blaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 12
12 I ERLENDAR FRÉTTIR
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 blaöÍA
ALLIR AFANGASTAÐIR I EVROPU
FLUG 19.900
KR. + Bókaðu á www.icelandair.is
ÍCELANDAIR
www.icelandair.is
Leiðtogar stjórnmálaarms Hamas-samtakanna á fundi á föstudag þar sem þeir undirbjuggu valdatöku í Palestínu.
- ollir eiga sitt uppáhoíd
v 4,
Hamas-samtökin
taka við stjórn
Palestínu í dag
ísraelsmenn grípa til harðra efnahagsþving-
anna gegn Palestínu í kjölfar valdatökunnar.
Stjórnmálaarmur Hamas-
hreyfingarinnar tekur við
völdum í palestínska þinginu
í dag í kjölfar mikils kosninga-
sigurs samtakanna í síðasta
mánuði.
Hamas-samtökin hafa tilnefnt
Ismail Haniyeh sem forsætisráð-
herraefni og Aziz Dweik sem
þingforseta. Báðir eru taldir til hóf-
semdarmanna innan Hamas, en
samtökin eru talin til hryðjuverka-
samtaka í flestum vestrænum
ríkjum. Leiðtogi þingflokks Hamas
verður hins vegar harðlínumaður-
inn Mahmoud al-Zahar sem hefur
margoft lýst því yfir að leggja beri
Israel í rúst.
ísraeisk stjórnvöld
bregðast hart við
Stjórnvöld í Israel bregðast hart
við valdatöku Hamas-samtakanna.
Fastlega er búist við að á fundi á
sunnudag muni ísraelsstjórn sam-
þykkja harðar efnahagsþvinganir
sem koma til með að lama efna-
hagskerfi Palestínu. Meðal þess
sem ísraelsstjórn mun að öllum lík-
indum samþykkja er ferðabann á
milli Gaza og Vesturbakkans og að
halda eftir því skattfé sem hún inn-
heimtir fyrir palestínsk stjórnvöld.
Auk þess hafa stjórnvöld í Israel
hótað að loka mörkuðum sínum
fyrir palestínskar vörur og banna
umferð þeirra um ísraelskar hafnir.
Ljóst er að þessar ráðstafanir draga
verulega úr möguleikum hinnar
nýju stjórnar Palestínu að ná stefnu-
málum sínum fram. Markmið þess-
ara aðgerða er að einangra Hamas-
samtökin og knýja þau til þess að
samþykkja skilyrði ísraela fyrir
frekari friðarviðræðum við palest-
ínsk stjórnvöld. Þau eru að Hamas
standi við eldri samkomulög milli
þjóðanna tveggja, að samtökin við-
urkenni tilverurétt ísraels og að
þau láti af hryðjuverkastarfsemi.
Sækjast eftir ráðum íTeheran
Viðbrögð ísraela hafa gert að
verkum að Hamas-samtökin hafa
sóst eftir nánari sambandi við
stjórnvöld í Teheran. Þrátt fyrir
að íranar hafi alla tíð stutt við
bakið á Hamas telja margir frétta-
skýrendur enn nánari tengsl sam-
takanna við núverandi valdhafa í
Iran draga úr líkum á því að sam-
ræðuflötur finnist á milli þeirra og
ísraela og að tengslin muni tryggja
að valdasetan dragi ekki úr her-
skárri stefnu samtakanna. Á fundi
Shaul Mofaz, utanríkisráðherra
Israels, og Javier Solana, utanrík-
isstjóra Evrópusambandsins, í gær
kom fram að leiðtogar Hamas hafi
beðið Irani um fjárstuðning og
sóst eftir ráðum um hvaða áherslur
hin nýja ríkisstjórn Palestínu ætti
að setja á oddinn þegar hún tekur
við völdum. Mofaz taldi að þessar
fréttir gæfu til kynna hvers konar
samfélagi Hamas-hreyfingin
hyggst koma á í Palestínu.
Þjónustuver KB banka • 444 7000
Líka opið á
laugardögum!
Þjónustuver KB banka veröur framvegis opið á laugardögum frá kl. 10-16. mmm
Virka daga er opiö frá kl. 8-19. Starfsfólk Þjónustuversins annast alla | K B BANKI
almenna bankaþjónustu í síma 444 7000. mmm
Líklegt að bann
við hvalveiðum
verði afnumið
Líkur eru taldar á því að meirihluti
aðildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins
muni samþykkja tillögur Japana
um að leyfa vísindaveiðar á fúndi
Ráðsins sem haldinn verður á
eyjunni St. Kitts í Karabíska-hafinu i
júnímánuði. Talsmenn alþjóðlegra
Dýraverndunarsamtalea óttast að
Japanir og Norðmenn hafi tryggt sér
stuðning nægilega margra þjóða til
þess að afnema bann við hvalveiðum.
Dýraverndunarsamtök hafa hvatt
rífei, sem hafa til þessa tekið einarða
afstöðu gegn veiðunum, til að beita
áhrifúm sínum á alþjóðavettvangi
°g tryggja sér atkvæði í ráðinu
og koma þar með í veg fýrir að
tillögur Japana nái ffam að ganga.
Áframhaldandi bann við
hvalveiðum var samþykkt með
naumum meirihluta á fúndi ráðsúis
íjúníífyrra. Fráþví hafajapanir
unnið hörðum höndum að því
að fá fleiri ríki á sitt band og hafa
meðal annars verið sakaðir um
að bjóða ríkjum þróunaraðstoð
gegn því skilyrði að þau gangi
í Alþjóðahvalveiðiráðið og veiti
tillögum Japana á þeún vettvangi
brautargengL Ian Campbell,
umhverfisráðherraÁstralfu sem er
yfirlýstur andstæðúigur hvalveiða,
hefúr lýst yfir áhyggjum sínum
vegnaþróunar mála og sagt miklar
líkur á að banninu verði aflétt.