blaðið - 18.02.2006, Page 37

blaðið - 18.02.2006, Page 37
blaðið LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2006 BÍLAR I 37 það er ekki fyrr en í 180 sem maður fer að taka eftir hraðanum og aka af meiri kostgæfni. Það var enginn vandi að halda honum á 240 km hraða, en mikið hraðar vildum við ekki fara af virðingu fyrir löggæsl- unni. Uppgefinn hámarkshraði er 270 km/klst. en hann kemst hraðar. Það var kannski það, sem maður fann helst fyrir með öll þessi hest- öfl á sínum snærum, það var alltaf nóg eftir. En í Dubai vita þeir að það getur verið gaman að kitla pinnann og þess vegna hafa þeir sett upp hraða- hindranir hér og þar, býsna harka- legar. Þá kom það í góðar þarfir að í þessari nýju útfærslu er búið að stækka bremsudiskana talsvert og það er enginn vandi að votta það, að bremsukerfið virkar stórvel. En síðan er fjöðrunin líka nógu fín til þess að bruna bara yfir hindran- irnar án þess að nýrun gefi eftir. Sandöldur klifnar Gamanið minnkaði ekki þegar út í eyðimörkina var komið. Áður en við lögðum í hann gerðum við eins og góðum fjallamönnum sæmir og hleyptum ögn úr dekkjunum. Sem veitti sjálfsagt ekki af, því Porsche-menn voru svo trúaðir á fararskjótana að við vorum látnir leggja í hann á venjulegum hrað- brautardekkjum! Það er engan veg- inn eins að aka í sandi og snjó, en reynsla af íslenskum vetrarakstri kom samt sem áður í góðar þarfir. Lögmálin eru flest hin sömu, eini stórvægilegi munurinn er að sand- urinn þjappast nær ekkert, því það er enginn raki til staðar. Það er engu líkt að aka um sand- öldurnar. Sums staðar voru troðn- ingar, en það var samt ekki mikið á þeim að byggja. Sandurinn er afar laus í sér og mjög púðurkenndur, þannig að menn þurfa að notfæra sér þyngdaraflið til hins ýtrasta, fara gætilega niður halla, ná upp skriði á jafnsléttu, botna skrímslið upp á sandhryggina (þá koma hest- öflin 521 sér vel!) og hægja ferðina um leið og komið er upp. Það er ekki sama hvar menn stansa, því það er hægur leikur að grafa sig niður en ekki jafnauðvelt upp úr að komast. Þetta gekk samt allt eftir og við komumst hjálparlaust í gegnum torfærurnar allar. Þegar gefið er í í auðnunum þyrl- ast sandur og ryk upp þannig að skyggnið getur orðið nær ekkert á köflum, en við þessar aðstæður verða menn að hafa augun hjá sér. Steikjandi eyðimerkursólin hefur líka sín áhrif, ekki síst þegar ekið er um á gljáfægðum svörtum eð- alvagni. Porsche-mennirnir vildu ekki leyfa mér að spæla egg á húddinu, en ég er ekki í nokkrum vafa um að það hefði verið hægðar- leikur. Þá kom miðstöðin sér vel, því við héldum jöfnum 19° hita allan tímann, en um leið og maður steig út var sem gengið væri á hita- vegg. Við þekkjum það á köldum vetrarmorgnum, að gott getur verið að ræsa bílinn nokkrum mín- útum áður en lagt er í hann svo hitastigið sé aðeins þægilegra. Þar syðra drepa menn hins vegar ekki á þeim nema í skugga eða bílskýli, annars er ólíft þegar aftur er lagt af stað. Ofursportbíll Eins og fyrr sagði er Porsche Cay- enne fyrst og fremst sportbíll, en það kom á óvart hvað hann var lið- tækur í torfærunni og það á götu- dekkjum. Það var sama hvernig við þjösnuðumst á bílnum upp eða niður brattar sandöldur, aldrei kom hik á bílinn þó okkur bílstjórunum hafi stundum varla verið um sel. Sjálfskiptingin og drifkerfið var látið um að meta hvar og hvernig aflsins væri þörf, aðeins einu sinni hrófluðum við við drifinu til þess að komast upp úr lausasandi og gekk eins og í sögu. Þrátt fyrir þægindin um borð í Cayenne voru það slæptir og ryk- ugir ferðalangar, sem örkuðu inn á hótel eftir dagsferð í eyðimörkinni. Stóðst Porsche Cayenne Turbo S prófraunina? Hvort hann gerði. Aflið allt var beislað eins og best varð á kosið, en án þess að gefinn væri eftir þumlungur í kröfum um ýtrustu hægindi og aðbúnað. Og þá er bara að safna. Eyðimörkin er ein allsherjar torfæra og það er ekki Iftið gaman að sprauta sandi f eðalvagna eins og Porsche Cayenne Turbo S The leading British magazine Car came in the January 2006 to the same condusion as so many other judging panels: THE COMPETITORS FOR THE 2005 CAR OF THE YEAR: ALFA ROMEO 159 LEXUSRX400H JAGUARXJD RANGE ROVER SPORT HONDA CMC BMW 3-SERIES SUZUKISWIF RENAULT CLIO TOYOTA AYGO MERCEDES BENZ SCLASS >5 iBÍLLA ÁRSINS $ SUZUKI ...er lífsstíll! SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17. Sími 568 5100. www. suzu kibilar. is Suzuki Swift er bíll sem hefur sett ný viðmið i hönnun, útliti og aksturseiginleikum fólksbila og hefur fengið fádæma góðar viðtökur um allan heim. Suzuki Swift var valinn biil ársins á islandi 2006 af BIBB samtökum íslenskra bílablaðamanna. Suzuki Swift var einnig valinn „Car of the Year" 2005 af virtasta bílablaði Bretlands „Car magazine". Hann var valinn bill ársins á frlandi, Nýja-Sjálandi, Astralfu, Kina, Malasíu og Japan. f Japan fékk Suzuki Swift Ifka „most fun special special achievement award" og „Design award of the year".

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.