blaðið - 18.02.2006, Page 36
36 I BÍLAR
LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 blaöiö
Sandspyrna á Serklandi
Porsche kynnti á dögunum
nýja útgáfu af lúxusjeppanum
Cayenne í grennd við borgina
Dubai á Arabíuskaga. Andrés
Magnússon brá sér suður til
Serklands til þess að reyna
hvernig Porsche Cayenne Turbo
S reyndist jöfnum höndum í
hraðbrautarakstri og eyðimerk-
urtorfæru og var ekki ónægður
með frammistöðu þessa nýja
flaggskips Porsche.
Það er 30 stiga hiti í skugga og loftið
brakar af þurrki. Ástandið skánar í
kvöld eftir að sól er sest, en í nótt
fer hitastigið niður í vel þolanlegar
19 gráður. Það er hávetur í Dubai.
Þýski bílaframleiðandinn Por-
sche er að kynna nýja útgáfu af
Porsche Cayenne, Turbo S nánar
tiltekið, og af því tilefni hefur
hann stefnt fjölda blaðamanna
til Sameinuðu arabísku furstadæ-
manna til þess að sýna bílinn við
erfiðar aðstæður í eyðimörkinni
þar syðra. Fölastir allra í hópnum
erum við íslendingarnir tveir, en
samt reynist landið okkur ekki
alveg jafnframandi og ætla mætti.
Furstadæmið Dubai er á hraðri leið
inn í nútímann í krafti nær óskilj-
anlegs ríkidæmis, sem olíuauðlind-
irnar hafa fært landinu. Hvarvetna
má sjá gamla tímann og hinn nýja
mætast og það gerist án teljanlegra
árekstra.
Það má glögglega sjá auðlegðina
á því hvernig allt flýtur í vatni og
gróðri í borginni, en í Dubai er
vatnið dýrara en bensínið. Bók-
staflega. En um leið og borginni
sleppir tekur eyðimörkin við. Hún
er ekki fullkomin auðn, hér og þar
má sjá hríslur á stangli, og ýmis
dýr ná að þrauka í sandbörðu víð-
erninu. Maðurinn gerir sig líka æ
heimakomnari þar, einstaklega
gott vegakerfi hraðbrauta og mal-
bikaðra vega hefur verið lagt um
landið þvert og endilangt og víðast
vatnsleiðslur meðfram. Þannig var
hótelið okkar, Bab al Shams, byggt
líkt og virki í miðri eyðimörkinni.
Ekki öldungis framandi
Þjóðarfuglinn þar líkt og hér er
fálkinn, en fálkaveiðar eru vinsæl
íþrótt. Og þeir vita sínu viti um
fálkana, því þegar ég sagði fálkat-
emjara hótelsins frá því að ég væri
íslendingur sperrti hann eyrun og
spurði hvort ég gæti bjargað sér
um íslandsfálka eða egg. Þar eru
þeir konungsgersemi. Þó fursta-
dæmin séu að mörgu leyti afskap-
lega framandi sér íslendingurinn
ýmis líkindi önnur en þjóðarfugl-
inn ef grannt er skoðað. Fólkið
tekur dyggan þátt í lífsgæðakapp-
hlaupinu góða og er mjög nýjunga-
gjarnt og framfarasinnað. Áhugi á
skógrækt er ekki minni þar en hér
og miðað við allar áveiturnar átti
ég allt eins von á því að fá spurn-
ingar um Flóaveituna. Eins tók
maður þegar eftir því að jeppaeign
íslendinga er ekki einsdæmi, eins
og sumir hafa viljað halda fram,
þar syðra er hún ekki minni, en
samt eru innfæddir engir sérstakir
áhugamenn um torfæruakstur.
Sem raunar er eilítið skrýtið í ljósi
þess að eyðimörkin er kjörlendi
til slíkra ævintýra og menn þurfa
ekki að fara nema fimm mínútur
út úr bænum til þess að geta slett
ærlega úr hjólbörðunum.
Einmitt til þess vorum við
komnir til Dubai, til þess að láta
reyna á nýjustu útgáfu Cayenne frá
Porsche, en sá lúxusjeppi hefur ein-
mitt notið verulegra vinsælda hér
heima. Þetta voru engir venjulegir
Cayenne jeppar, heldur Turbo S út-
gáfan, sem er tvímælalaust flagg-
skipið í flotanum.
Það er í sjálfu sér ekki að sjá
utan á bílnum, að hann sé nokkuð
breyttur. Fínleg hönnunin er
nánast alveg óbreytt og þetta er
sem fyrr rennilegasti jeppinn á
markaðnum. Sem er kannski ekki
skrýtið í ljósi þess að þetta er ekki
jeppi í venjulegum skilningi. Por-
sche Cayenne er nefnilega sportbíll.
Það vill bara svo til að sá sportbíll
er líka jeppi. Útlitið er þess vegna
eilítið villandi og það á líka við
innanstokks í farþegarýminu, því
maður dregur strax ályktanir af
hægindunum og hönnuninni. En
undir húddinu er vel hamið, öskr-
andi villidýr og eins og við fengum
að reyna má nýta það til fullnustu.
Siðfágað skrímsli
Vélin er 4,5 lítra V8 vél eins og
vant er, en það er búið að eiga við
forþjöppuna og millikælana með
þeirri afleiðingu að bíllinn skilar
521 hestafli, sem er 71 hestafli betur
en fyrri Turbo-útgáfan áorkaði. Og
það munar um það, enda er þetta
kraftmesti bíllinn frá Porsche ef
Carrera GT er undanskilinn. Ef
maður stígur bensíngjöfina í botn
rýkur hann úr kyrrstöðu upp í
hundraðið á aðeins 5,2 sekúndum.
Sams konar hröðun á sér stað í
akstri, því hann fer úr 80 km/klst.
í 120 á nánast sama tíma. Það
munar um minna í framúrakstri.
Við reyndum þetta skrímsli fyrst á
hraðbrautunum í Dubai og gátum
boðið hverjum sem er byrginn.
Það segir kannski sína sögu að 140-
60 km hraði er „eðlilegur“ sunnu-
dagsbíltúrshraði á þessum bíl og
HPI HELtFIRE, NÝR 3 HESTAFLA
4X4 KAPPAKSTURSTRUKKUR
Tómstundahúsið»Nethyl 2 ♦ S. 587 0600 • www.tomstundahusid
Dubai - vin í eyðimörkinni
Þó furstadæmin séu múslimaríki er
frjálsræði þar meira en gengur og ger-
ist í arabaheiminum og endaþótt þau
séu ekki lýðræðisríki í venjulegum
skilningi - furstarnir ráða öllu sem
þeir vilja ráða - eru lýðréttindi samt
veruleg og alþýða manna sátt við
sinn hag, enda sér olíuauðlegðin til
þess að efnalega þurfa fáir ef nokkrir
að kvarta. Kvenréttindi eru með því
mesta sem þekkist á Arabíuskaga,
konur sitja í ríkisstjórn og geta farið
úr húsi án þess að hafa karlfylgdar-
mann með sér. Infæddar konur eru
flestar í svörtum búningi, en þær
hylja fæstar andlitið og margar hafa
klaufina svo háa að engum dylst að
þær eru í rándýrum tískufatnaði
innan undir. Þorri landsmanna er
af erlendum uppruna enda hefur átt
sér stað ótrúleg uppbygging í land-
inu á undanförnum áratugum, en
valdhafarnir vilja gera furstadæmin
og þó sérstaklega Dubai að tækni- og
verslunarhöfuðborg arabaheimsins.
Dubai er vinsæl ferðamannaborg,
margir koma þangað í viðskiptaer-
indum, en ekki færri koma til þess
að njóta veðráttunnar og slaka á.
Það er í sjálfu sér ekki margt að sjá
í Dubai, en þar eru sumir bestu golf-
vellir í heimi, þar má finna mörg af
bestu hótelum og veitingastöðum
í heimi og afar margir gera sér ferð
til Dubai beinlínis til þess að versla.
Landið allt er ein allsherjar fríhöfn,
öll vara er tollfrjáls og ber ekki
virðisaukaskatt.
Dubai er sérkennileg blanda af
arabísku þorpi og vestrænni heims-
borg. Hvarvetna blasa við furður
byggingarlistarinnar, þar sem
keppt er í glæsileika og verkffæði-
legum undrum. Þess á milli má svo
sjá frekar hversdagsleg og lágreist
einingahús, sem mörg minna á
suðvesturríki Bandaríkjanna, enda
er veðráttan ekki ósvipuð. Eins og
fyrr segir eru flestir landsmanna
af erlendu bergi brotnir og þar ægir
öllu saman, breskum sérfræðingum,
indverskum viðskiptaséníum, þjón-
ustufólki frá Filippseyjum og verka-
mönnum frá Afríku og sagt er að í
Dubai séu fleiri rússneskar vændis-
konur en í Moskvu.
Furstadæmin voru flest bresk
verndarsvæði fram á sjöunda áratug-
inn og það eimir enn eftir af nýlendu-
tímanum á ýmsum sviðum. Allir tala
ensku enda er það enn hálfopinbert
tungumál. Það er auðvelt að komast
til Dubai, þangað er vfða flogið, en
ferðin frá helstu borgum Norður-
Evrópu tekur um 5 til 6 tíma.