blaðið - 18.02.2006, Blaðsíða 30
30 I VIÐTAL
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 blaóiö
Harður og óvœginn heimur
Össur Skarphéðinsson, þingmaður
Samíylkingarinnar, er nýkominn
úr leiðangri til eins fátækasta ríkis
Afríku, Togo, þar sem samtökin
Spes eru að byggja heimili fyrir
foreldralaus börn.
að fyrirtækin hafi móralska skyldu
til að láta hluta af hagnaði sinum
renna til mannúðarmála. Þeir hafa
tekið mér afburða vel. Það má segja
að þetta sé íslensk útrás á sviði mann-
úðar og hjálparstarfs."
„Ég er barnakarl. Mér fannst svo
merkilegt að íslendingar skyldu hafa
frumkvæði að því að byggja barna-
heimili niður í svörtustu Afríku fyrir
munaðarlaus börn að ég sagði strax
já þegar Njörður P. Njarðvík, sem
er einn frumkvöðlanna, bað mig að
ganga í Spes. Þegar hann bað mig
síðan að verða fyrsti formaður Is-
landsdeildarinnar tók ég því í byrjun
víðsfjarri. Það réði úrslitum að ég
. hafði sótt lífshamingju mina að veru-
legu leyti á barnaheimili í annarri
álfu, þar sem ég eignaðist tvær dásam-
legar dætur. Ég komst að þeirri niður-
stöðu að ég stæði í skuld. Ég er með
vissum hætti að greiða hana með því
að verja töluverðu af tíma mínum í
þetta starf,“ segir Össur þegar hann
er spurður af hverju hann er farinn
að snúa sér að hjálparstarfi í Afríku.
„Starfið hefur gengið vel. íslenskum
stórfyrirtækjum hefur vegnað ótrú-
lega vel í útrás á síðustu árum, þau
hafa hagnast mikið, og það er útbreitt
viðhorf hjá forystumönnum þeirra
Hvernig var að hitta börnin í fyrsta
sinn?
„Ég gleymi líklega aldrei tilfinning-
unni sem greip mig þegar ég kom
inn á barnaheimilið okkar í Togo og
horfði yfir barnaskarann sem stóð
syngjandi á flötinni. Þótt ég væri að-
komumaður fannst mér eins og ég
bæri ríka ábyrgð á þeim. En svo setti
að mér svolitinn beyg: Hvernig reiðir
þeim af þegar þau fara úr öruggu
skjóli okkar í Spes? Götur Afríku
eru harður og óvæginn heimur. Ég
velti því fyrir mér hvernig hægt væri
að tryggja framtíð þeirra þegar þau
hætta að vera börn og eru ekki lengur
í umsjá okkar.“
Ruddaleg nýlendustefna
Hvað kom þér mest á óvart í þessari
heimsókn?
„Örbirgðin. Ég hélt ekki að til væri
svona mikil fátækt í heiminum.
Nema þá þar sem hamfarir eða stríð
hafa geisað. Ég kom að nóttu en þegar
ég vaknaði um morguninn og gekk
Kornung móðir í Lóme, höf uðborg Togo, með stálpað bam á baki fyrir framan heimili
sitt. Konur eiga erfitt líf f Tógó, margar verða þungaðar kornungar og skortur á heilbrigð-
isþjónustu veldur þvf að dánartíðni ungra mæðra er há.
um hverfið sá ég hálfnakin börn,
götur sem voru slóðar ofan á rauðu
rykinu úr Sahara eyðimörkinni og
hús sem voru hreysi. Fyrst hélt ég að
hreysin væru einungis í hverfinu þar
sem ég bjó. Svo komst ég að því að
Lóme, sem er milljón manna borg, er
nánast eintóm hreysabyggð. 1 glugg-
unum eru aldrei önnur ljós á kvöldin
en blaktandi sprittlampar eða kerti.
Það eru heldur engin götuljós í Lóme.
Sorpið er ótrúlegt, stórir haugar af
rotnandi úrgangi. Fyrir framan bú-
stað okkar var gamalt sjávarlón, eins
konar safnþró þar sem menn losuðu
úrgang sem safnaðist síðan saman
við útfallið. Þar stóðu menn síðan í
mið læri i eðjunni og reyndu að fleyta
mesta sorpinu upp á bakkana. Ég
hugsaði með mér: Hvað gerist ef hér
brýst út faraldur af einhverju tagi?“
Á hverju lifir þá fólk við svona
aðstœður?
„Það er örbirgð í Togo en menn
svelta ekki. Það vex allt vel og hratt
sem stungið er niður í jörðina. Menn
lifa af jarðargróða og það virðist vera
nóg af honum. Mér fannst athyglis-
vert að þrátt fyrir mikla fátækt sér
maður færri betlara en á götum Par-
isar eða á Austurvelli. Þarna ganga
menn heldur ekki með hangandi
haus þrátt fyrir örbirgð heldur ríkir
líf og fjör, músík, drynjandi trumbu-
sláttur og dans, og það er ævintýri lík-
ast að vera á mörkuðunum sem iða
af lífi. Atvinnuleysið er hins vegar
gríðarlegt og hálf þjóðin er ólæs. Heil-
brigðiskerfið er í molum. í hverfisskól-
anum sem krakkarnir okkar ganga í
eru 80-100 nemendur í bekk og þar
er ekkert rafmagn. Landið er nánast
án nokkurra auðlinda, fyrir utan jarð-
veginn. Ekkert fjármagn er í landinu
Aida Lóa Leifsdóttir.
I höfufiborginni Lóme nær markaðurinn yfir margar götur og þar iðar allt af lífi. Tógóska moldin er frjósöm, og heldur lifi i fátækri þjóð.
Á markaðnum eru það konurnar sem sjá um að selja uppskeruna
BlaSII/Frikki
Vaxtalaus greiðslukjör í allt að 24 mánuði
(visa/euro) Engin útborgun
Sjóntækjafræðingur með réttindi til
sjónmælinga og linsumælinga
í bláu húsunum við Faxafen Sími:568 1800