blaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 15
blaðið MÁNUDAGUR 20. MARS 2006
VÍSINDI I 15
Repúblikanar eru hamingju-
samari en demókratar
Hamingja Bandaríkjamanna hefur
ekki breyst mikið undanfarin ár
samkvæmt nýlegri þarlendri rann-
sókn en í henni kemur fram að 34%
Bandaríkjamanna eru mjög ham-
ingjusamir. Rúmlega 3.000 manns
tóku þátt í rannsókninni og helm-
ingur sagðist vera frekar hamingju-
samur en 15% þátttakenda sögðust
ekki vera hamingjusamir.
Hvítir hamingjusamari
en blökkumenn
f niðurstöðunum má sjá áhugaverða
niðurstöðu þegar ýmsir hópar eru
bornir saman:
• Repúblikanar eru hamingjusam-
ari en demókratar.
• Fólk sem iðkar trú sína reglulega
er hamingjusamara en þeir sem
gera það ekki.
• Ríkir eru hamingjusamari en
fátækir.
• Hvítir, og þeir sem eiga rætur að
rekja til rómönsku-Ameríku, eru
hamingjusamari en blökkumenn.
• Giftir eru hamingjusamari en
ógiftir.
• Hundaeigendur og kattaeigendur
eru jafn hamingjusamir.
Hamingjusamari síðan 1972
Um það bil 45% repúblikana sögðust
vera hamingjusamir á meðan 30%
demókrata töldu sig hamingjusama.
í rannsókninni kom líka fram að
repúblikanar hafa mælst hamingju-
samari í könnunum en demókratar
síðan árið 1972. Ástæðan gæti verið
augljós þar sem repúblikanar eiga
það til að vera ríkari en demókratar
og eins og hefur komið í ljós þá eru
ríkari hamingjusamari en þeir sem
eru fátækir. En jafnvel eftir að tekið
er tillit til tekna eru fátækir repúblik-
anar hamingjusamari en fátækir
demókratar og ríkir repúblikanar
Bush er sennilega mjög hamingjusamur maður því hann er trúrækinn, rfkur og repúblikani.
eru hamingjusamari en ríkir demó- samkomur. Niðurstöður rannsókn-
kratar. Um 43% þeirra sem sækja arinnar segja þó ekki til um hvernig
trúarlegar samkomur vikulega eða trú, hamingja og repúblikanar
oftar segjast vera mjög hamingju- tengjast.
samir, samanborið við þau 26% sem ..................................
fara sjaldan eða aldrei á trúarlegar svanhvit@bladid.net
Aðalþátturinn í ævarandi hamingju giftr-
ar konu ertilfinningaleg skuldbinding
maka hennar samkvæmt nýrri banda-
rískri rannsókn.
Jafnrétti merkir
ekki endilega
sanngirni
Aðalþátturinn í ævarandi hamingju
giftrar konu er tilfinningaleg skuld-
binding maka hennar samkvæmt
nýrri bandarískri rannsókn. Um
5000 hjón víðsvegar um Bandaríkin
tóku þátt í rannsókninni en niður-
stöður hennar eru ekki í samræmi
við aðrar rannsóknir sem bentu til
þess að laun eiginmannsins og skipt-
ing húsverka ákvarðaði hamingju
konunnar.
Gamaldags kynjaregl-
ur = hamingja
í rannsókninni kom einnig fram að
ef eiginmaðurinn lagði fram meira
en 68% af kostnaði heimilishalds-
ins þá voru þær eiginkonur ham-
ingjusamastar. W. Bradford Wilcox,
félagsfræðingur við Háskólann í
Virginia, sagði við þetta tækifæri að
sama hvað konur segðu þá eru þær
hamingjusamari ef eiginmaðurinn
skaffar vel, svo lengi sem hann er
skuldbundinn henni tilfinninga-
lega. „Það kom mér á óvart að meira
að segja jafnréttissinnaðar konur
eru hamingjusamari þegar hjóna-
bönd þeirra fara eftir gamaldags
kynjareglum.“
Skuldbinding skiptir meira máli
Einnig kom í ljós að sanngirni er
álitin mikilvæg í hamingjusömu
hjónabandi. Konur sem álitu að
skipting húsverka væri sanngjörn
töldu sig vera hamingjusamari
en aðrar konur. Sanngjörn skipti
þýddu ekki endilega jöfn skipti því
flestar konurnar voru sáttar við að
gera meirihluta húsverkanna sjálfar.
En þar sem þær álitu að eiginmenn-
irnir væru skaffarar álitu þær að
ójöfn skipting húsverka væri sann-
gjörn. „Eiginkonurnar voru við-
kvæmar fyrir ójafnvægi í skiptingu
húsverka, eins og allar rannsóknir
sýna. Hins vegar bentu niðurstöður
okkar til að tilfinningaleg skuld-
binding mannanna skipti konurnar
meira máli í hjónabandinu,“ sagði
einn rannsakendanna, Steven Nock,
prófessor. „Við túlkum þessar niður-
stöður á þann veg að makar þurfa
að taka meira tillit til hvað hinum
aðilanum í sambandinu finnst um
hjónabandið því jafnrétti merkir
ekki endilega sanngirni."
Frábær myndavél.
Frábærar myndir.
Hvað með útprentanir?
Að prenta út myndir hefur aldrei verið auðveldara.
Þú einfaldlega tengir Canon stafrænu myndavélina við
Canon SELPHY CP Ijósmyndaprentara og prentar út
fallegar, blæðandi Ijósmyndirá nokkrum sekúndum.
Með því að velja Canon stafrænar myndavélar og
prentara ertu að velja gæði.
Frekari upplýsingar á www.canon.nyherji.is
Söluaðilar um land allt.
PictBridge
DIRECT
PRINT