blaðið - 18.02.2006, Síða 23
blaöið LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006
ERLENDAR FRÉTTIR I 23
mér betur en læknisfræðin.“
Einhverjir myndu segja að þetta
vceru gjörólík störf lœknisstarfið
væri hugsjónastarf en starf viðskipta-
frœðings snertist um peninga.
„Ég hef aldrei hugsað beinlínis
þannig um starf mitt. Ég hefði lagt
sama metnað í hvaða starf sem er,
hvort sem væri læknisfræði eða við-
skiptafræði. Það skiptir mig öllu
máli að vinna vel.“
Þér hefur gengið einstaklega vel.
Hverju þakkarðu þessa velgengni?
„Hún byggist á tvennu. Annars
vegar því að velja gott fólk með sér
og hins vegar á óbilandi metnaði."
Þú ert metnaðargjarn?
„Já, eiginlega fram úr hófi.“
Ertufrekur?
„Ég viðurkenni að ég er ekki alveg
laus við að vera það.“
Viðurkenningar skipta máli
Þú hefur hlotið alls kyns viðurkenn-
ingar vegna starfa þinna íþágu Acta-
vis. Hversu miklu máli skipta þessar
viðurkenningar þig?
„Þær skipta mig töluverðu máli.
Það er ekki sjálfgefið að eftir því
sé tekið þegar vel gengur. Það er
gaman þegar maður sér árangur og
einnig þegar aðrir sjá árangur af því
sem maður hefur byggt upp með
starfsfólki sínu.“
Hvernig stjórnandi ertu?
„Hjá Actavis leitum við að ákveð-
inni tegund af fólki og vissum
eiginleikum. Ég legg mikið kapp
á að finna kraftmikið fólk sem er
óhrætt við að fara ótroðnar slóðir
og leggur hjarta sitt og sál í verk-
efnið. Það skiptir í raun oft meira
máli hvaða eiginleikum einstak-
lingur er gæddur heldur en hvaða
menntun eða reynslu viðkomandi
hefur. Þegar maður er með góðan
einstakling í höndunum sem
skortir reynslu eða menntun, þá er
maður tilbúinn að taka tillit til þess
að það tekur viðkomandi lengri
tíma að komast inn í starfið en ella.
Maður er tilbúinn að sýna þennan
sveigjanleika af því maður veit að
viðkomandi einstaklingur verður
framúrskarandi starfsmaður eftir
ákveðinn tíma. Skipulag Actavis
er einfalt og er stöðugt aðlagað að
stefnu félagsins. Því eru breytingar
stöðugar og í raun fastur liður í dag-
legu starfi hvers og eins. Þess vegna
leita ég að fólki sem leggur meira
upp úr viðfangsefninu og árangr-
inum heldur en stöðu eða titlum.
Lykillinn að örum en öguðum
vexti er kraftmikill andi eða fyrir-
tækjamenning. Við viljum að fólk
sé metnaðargjarnt, sýni frumkvæði
og eigi auðvelt með að vinna í hóp.
í hörðu samkeppnisumhverfi eins
og við lifum og hrærumst í er erf-
itt að stýra skútunni með boðum
og bönnum. Stefnan þarf að vera
algerlega skýr auk þess sem þarf að
skapa löngun eða þrá eftir árangri
meðal starfsmanna þeirra sem með
þér starfa og leysa þannig nýja orku
úr læðingi. Fólk lætur til sín taka
en býður ekki eftir því að einhver
annar leysi verkefnið. Hver og einn
lítur á það sem hluta af starfinu að
stuðla að vexti og árangri fyrirtæk-
isins. Ég legg mikið upp úr að fólk
sýni hvort öðru gagnkvæma virð-
ingu. Þetta er lykilatriði enda ferlið
frá þróun vöru þar til að varan
kemur á markað samhangandi og
því öll störf innan fyrirtækisins
jafn mikilvæg. Þetta er kjarninn
í starfsmannastefnunni. Ég geri
miklar kröfur en ég geri líka heil-
miklar kröfur til sjálfs mín, og ekki
minni en til starfsmanna minna.
Skoðun mín er reyndar sú að yfir-
menn eru aldrei sterkari en það fólk
sem starfar hjá þeim.“
Áttu auðvelt með að rekafólk?
„Það er aldrei auðvelt að segja
upp starfsfólki en því miður er það
stundum nauðsynlegt. Þannig er
það bara.“
Tek mig ekki of alvarlega
Heldurðu að það geti skapað vanda-
mál að eiga of mikið af peningum?
„Ég held að það fari eftir því
hvernig fólk fer með peninga. Mín
skoðun er sú að þó maður taki
starfið sitt alvarlega er mikilvægt
að taka sjálfan sig ekki of alvarlega.
Það er mikilvægt að telja sig ekki
vera kominn nokkrum skrefum ofar
jörðinni bara við það eitt að eiga
aura. Hvað sjálfan mig varðar þá er
ég auðvitað fjársterkari í dag en ég
var. En ég hef haldið jarðsamband-
inu og það skiptir öllu máli.“
Gerirðu eitthvað markvisst í því að
einangra þigekkifrá venjulegu lífi og
venjulegufólki?
„Ég þarf ekki að gera neitt slíkt.
Ég lifi bara venjulegu lífi með venju-
legu fólki.“
Ég býst við að þú farir nokkuð oft á
milli landa. Geta þessar ferðir ekki
verið lýjandi?
„Oft ferðast ég þrjá til fimm
daga á viku og stoppa einn til tvo
daga í hverju landi. Þá vakna ég
klukkan fimm til að ná flugvél og
þarf stundum að fljúga þrjú flug,
ná einum til tveimur fundum og
vakna svo um sexleytið daginn eftir.
Kannski eru einhverjir sem öfunda
mann af þessum ferðum en sann-
leikurinn er sá að ég sé yfirleitt fátt
annað á þessum ferðalögum en hót-
elið og fundarsalinn. Þetta er mikil
keyrsla.
Ferðalögin taka vissulega tíma
frá fjölskyldulífi en ég á mjög skiln-
ingsríka konu. Annars myndi þetta
aldrei ganga. Hún heitir Sigríður Ýr
og er læknir og við eigum tvö börn,
sjö ára stelpu og fjögurra ára strák.
Það væri mjög auðvelt að koma heim
eftir strangan vinnudag eða erfitt
ferðalag og kveikja á sjónvarpinu og
hlamma sér niður til að horfa á fót-
bolta en það geri ég yfirleitt aldrei.
Ég veit að ég þarf að hlúa að börn-
unum og þar sem fjarvistir mínar
eru miklar þá reyni ég að gera mitt
besta þegar ég er heima.“
Eruð þið hjónin lík?
„Nei, við erum töluvert ólík þó
við eigum vissulega margt sameig-
inlegt. Hún tekur öllu með jafnaðar-
geði og er sú sem heldur í skálmina
þegar ég er kominn hálfur út úr dyr-
unum. Hún er mjög traust og sam-
viskusöm og er sú sem mest mæðir
á þegar ég er í ferðalögunum enda
sjálf í mjög krefjandi starfi. Ég er
gríðarlegur keppnismaður en eng-
inn skaphundur. Þegar maður rekur
fyrirtæki af metnaði og er í harðri
samkeppni þá er mikilvægt að vera
í jafnvægi, sérstaklega þegar vanda-
mál koma upp. Annars getur maður
ekki leyst vandamálin og kemur
ekki auga á tækifærin.“
Mikilvæg ögun
Hefurðu ekki þurft að aga þig íþessu
starfi?
„Eg hef þurft að aga mig í skipu-
lögðum vinnubrögðum. Vinnudagur
minn er langur og á hverjum degi
þarf ég að ljúka við ákveðin verk-
efni. Þá get ég ekki velt því fyrir mér
hvort svefninn verði mikill eða lítill,
eða ferðalögin stutt eða löng. Ég get
ekki alltaf leyft mér að gera það sem
mig langar til. Verkefnin eru þarna
og það þýðir ekkert að koma sér
undan þeim. Þennan aga innprent-
aði ég í sjálfan mig fyrir mörgum
árun síðan og án hans hefði ég ekki
náð árangri. Hann er orðinn hluti af
mér. Ég væri hins vegar ekki í þessu
starfi nema vegna þess að ég hef
gaman af því. Ef ég hefði það ekki
þá gæti ég þetta ekki.“
Stendurðu stundum frammi fyrir
vandamálum sem þú getur ekki
leyst?
„Þetta er í raun spurning um hug-
arfar. Ég hugsa allt í lausnum. í
mínum huga er ekki til neitt sem
heitir óleysanlegur vandi. Þegar
kemur að starfinu er þetta fyrst og
fremst verkefni sem þarf að leysa.
Það er hægt að greiða úr flestum
vandamálum sem koma upp á
vinnustað. Bestu stjórnendurnir
að mínu mati eru þeir sem þekkja
sjálfa sig vel og þau áhrif sem þeir
hafa á fólk í kringum sig. Gott and-
legt jafnvægi er lykilatriði svo mat
á aðstæðum sé markvisst og raun-
hæft því það mat mótar viðbrögð
og aðgerðir hverju sinni. Erfiðustu
vandamálin eru þau sem koma
upp utan vinnu, til dæmis veikindi
fjölskyldu eða vina. í öllum aðalat-
riðum hef ég átt gott líf.“
Hver heldurðu að sé tilgangurinn
með lífinu?
„Ég er tiltölulega jarðbundinn
maður og trúi því að við eigum bara
þetta eina líf. Þess vegna er mikil-
vægt að fara vel með það og vinna
sem mest og best úr því. Ég trúi
því líka að menn skapi sér eigin vel-
gengni. Ég lít á velgengni einungis
út frá einu sjónarmiði; því að fólki
líði vel. Sumt fólk lítur svo á að til
þess að lifa góðu lífi þurfi það að
standa í kapphlaupi um að eignast
þetta eða hitt. Ég hef oft séð að fólk
sem á nánast ekki neitt lifa frábæru
lífi. Ég held að ríkt fólk sé allavega
ekki hamingjusamara en þeir sem
hafa minna milli handanna.“
kolbrun@vbl.is
er rétti tíminn fyrir TÍMPDlt
Febrúartilboð á Tempur heilsudýnum og stillanlegum rúmum
_ j . ífe-? >v'v -•;•-
Að sofa er eitt, að hvílast er annað.
í febrúar bjóðum við Tempur heilsudýnur,
stillanleg rúm og kodda á frábæru tilboði.
Yfir 30 þúsund læknar, sjúkraþjálfarar og
kírópraktorar um heim allan mæla með
Tempur. Með Tempur heilsudýnunni nærðu
hámarksslökun, hvíld og svefni sem er lykillinn
að góðri andlegri og líkamlegri heilsu.
EINA DYNAN OG KODDINN SEM
VIÐURKENND ERU AF NASA OG
SKJALFEST AF GEIMFERÐA-
STOFNUN BANDARÍKJANNA ♦
t
TEMPUR® EFNI
Betra
BAK
Faxafeni 5 • Reykjavík • Sími 588 8477 • betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
Opib virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-16