blaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 7

blaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 7
blaðiö MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 mNLENDAR FRÉTTIR I 7 Nafnabreytingar fynrtækja eru svar við breyttum veruleika Framkvœmdastjóri SÍA segir fyrirtœki horfa ár og jafnvel áratugi fram í tímann þegar ákvörðun um nafna- og ímyndabreytingu er tekin. Slíkar breytingar kosta oft tugi milljóna. Nafnabreytingar fyrirtækja hafa verið nokkuð tíðar undanfarið og hafa nokkur stórfyrirtæki kosið að breyta um nafn á síðustu vikum og mánuðum. Síðasta dæmið um alls- herjar ímyndabreytingu er þegar Islandsbanki skipti um nafn, sam- einaði nokkur fyrirtæki og gengur í dag undir nafninu Glitnir. Fjöl- mörg önnur dæmi eru um slíka „yfirhalningu“ á ímynd fyrirtækja. Þannig skipti hið rótgróna SÍF um nafn fyrir skemmstu og heitir nú Alfesca og ekki er langt síðan ekk- ert fyrirtæki þótti alvöru nema orðið Group kæmi fyrir í nafni þess. Atorka Group, Baugur Group, Actavis Group, Bakkavör Group og FL-Group urðu öll til á því tímabili í íslenskri viðskiptasögu. Ef af hverju taka fyrirtæki upp á slíkum breytingum? Af hverju er nauðsynlegt að breyta ímynd? Tekið tillittil erlendra markaða Ingólfur Hjörleifsson, framkvæmda- stjóri Sambands íslenskra auglýs- ingastofa (Sí A), segir ástæðuna vera að fyrirtæki séu að bregðast við breyttri heimsmynd. „Ef við skoðum nýjustu breyting- una þegar Islandsbanki ákvað að taka upp nafnið Glitnir geri ég ráð fyrir að aðstæður á erlendum mörk- uðum hafi haft þar eitthvað að segja. Úti í heimi ber Islandsbanki nafnið „Iceland bank“ á meðan Landsbank- inn kallar sig „National bank of Ice- land“. Það kæmi mér ekki á óvart að þetta hafi runnið saman meðal sumra erlendra viðskiptavina. I grunninn er það þannig að með slíkum breytingum vilja menn stað- setja sig þannig að fólk sjái muninn á þeirra fyrirtæki og öðrum. Ef þú yflfesca ert farinn að líkjast samkeppnisað- ilanum að einhverju leyti þá ertu kominn í vandræði. Þetta er grunn- hugsunin," segir Ingólfur en bendir ennfremur á að fjölmargir aðrir þættir komi þarna inn í. „Þegar stórfyrirtæki fer í að breyta um nafn og útlit gerist það ekki á einni nóttu. Ekki er farið af stað með slíkt fyrr en eftir mánaða og jafnvel ára langar rannsóknir.“ Horft mörg ár fram í tímann Okkur íslendingum finnst sumar þessar breytingar skrýtnar. Til að mynda vissu flestir hvað SlF stóð fyrir en nafnið Alfesca er líklega ekki alveg jafnt sterkt í huga okkar. „Fyrirtækið hefur örugglega verið að hugsa um annan markað en þann ís- lenska. Ekki er ólíklegt að SÍF hafi ÍSLAN DSBAN Kl GLITNIR verið erfitt nafn fyrir t.d. Spánverja. Alfesca hefur örugglega skoðað markaðssvæði sitt í dag og þá mark- aði sem stefnt er inn á og röksemdar- færslan fyrir nafninu liggur þar, en ekki hér heima á íslandi," segir Ing- ólfur, en tekur fram að hann þekki lítið til þeirrar vinnu sem liggur að baki þessari nafnabreytingu. „Islenskur markaður er hreinlega ekki nógu stór fyrir fjöldann allan af fyrirtækjum. Fyrirtækin leita því að nýjum mörkuðum og þurfa að skoða sig og ímynd sína út frá allt öðrum sjónarmiðum en þau þurftu að gera fyrir fáum árum. Þær ímyndabreytingar sem við höfum séð að undanförnu þarf að skoða í þessu ljósi. Mér finnst oft gleymast að fyrirtækin eru að horfa tíu til tuttugu ár fram í tímann og ímynd er sköpuð í ljósi þess hvernig starfs- menn og stjórnendur sjá fyrirtækið fyrir sér í framtíðinni, en ekki út frá því hvernig fyrirtækið hefur starfað í gegnum tíðina.“ Neytendur sífellt sterkari En er ímynd allt? „Nei, það hefur aldrei verið. Það er alltaf hægt að auglýsa vörur og þjónustu en ef ekki er innistæða fyrir henni eru auglýsingarnar gagn- lausar. Auglýsingar eru einfaldlega tæki til að kynna þá þjónustu sem fyrirtæki bjóða upp á - með öðrum orðum innihald þeirra. Ney tendur eru ekki grunnhyggnir einstaklingar sem hægt er að bjóða hvað sem er. Reyndar er staðan sú að neytendur eru sífellt að verða sterkari, sérstaklega með tilkomu nýrrar tækni. Hér fyrir nokkrum árum var hægt að ná til allra neyt- enda með auglýsingu í Morgunblað- inu og RÚV. Nú er staðan mög ólík og nauðsynlegt að skoða í upphafi Ingólfur Hjörleifsson, framkvæmdastjóri SÍA til hvaða hóps fyrirtæki vill ná til. Skilaboðin eru síðan mótuð út frá því og í framhaldi ákveðið hvaða miðlar henta best til að koma þeim tiltekna boðskap á framfæri,“ segir Ingólfur. Hvað heildarímyndabreytingar fyrirtækja varðar þá bendir hann á að þær kosti mikla fjármuni og því fari fyrirtæki ekki í slíka vinnu nema að vel ígrunduðu máli. „Þrátt fyrir að almenningi finnist þessar breytingar gerast nánast á einni nóttu þegar gömlu merkin eru tekin niður og þau nýju sett upp í staðinn þá liggur mikil vinna að baki svona breytingum. Þær kosta síðan milljónir, ef ekki tugi milljóna. Hins vegar eru fyrirtækin, í sam- vinnu við auglýsingastofu sína, ör- ugglega búin að reikna það út að það kosti þau meira að gera ekki neitt þar sem það stefni í að fyrirtækið missi viðskipti við óbreytt ástand, hvort sem það er á innlendum eða erlendum vettvangi,“ segir Ingólfur að lokum. VOLVO for life Öll erum inð einstök, hvert og eitt okkar. Enginn á sinn líkan. Fyrir okkur ert þú miðja alheimsins. Þegar þú ert annars vegar er takmark okkar bara eitt: að uppjylla óskir þínar og þarfir á þann hátt að þú lítir á Brimborg sem öruggan stað til að vera á Við erum með þéralla leiðl Öruggur staður tít að vera é Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.volvo.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.