blaðið - 24.02.2006, Qupperneq 32
32 I MEWNIWG
FÖSTUDAGUR 24. FEBRÚAR 2006 blaöiö
109 SU DOKU talnaþrautir
í síðustu viku voru Ullarvett-
lingar Myndlistarakademíu
íslands afhentir tilgerðarlausum
íslenskum myndlistarmanni.
Viðurkenningunni er ætlað að
beina augum þjóðarinnar að því
nauðsynlega afli sem myndlistin
er á þroskabraut hverrar þjóðar
og gildi hennar í fortíð, nútíð og
framtíð.
Verðugur handhafi Ullarvettling-
anna árið 2006 er Sigríður Björg
Sigurðardóttir. Hún hefur getið sér
gott orð fyrir myndlist sína bæði
á íslandi og erlendis. Sigríður býr
og starfar í Glasgow í Skotlandi,
þar sem hún stundaði framhalds-
nám eftir útskrift frá Listaháskóla
íslands.
í ávarpi Benedikts Gestssonar
stjórnarformanns Myndlistar-
akademíunnar sagði hann meðal
annars
„Það sem gerði útslagið að Sigga
Björg varð verðugur Ullarvettlinga-
hafi er eftirfarandi: „Nefnilega
Benedikt Gestsson afhendir Sigríði Björgu Sigurðardóttur verðlaunin.
myndefnið og hvar hún sýndi
myndir sínar; í Gallerí Dvergi á
Grundarstíg 21. Allt var þar eins og
nútímabaðstofuloftogþeirsemskoð-
Falinn fjársjóður!
Þjóðminjasafn íslands á Sainanófl
Föstudaginn 24. febrúar ki. 19 > 24
Allt kvöldiö
Hver er hvað og hvað er hvurs? Gestir búa til myndatexta
við gamlar Ijósmyndir
Opnunartími:
Alla daga nema
mánudaga kl. 11-17
www.thjodminjasafn.is
Suðurgötu 41
101 Reykjavík
Sími: 530 2200
WÓDMINJASAFN ISIANDS
National Museum of Iceland
uðu sýninguna máttu vera kýttir og
beygðir (saga þessarar þjóðar í ell-
efuhundruð ár) og skoða sig sjálfa í
spegli sem öskraði á þá að rétta úr
sér með þeim óskilgreindu forynjum
ímyndunaraflsins sem hafa mótað
hugmyndaheim þjóðarinnar fram
að tilkomu sjónvarpsins og vídeó-
tækni, sem Sigga Björg hefur einnig
notað til að miðla hugmyndaheimi
sínum. Þar mætast fortíð og nútíð.
Hinar óstaðfærðu fígúrur sem teikn-
aðar eru á pappírinn, eins og klipptar
út úr hugarfari þjóðsögunnar, fullar
að boðskap um ógnvekjandi tilvist
handan hins skilgreinda heims,
hvort heldur póstmodernískur eða
búandkarlalegur, segja okkur að
við erum hér; ennþá að miklu leyti
í torfkofanum, og líka í forjsárver-
öld þeirra sem byggja túlkun sína
á einkaveröld markaðssetningar-
innar. Þannig verður til sterk teng-
ing þess mögulega og hins ómögu-
lega, þess sem var og þess sem er.
Þannig verður til list sem afhjúpar
og særir um leið og hún heimtar
að fyrirframgefnar skilgreiningar
séu bull, (eins og þessi sem hér er
viðhöfð), en um leið samt gluggi að
okka eigin sjálfi.“
Draumsæi og
náttúrufar
Ný sýning í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar opnar á Vetrarhátíð
í Reykjavík. Sýningin er hugsuð
sem samræður milh þriggja ólíkra
efnisforma og þar verða tré- og kop-
arverk Sigurjóns Ólafssonar, textílar
eífir Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur
og ljóð Berglindar Gunnarsdóttur.
Verkin lýsa náttúrufari draums og
jarðar; í ljóðunum er brugðið upp
myndum af nokkrum stöðum í
Reykjavík, meðal annars af Laugar-
nesinu og Helga Pálína yfirfærir á
textílverk sín meðal annars form af
bæjarrústum í Engey, sem aðeins
eru sýnileg úr lofti. Hún þrykkir á
örþynnt silki með nýstárlegri aðferð
sem breytir áferð trefjanna þannig að
þær spegla ljósið á annan hátt. Verk
Sigurjóns veita hinum listformunum
aukið þyngdarafl, en loftkennt
eðh ljóðsins ýtir undir draumsæi
viðarmyndanna og textílverkanna.
Listakonurnar tvær eru báðar
fæddar árið 1953. Berglind Gunn-
arsdóttir ljóðskáld lagði stund á
spænsku og málvísindi í Madrid
og Reykjavík og hefur fengist við
ritstörf, svo sem ljóðagerð, þýðingar,
þáttagerð fyrir útvarp og heíur
skrifað greinar um bókmenntir.
Hún hefiir gefið út ljóðabækur, eina
skáldsögu og ritað ævisögu Svein-
björns Beinteinssonar allsherjagoða.
Helga Pálína Brynjólfsdóttir textíl-
hönnuður býr og starfar í Reykjavík.
Hún útskrifaðist úr textíldeild Listiðn-
aðarskólans í Helsinki (UIAH) árið
1988, hún hefur kennt textilþrykk og
hönnun við Myndlista- og handíða-
skóla Islands og Listaháskóla Islands
og tekið þátt í hönnunar- og textíl-
sýningum hér heima og erlendis.
Sýningin sem nefnist Út á
skýjateppið verður formlega opnuð
laugardaginn 25. febrúar kl. 15, en í
tilefni af Safnanótt og Vetrarhátíð
í Reykjavík verður safnið opið fyrir
gesti og gangandi fóstudagskvöldið
24. febrúar milli klukkan 19 og 24.
Nemendur úr Tónlistarskólanum í
Reykjavík flytja tónhst klukkan 20 og
Berglind mun lesa ljóðin sín kl. 21.
Jarðarrúnir eftir Helgu Pálínu Brynjólfs-
dóttur
Tveir meistarar
íslenskrar myndlistar
Maður og kona. Gunnlaugur Blöndal
í kvöld opna í Listasafni íslands
sýningar á verkum Gunnlaugs
Blöndals og Snorra Arinbjarnar.
Sýningin á verkum Gunnlaugs
ber heitið Lífsnautn og ljóðræn
ásýnd og sýningin á verkum
Gunnlaugs Blöndals nefnist
Máttur litarins og spegill tímans.
Gunnlaugur og Snorri eru meist-
arar litrænnar tjáningar í íslenskri
listasögu og í evrópsku samhengi
hafa þeir sterka skírskotun til ex-
pressjónismanns í upphafi aldar-
innar. Samt sem áður er
litaheimur þeirra, ásetn
ingur og listsöguleg staða
um flest ólík. List Gunn-
laugs er upphafin, róm-
antísk og ljóðræn en
raunsæínu í list Snorra
er miðlað með merk-
ingu litarins og verður
það sem spegill tím-
ans og tákn um samfé-
lagslegt ástand. Hér er
um tvær sjálfstæðar
sýningar að ræða
með ákveðið sam-
spil sem skerpir hin
sterku persónulegu
höfundareinkenni
og ólíku áherslur
í list Gunnlaugs
og Snorra. Sýning-
arstjórar eru Harpa Þórsdóttir Gu,i
’ v Snorri
og Ólafur Kvaran.
Tvær veglegar sýningarskrár um
listamennina koma út með greinum
eftir Kristínu G. Guðnadóttur og
Hörpu Þórsdóttur listfræðinga,
ásamt ljósmyndum af verkum
teknar af Kristjáni Pétri Guðnasyni
ljósmyndara.
Á Safnanótt verður leiðsögn um
sýningarnar kl. 22 og 24. Hádegis-
leiðsögn er alla þriðjudaga kl. 12.10
- 12.40 og hádegiserindi um lista-
mennina er alla föstudaga kl. 12.10
-12.40
Arinbjarnarson
Lausn siðustu gátu Su Doku þrautin snýst um
að raða tölunum frá 1-9
lárétt og lóðrétt í reitina,
þannig að hver tala komi
ekki nema einu sinni fyrir
i hverri línu, hvort sem er
lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu
má aukin heldur aðeins
nota einu sinni innan hvers
níu reita fylkis. Unnt er að
leysa þrautina út frá þeim
tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins
9 3 2 1 7
6 9
5 8
9 7 1 5
5 3
1 9 5 6
8 6
3 2
3 1 8 7 9
6 1 2 7 3 9 5 8 4
5 3 8 4 1 6 7 2 9
9 4 7 2 5 8 3 6 1
8 6 3 5 4 2 1 9 7
2 5 9 8 7 1 4 3 6
1 7 4 9 6 3 2 5 8
7 2 6 1 9 5 8 4 3
4 9 5 3 8 7 6 1 2
3 8 1 6 2 4 9 7 5