blaðið

Ulloq

blaðið - 24.02.2006, Qupperneq 10

blaðið - 24.02.2006, Qupperneq 10
10 I EELErjrmH FRÉTTTK Bónus * Hagkaup • World Class • Hreyfing • Hreís Reuters Rannsóknarlögreglumaður við peningageymsluna ITonbridge í Kent í gær þar sem stórt rán var framið á þriðjudagskvöld. Ræningjarnir höfðu að minnsta kosti 25 milljónir punda upp úr krafsinu. Hugsanlega stærsta rán í sögu Bretlands Breska lögreglan leitaði í gær manna sem rændu að minnsta kosti 25 millj- ónum punda (tæpum þremur millj- örðum ísl. kr.) úr peningageymslum í Tonbridge í Kent á þriðjudagskvöld. Lögregla segir að ránið hafi verið þaulskipulagt en mennirnir sem voru dulbúnir sem lögreglumenn rændu framkvæmdastjóra öryggis- gæslunnar og fjölskyldu hans til að komast inn í geymslurnar. í geymslunum voru geymdir pen- ingar fyrir Englandsbanka og sögðu fulltrúar bankans á miðvikudag að fjárhæðin sem stolið var næmi að minnsta kosti 25 milljónum punda. Óstaðfestar fregnir herma að hún kunni að nema allt að 44 milljónum punda (rúmlega 5 milljarða ísl. kr.). Ef satt reynist er ránið það lang- stærsta í sögu landsins. Bankastjóri Englandsbanka fór í kjölfar ráns- ins fram á endurskoðun á öryggis- málum bankans. Talsmaður bank- ans sagði í gær að öryggisfyrirtækið hefði þegar endurgreitt 25 milljónir punda og myndi inna af hendi frek- ari greiðslur um leið og ljóst væri hve miklu hefði verið stolið. Framkvæmdastjóra ör- yggisgæslu rænt Ræningjarnir stöðvuðu bíl fram- kvæmdastjórans á þriðjudagskvöld. Maðurinn hélt að mennirnir væru raunverulegir lögreglumenn og fór því með þeim í bíl þeirra þar sem hann var handjárnaður. Ræningj- arnir hótuðu honum að fjölskyldu hans yrði gert mein ef hann hjálpaði þeim ekki. Tveir ræningjar sem einnig voru dulbúnir sem lögreglumenn námu á sama tíma konu og son fram- kvæmdastjórans á brott. Sex menn sem sumir voru vopnaðir ógnuðu og kefluðu starfsfólk peningageymslunnar, komu peningunum fyrir í flutn- ingabíl og óku á brott snemma á miðvikudagsmorgni. Hollusta í hverjum bital FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 blaöiö íranar heita stjórn Hamas stuðningi Ali Larijani, þjóðaröryggisráðgjafi ír- ans, hét því á miðvikudag að útvega palestínskum yfirvöldum undir for- sæti Hamas-samtakanna fjárstuðn- ing. „Við munum án nokkurs vafa aðstoða þessa stjórn fjárhagslega til að hún geti staðist harðneskju Bandaríkjamanna,“ sagði Larijani eftir fund hans og Khaled Meshal, háttsetts leiðtoga í Hamas-samtök- unum, í Teheran á miðvikudag. Larijani skýrði ekki frá því í smá- atriðum hvernig staðið yrði að að- stoðinni eða hversu mikil hún yrði. Hamas-samtökin sem unnu sigur í þingkosningum í síðasta mánuði komust að samkomulagi um stjórn- armyndunarviðræður við Fatah- hreyfinguna á miðvikudag. Israelsmenn hafa hætt mánað- arlegum tolla- og skattgreiðslum til Palestínumanna sem nema 50 milljónum Bandaríkjadala. Þetta hefur leitt til tekjuhalla sem nemur 110 milljónum Bandaríkjadala á mánuði. Bandaríkjamenn og ísraels- menn halda því fram að íranar leggi þegar sitt af mörkum til fjármögn- unar Hamas-samtakanna en því neita stjórnvöld í íran. Sádí-Arabar halda áfram fjárstuðningi Stjórnvöld í Sádí-Arabíu lýstu því NATO verður árum saman í Afganistan ast A1 Qaeda samtökunum hafa haldið uppi mótstöðu. Gauthier sagði að uppbyggingar- starf hersveita NATO í suðurhluta Afganistans á næstu mánuðum væri stærsta verkefni bandalags- ins í mörg ár og jafnvel áratugi enda ætti þjóðin við mikil vanda- mál að stríða. Andófsmaður látinn laus Kínverski blaðamaðurinn, Yu Dongyue, var látinn laus úr fangelsi í Kína á miðvikudag eítir að hafa setið inni í nærri 17 ár fyrir að hafa slett málningu á mynd af Maó formanni í mótmælunum á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Yu og tveir vinir hans köstuðu eggjum fylltum af rauðri máln- ingu á fræga mynd af af Maó sem stendur við inngang að Forboðnu borginni á torginu. Fjölskylda Yu hefur áhyggjur af geðheilsu hans eftir fangelsisdvölina. Bróðir hans Yu Xiyue sem heimsótti hann í fangelsið á síðasta ári segir að hann hafi ekki þekkt sig og samtökin Frétta- menn án landamæra segja að hann hafi tapað geðheilsunni vegna pyntinga í fangelsinu. Auglýsingadeild 510-3744 blaðid= Michel Gauthier, yfirmaður kan- adískra friðargæslusveita í Afgan- istan, sagði að hersveitir á vegum Atlantshafsbandalagsins (NATO) verði í landinu árum saman í viðtali við breska dagblaðið The Guardian á miðvikudag. Hermönnum á vegum alþjóð- legra öryggis- og friðargæslusveita mun fjölga um 6000 á næstu mán- uðum og verða alls 16.000 í suður- hluta landsins. Þar hafa fram að þessu um 20.000 hermenn undir stjórn Bandaríkjamanna leitt bar- áttuna gegn uppreisnarmönnum. Friðargæsluliðarnir munu meðal annars sjá um uppbygging- arstarf og berjast gegn eiturlyfja- verslun í Helmand-héraði þar sem Talibanar og vígamenn sem tengj- ENN MEIRI AFSLATTUR: 500,1000,2000 OG 3000 KR SLÁR. Ótrúleg verð Komdu og nýttu þér þetta einstaka tækifæri. Sissa Tískuhús Glæsibæ Opið 10-18.00 virka daga og laugardaga 10-16.00 Sími 5625110 Fagralund við Furugrund Kópavogi Námskeið hefjast 8. mars Skráning í síma 891 7190 Kennari: Sigríður Guðjohnsen Rope Yoga kennari www.sigga.is Aziz Dweik, forseti þings Paiestínumanna, kemur af fundi með Ahmed Qurie, fráfar- andi forsætisráðherra Palestínumanna, I borginni Ramallah á Vesturbakkanum í gær. Fatah-hreyfingin féllst á að hefja viðræður um stjórnarmyndun við Hamas-samtökin á miðvikudag. yfir á miðvikudag að þau væru ófús til að hætta fjárhagsstuðningi til Hamas-samtakanna eins og Bandaríkjamenn hafa farið fram á. Fjárstuðningur Sádí-Araba til palest- ínskrayfirvaldanemuri5 milljónum dala á mánuði. Prins Saud al-Fai- sal, utanríkisráðherra Sádí-Arabíu, sagði eftir fund hans og Condole- ezzu Rice, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, að það yrði kaldhæðið að bregðast Palestínumönnum á sama tíma og þeir vildu koma á friði og þyrftu á aðstoð að halda. Á þriðjudag höfnuðu stjórnvöld í Egyptalandi beiðni um að hætta stuðningi við Palestinumenn. Bandarískir embættismenn segjast hafa rætt málið við fulltrúa fleiri ar- abaríkja og fengið svipuð svör.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.