blaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 32
32 I TILVERAN
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 í WaÖÍÖ
Gríman sem reddar öllu...
Ég hef aðeins velt fyrir mér hátterni okkar allra og hlutverka-
skipan þegar á reynir - þessu lífsins leikhúsi sem mannfólkið
tekur ómeðvitað þátt í. Þetta lífsins leikhús er nefnilega svolítið
skondið og óneitanlega kaldhæðnislegt þegar tekið er mið af
okkur þátttakendunum, viðbrögðum okkar, grímunni og því
að „halda alltaf haus - sama hvað á dynur.“ Þetta er nú kannski
ekki mikilsvert umræðuefni, en þó kannski eitthvað sem vert
er að skoða. Við erum nefnilega öll leikarar og það sem meira
er - mörg hver afbragðs leikarar.
Eitt dæmi er mér sérstaklega hugleikið í þessu samhengi. Það
var þannig að vinkona mín varð fyrir þeirri ógæfu að kærast-
inn kvaddi hana eða með öðrum orðum: Hann gaf henni reisu-
passann án nokkurs fyrirvara. Þessi vinkona mín (sem hafði
verið ástfangin upp fyrir haus) kom að máli við mig og þegar
Gott og vel hugsaði ég með mér og furðaði mig á
þessari sterku afstöðu vinkonunnar, auk þess að
horfa til himins og óska þess að fá einhvern daginn
dass af þessum styrk hennar. En það var ekki liðin
vika þegar ég barði á dyr hjá henni og út kom út-
grátin manneskjan, ósofin og með bauga niður á
brjóst. Hún hafði sem sagt ekki tekið þessu eins
stórkostlega vel þegar öllu var á botninn hvolft
- þvert á móti var henni svo mikið niðri fyrir að
ætla mætti að hringja þyrfti á menn í hvítum
sloppum!
Við nánari athugun getum við séð að við
erum öll þátttakendur í leiknum og reynum
eftir fremsta megni að halda haus hvað sem öðru
líður. Enginn má sjá á okkur aumur og síst af öllu
að blikna, töpum fótboltaleik með fullri
reisn, líður „ferlega fínt“ þegar makinn er
farinn frá okkur eða föllum á prófi og er
alveg sama... Eða þar til heim er komið og
örugglega enginn annar en heimiliskött-
urinn verður vitni að volæðinu.
Án þess að ég ætli að hljóma eins og
móðir Theresa þegar hún var og hét
leyfi ég mér að draga fram þennan löst
okkar allra. Kannski höfum við gott af
því að taka stundum niður grímuna,
leiða fólkið í sannleikann um okkur
og hleypa því endrum og eins inn í
skúmaskot sálar okkar...
á mig eins og illa misskilið fífl og sagði: „Hvað meinarðu? Mér viljum við „missa stoltið“ fyrir framan aðra. Þetta \ er skítsama, eiginlega bara ferlega fegin! Ég var búin að ákveða kemur ekki einungis fram í ástarmálunum heldur 1 að þetta væri ekki að ganga hvort sem er!“ flestum sviðum lífsins. Við missum vinnuna án þess ' — Á i | Halldóra Þorsteinsdóttir
HEIMAVÖRN SECURITAS - ÖRYGGISKERFI FYRIR HE EIMILIÐ
Parf hann að vera fullkominn?
Hverjar eru vœntingar þínar til hins kynsins?
„Hvað er þessi glæsilega kona að
gera einsömul?11 er spurning sem
margir velta fyrir sér þegar þeir
sjá flotta konu á lausu. Oft skilur
fólk þetta ekki og hugsar með sér
að viðkomandi hafi hreinilega
engan áhuga á að kynnast manni.
Staðreyndin er hins vegar sú að
flestar vilja konur eignast maka
og margar eyða nokkrum árum í
leit að hinum „eina rétta“. En það
er einmitt málið - margar konur
eru haldnar fullkomnunaráráttu í
þessum efnum og vilja ekkert nema
fullkomið mannsefni.
Spurningin er einfaldlega - ertu að
bíða eftir einhverjum sem er hreini-
lega ekki til?
IVinkona þín vill koma þér
saman við starfsfélaga hennar
sem er víst sérstaklega góður
maður, skemmtilegur og vegnar
vel í starfi. Það er reyndar einn smá
galli; hann er sköllóttur.
a) Oh, það var nú leiðinlegt. En svona
í ljósi þess að maður verður að hafa
opinn huga í þessu þá skelli ég mér
kannski á eitt stefnumót með honum
- maður veit aldrei.
b)Kallarðu það að vera sköllóttur
galla? Ég myndi kannski kalla það
galla ef að maðurinn hefði nýlega
komið úr margra ára fangelsi. Skalli
er ekkert vandamál!
c) Þá verður ekkert úr þessu. Það er
ekki möguleiki á að ég verði hrifin af
manni sem er minni en i,8o, í slæmu
formi og já, án heilbrigðs hárs!
2Fyrsta stefnumótið með
spennandi manni var frá-
bært - þar til kom að „góða
nótt kossinum“ sem var alvarlega
slakur. Hvert er álit þitt á honum?
a)Þetta er ómögulegur maður. Það
ætti að vara mann við svona... Næsti!
b)Það er allt í lagi. Það er margt mik-
ilvægara en kossahæfni manna, eins
og...eins og... ég veit ekki. Hlýt að
fínna upp á einhverju...
c) Heyrðu - þetta er æðislegur maður
og hann kemur mér til að hlæja. Það
að kyssa vel er bara eitthvað sem
hann lærir, algjört aukaatriði núna.
3Ef þú lítur til baka, hvernig
myndirðu lýsaþínum fyrrver-
andi sem særði þig og braut
hjarta þitt?
a) Alveg dæmigerður gæi. Algjörlega
• eins og aUir sem ég hef verið með
-baraverri.
b)Fullkominn, á pappírunum
allavega...
c) Ekkert sérstaklega góður, en maður
lendir auðvitað í einu slíku um ævina
í það minnsta. Ég er bara mannleg og
þetta hlaut að koma fyrir mig líka.
Það er föstudagskvöld og þú
getur valið um að eyða kvöld-
inu ein heima eða samþykkja
annað stefnumót með manni sem
þú efast um að sé þín týpa. Hvað
gerirðu?
a) Heldur þig heima með DVD-mynd
og nýtur þess vel.
b) Það skiptir ekki máli hvaða
ákvörðun þú tekur - eyðir hvort sem
er kvöldinu í að óska að þú hefðir gert
hitt!
c) Þú ferð á stefnumótið. Það er ekk-
ert að því að gefa mönnum annað tæki-
færi, eðajafnvelþriðja...
5Hvað af eftirtöldu á best við
þig varðandi hitt kynið?
a) „Ég er bara að skemmta mér með
því að fara á stefnumót og það er bara
gaman að kyssa nokkra froska áður
en ég fínn prinsinn!“
b),„Prinsinn á hvíta hestinum er
þarna úti og ég sætti mig þá ekki við
neitt minna!“
c)„Maðurinn mun líta dagsins ljós
þegar ég á sist von á, en á meðan
treysti ég bara innsæi mínu!“
6Hversu mikinn tíma þarftu
með manni til að fá tilfinn-
ingu fyrir því hvort þið eigið
framtíð saman?
a) 5 mínútur geta dugað.
b)5 vikur geta auðveldlega mótað hjá
manni shka ást.
c) 5 ár - örugglega ekki minna.
Sérðu mikið af spennandi
mönnum þegar þú labbar
inn á skemmtistað eða á
önnur mannamót þar sem mikið
eraffólki?
a)Enga! Það er lítið til af ásættan-
legum mönnum þarna úti.
b)Það eru alltaf einhverjir, en svo
bara kemur í ljós við hverja maður
talar.
c) Það er sko yfirleitt allt vaðandi í
mönnum - nóg til af þeim hér á landi
skal ég segja ykkur!
8Ef þú sérð fyrir þér komandi
kærasta, má hann vera „hald-
inn nokkrum göllum" eða er
þaðafogfrá?
a) Enga galla, takk! Afhverju ekki bara
að finna þá einhvern sem er betri?!
b) Það er enginn fullkominn og því er
úr vegi að vonast til að eignast kærasta
sem enga galla hefur.
c)Jú, það má alveg vera eitthvað
minniháttar en enga stóra galla samt
sem áður...
1. a) 2 stig b) 4 stig c) 1 stig
2. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
3. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig
4. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
5. a) 4 stig b) 1 stig c) 2 stig
6. a) 4 stig b) 2 stig c) 1 stig
7. a) 1 stig b) 2 stig c) 4 stig
8. a) 1 stig b) 4 stig c) 2 stig
0-9 stig:
Það er óhætt að segja að þú sért ein af
þeim sem bíður eftir þessum fullkomna.
Það þýðir Iftið að reyna að gefa mönn-
um tækifæri enda stendur þú f þeirri trú
að flestir séu þeir þér ósamboðnir. En
þó svo að gott sé að gera kröfur til hins
kynsins og velja maka við hæfi getur
verið hættulegt að gera kröfur úr hófi
fram. Eitt máttu vita - það er enginn
fuilkominnl Ef þú stendur í þeirri trú að
þessi fullkomni leynist þarna eínhvers
staðar ertu á miklum viíligötum, það er
ekkert öðruvisi. Reyndu nú að slaka á
kröfunum og gefðu sjálfri þér og öðrum
tækifæri - þú veist aldrei hvað getur
komið út úr þvf að sleppa aðeins takinu
á fullkomnunaráráttunni!
10-20 stig:
Flestar einhleypar konur eru eflaust
svipaðar og þú. Þið gerið ákveðnar kröf-
ur en getið þó hugsað ykkur að veita
öðrum en frambærilegustu prinsum
tækifæri. Manneskja sem hagar sfnum
málum á þennan háttinn ber þess merki
að vera metnaðarfull og umhugað um
eigið Iff, án þess þó að setja sig á stall
ofar öllum öðrum. Þetta er bara hið
besta mál...l
21-32 stig:
Það er ekki mikið sem þú setur fyrir þig
þegar kemur að samskiptum og pörun
við hitt kynið. Efiaust komast ansi marg-
ír inn i huga þinn og vafalaust fleiri en
eiga þar heima. An þess að það eigi að
hljóma fáránlega verður þó að benda
þér á að leggja aðeins meiri metnað
i val á hinu kyninu. Auðvitað er ekki
átt við að margir séu þær lægri, heldur
bara það að við erum öll misjöfn og
alls ekki allir sem henta þér. Skoðaðu
málin þvi aðeins betur og ekki taka það
næsta sem býðst!