hins
vegar hefur það alla helstu kosti sem
síma getur prýtt og því má segja
samruna þessara tveggja tóla endan-
lega lokið.
Þess má að lokum geta að síminn
nefnist því fróma nafni Samsung
SCH B500,
Viöskeytid ,,-Pod eykur
enn vinsældir sínar
Göngugrœjan TrekPod kynnt til leiks
Hér má sjá TrekPod
í göngustafsham
Frá því að iPod-vasadiskó þeirra
Apple manna sló í gegn fyrir
nokkrum misserum hefur verið
mjög til siðs hjá framleiðendum
nýrra og spennandi tækja og tóla
að hengja viðskeytið ,,-Pod“ á þau,
líklega til þess að öðlast hlutdeild
í vinsældum spilarans. Nýjasta
græjan til þess að hljóta viðskeytið
fræga er komin ansi langt frá því að
vera vasadiskó, en er engu að síður
mjög áhugaverð. Um er að ræða
göngustaf frá bandaríska fyrirtæk-
inu Trek-Technologies, en hann er
þeim eiginleikum gæddur að geta
skyndilega breyst í myndavélaþrífót
þegar þörf er á. Nefnist kostagripur-
inn TrekPod.
TrekPod hefur notið fádæma
vinsælda meðal göngufólks frá því
hann kom á markað og skyldi engan
undra; þeir sem taka sér langar nátt-
úrugöngur á hendur hafa oftar en
ekki hug á því að festa mikilfeng-
leik umhverfisins á filmu, en erfitt
getur verið að burðast með þrífót
svo dögum skiptir. Stafurinn góði
er aukinheldur búinn til úr hágæða
léttmálmum og vegur aðeins rúm
800 grömm. Má því hæglega sjá
að hér er mikill kostagripur á ferð
sem mun létta göngufólki lífið um
ókomna tið.
...og hér er hann
í þrífóts-ham