blaðið - 18.02.2006, Síða 16

blaðið - 18.02.2006, Síða 16
16 I ERLENDAR FRÉTTIR LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 blaóið ALLIR ÁFANGASTAÐIR í EVRÓPU FLUG Q Qflf) ICELANDAIR 1 w • w \J\J KR. .+ Bókaðu á www.icelandair.iswww.icelandair.is Fangar reka sjónvarpsstöð Fangar í Felicina-fangelsinu í bænum Saluzzo í norðurhluta Italíu hafa rekið sjónvarpsstöð sem aðeins næst innan fangelsisveggjanna frá því í janúar. Á sjónvarpsstöðinni segja þeir innlendar og erlendar fréttir, fjalla um lífið í fangelsinu, ný lög og breytingar á réttarkerfinu svo nokkuð sé nefnt. Þegar því verður komið við lesa tveir albanskir fangar og tveir Marokkóbúar fréttir á sínum eigin tungumálum en meira en helmingur af 355 vistmönnum fangelsisins eru útlendingar, aðal- lega ólöglegir innflytjendur. „Þetta var gert að frumkvæði þeirra sjálfra. Eg veitti þeim aðeins svolitla aðstoð," sagði fangavörður- inn Antonio Santillo. „1 upphafi var ég frekar vantrúaður á þetta en síðan áttaði ég mig á þvi hversu mik- inn áhuga þeir höfðu á verkefninu," sagði Santillo sem vann áður við sjónvarp. Alls koma 11 fangar að dagskrár- gerðinni og keyptu þeir ljós og annan útbúnað að hluta til fyrir eigið fé. Afgangur fjárins fékkst með styrk frá bæjarstjórninni. Eykur samskipti fanga ,Áður horfðu menn aðeins á heimsku- legar kvikmyndir og raunveruleika- þætti. Mjög fáir lásu dagblöð. Þessu verkefni er ætlað að auka samskipti milli fanga og hjálpa þeim að brjótast úr þeirri einangrun sem við búum Fangi f Felicina-fangelsinu f Saluzzo á (talíu les fréttir í myndveri sjónvarps- stöðvar sem starfrækt er innan fangelsisveggjanna. við,“ sagði Pancrazio Chiruzzi sem hefur eytt síðustu 30 árum í fangelsinu fyrir nokkur bankarán. „Við gerum þetta einnig sjálfra okkar vegna, til að sýna að við getum gert meira en að fremja glæpi. Svona nokkuð heldur okkur á lífi,“ sagði hann og bætti við að í fangaklefa koðnaði maður niður í að- gerðaleysi og það væri engu líkara en maður væri lífvana. Gíslatakan var svið- sett fyrir sjónvarpið Stjórnvöld í Mexíkó viðurkenndu fyrr í vikunni að hafa sviðsett frelsun gísla frá mannræningjum á síðasta ári til að þóknast fjölmiðlamönnum. Frelsun gíslanna var sýnd í sjón- varpi 9. desember á síðasta ári. Á sjónvarpsmyndunum sjást vopnaðir lögreglumenn ryðjast inn á bænda- b ý 1 i í dögun, yfir- buga Helgar - sprengja Komdu dag lýkur morgun HÚSASMIÐIAN Bkkert mól Ruben Aguilar, talsmaður forsetaembætt- isins í Mexíkó. fjóra meinta mannræningja og frelsa þrjá gísla. Stjórnvöld höfðu notað myndirnar til að sýna fram að þau hefðu betur í stríðinu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Fyrr í vikunni viður- kenndi Ruben Aguilar, talsmaður forsetaemb- ættisins, að mynd- irnar hefðu verið svið- settar og sagði að um mistök hefði verið að ræða. Þó að stjórnvöld hafi viðurkennt mis- tök sín reyna þau jafn- framt að skella skuld- nni á fjölmiðlamenn sem þau segja að hafi beðið lögreglu um að sviðsetja handtökur sem hafi átt sér stað fáeinum klukkustundum fyrr. „Það eina sem við reyndum að gera var að þjóna ykkur, fjölmiðl- unum,“ sagði Daniel Cabeza de Vaca, lögfræðilegur ráðgjafi stjórnvalda, á fundi með fréttamönnum. „Einnig vildum við sýna almenningi að til sé stofnun sem starfi í þágu hans og skili árangri með því að handtaka glæpamenn,“ sagði hann. Hneyksli fyrir fjölmiðla Uppljóstrunin þykir einnig vera hneyksli fyrir tvær helstu sjónvarps- stöðvar landsins sem báðar sýndu myndirnar. Starfsmenn þeirra mynduðu ekki aðeins áhlaupið á bóndabýlið sem er fyrir sunnan Mexíkóborg heldur eltu þeir þung- vopnaða lögreglumenn inn og otuðu hljóðnemum að andlitum mannræn- ingjanna og gísla þeirra. Uppljóstrunin hefur einnig vakið upp spurningar um áreiðanleika annarra viðburða sem sagðir hafa verið sýndir í beinni útsendingu svo sem frelsun Cruz Azul, þjálfara mexíkósks knattspyrnuliðs á síð- asta ári. Televisa, stærsta sjónvarpsfyr- irtæki landsins, hefur rekið frétta- manninn sem gerði fréttina um bændabýlið. Talsmenn Azteca-sjónvarpsstöðv- arinnar halda því aftur á móti fram að þeir hafi fengið ábendingu frá lögreglu snemma morguns og þeir hafi aðeins sent fréttamann og kvik- myndatökulið á staðinn. Kvartaði og var handtekinn Þýskur fíkniefnaneytandi hefur verið kærður af yfirvöldum í bænum Darmstadt í Þýskalandi fyrir að hafa kannabisefni undir höndum. Aðdragandi málsins var að Hans Júrgen Bendt fór til lögreglu til þess að kvarta undan fíkniefnasalanum sínum, en Bendt sakaði hann um að hafa selt sér lélega vöru og um að sýna algjört metnaðarleysi í gæða- málum. Áður hafði Bendt krafist án árangurs að fíkniefnasalinn endur- greiddi þær 30 þúsund krónur sem hann hefði greitt fyrir lélega eitrið. Lögreglan brást ekki við kvörtun Bendts en handtók hann hins vegar fyrir vörslu fíkniefna. Njósnir í Svíþjóð? MbL.is | Sænskur dómstóll úr- skurðaði í gær mann í gæsluvarðhald sem grunaður er um njósnir. Maðurinn heitir Andreij Zamíatnín og er Rússi. Zamíatnín mun sitja í gæsluvarð- haldi fram til 3. mars næstkomandi, en þá verða saksóknarar annaðhvort að leggja fram ákæru á hendur honum eða óska eftir framlengdu varðhaldi. Leynilögreglan í Svíþjóð greindi frá handtökunni en sagðist ekki geta gefið frekari upplýsingar um málið vegna þagnarskyldu. Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartaskjúklinga HjartaHeill sími 552 5744 Gfró- og kreditkortþjónusta Tveir stuðningsmenn Kizza Besigye, forsetaframbjóðanda í Úganda, voru skotnir til bana á kosningafundi í höfuðborginni Kampala á miðvikudag. Þrátt fyrir að Besigye njóti mikils stuðnings f Norður-Úganda er núverandi forseta Yoweri Museveni spáð sigri í kosningunum. Museveni spáð sigri í Uganda Ibúar í Oganda ganga til þing- og forsetakosninga þann 23. febrúar næstkomandi og eru þetta fyrstu fjölflokkakosningar í landinu síðan Yoweri Museveni, forseti, hrifsaði völdin árið 1986. Þó að þetta sé mik- ilvægur áfangi í sögu landsins telja sérfræðingar að Museveni muni freista þess að halda völdum hvað sem það kostar. Þjóðþing Úganda samþykkti stjórnarskrárbreytingu á síðasta ári sem gerir Museveni kleift að bjóða sig fram til þriðja kjörtímabilsins. Helsti keppi- nautur Musevenis er fyrrum sam- herji hans Kizza Besigye sem hefur verið helsti leiðtogi stjórnarand- stöðunnar á undanförnum árum. Það þykir spilla fyrir sigurlíkum Be- sigyes að hann hefur verið ákærður fyrir ýmsa glæpi svo sem nauðgun og föðurlandssvik. Stuðningsmenn hans telja að um upplognar ákærur sé að ræða sem sprottnar eru af pól- itískum hvötum. Besigye vinsæll í Norður-Úganda Museveni er spáð sigri í kosning- unum þrátt fyrir að Besigye virðist njóta vinsælda í Kampala og fleiri borgum landsins. Besigye nýtur mests stuðnings í norðurhluta landsins þar sem fólk er orðið lang- þreytt á átökum og óvissu sem þar hefur geisað. 1 Norður Úganda hafa 1,6 millj- ónir manna þurft að yfirgefa heim- ili sín í einhverjum grimmilegustu átökum í Afríku á síðari árum. íbúar í Norður-Úganda segja að Museveni, sem er frá suðurhluta landsins, hafi mistekist að binda enda á átökin. Mótframbjóðendur hans hafa aftur á móti lofað því að binda enda á óöldina. íbúar í þessum landshluta búa við þrengsli og stöðugan ótta við árásir hermanna Andspyrnuhers Drottins sem eru alræmdir fyrir grimmd. Andspyrnuherinn, sem segist vilja stjórna landinu í anda boðorðanna tíu, hefur staðið að ránum á börnum, fjöldamorðum á saklausum borgurum og limlestingum.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.