blaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 2

blaðið - 20.03.2006, Blaðsíða 2
2 i IWWLEWDAR FRÉTTIR MÁNUDAGUR 20. MARS 2006 blaöiö blaöiðc_________ Bæjarlind 14—16,201 Kópavogur Sími: 510 3700 • www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@ bladid.net AUGLÝSINGADEILD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Bráðnun ís- lands í bresk- um blöðum Breska stórblaðið Sunday Telegraph birti í gær ýtralega fréttaskýringu undir fyrirsögninni Bráðnar ís- land? Er þar fjallað um íslenskt fjár- málaumhverfi og sér í lagi gagnrýni á það, sem hefur verið fyrirferðar- mikil á erlendum fjármálamörk- uðum undanfarnar vikur. Greinina skrifar blaðamaður- inn James Hall og fer hann vítt og breitt yfir áhyggjur manna af stöðu íslensku bankanna, ríkisfjármálum og útrásarinnar. Rætt er við Halldór J. Kristjáns- son, bankastjóra hjá Landsbank- anum, sem segir að hann telji að nokkurs misskilnings hafi gætt um aðstæður á íslenskum markaði að undanförnu. Vissulega hafi leiðrétt- ing á gengi krónunnar undanfarnar tvær vikur átt sér stað fyrr og hraðar en vænst hafi verið, en ítrekar að hennar hafi verið vænst. Það eigi því ekki að setja allt á annan endann. f greininni er bent á að bankarnir hafi tekið mikið fé að láni undan- farin tvö ár, fyrst og fremst til þess að fóðra innrás í húsnæðislánamark- aðinn og útrás í erlend fyrirtæki. Er Baugur tekinn til dæmis um útrás- ina og sagt að bankarnir hafi átt greiða leið að fjármagni frá fjárfest- ingasjóðum, sem hafi viljað nýta sér 10,75% vexti á íslandi, en ekki hafi heldur spillt fyrir að íslenskt efna- hagslíf hafi um skeið komist í tísku. Upp á síðkastið hafi á hinn bóginn gætt æ ríkari efasemda um íslenska efnahagsundrið og fyrirtækin, sem þar hafa verið í fararbroddi. fslenskir viðmælendur í greininni segja að ofhitnunar hafi gætt í efna- hagslífinu, en telja jafnframt allar líkur á mjúkri lendingu. Vilja funda á hlutlausum stað FyrirhugaðurfundurHalldórsÁsgrímssonar íReykjanesbœ veldur deilum. Sjálfstœðismenn segja að með fundinum sé brotthvarf varnarliðsins gert að flokkspólitísku máli. Fyrirhugaður fundur Halldórs Ás- grímssonar, forsætisráðherra, sem haldinn verður á kosningaskrifstofu A-listans í Reykjanesbæ í kvöld er harðlega gagnrýndur af Viktori B. Kjartanssyni, formanni Fulltrúa- ráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykja- nesbæ. Segir hann að með fundinum sé brotthvarf varnarliðsins gert að flokkspólitísku máli. „Við sáum fyrir okkur opinn fund um málið, helst með bæði forsætis- og utanríkisráðherra, á hlutlausum og stórum stað hér á svæðinu fyrir alla þá sem koma að því,“ segir Viktor. í yfirlýsingu sem Viktor sendi fjöl- miðlum í gær segir meðal annars að Halldór boði til fundarins í nafni embættis síns sem forsætisráðherra þjóðarinnar og færi þannig málið inn á flokkspólitískan vettvang sem verði að teljast mjög varhugavert. Til skýringar er rétt að geta þess að A-listinn í Reykjanesbæ er sameig- inlegt framboð Framsóknarflokks, Samfylkingar og óflokksbundinna í sveitarfélaginu. Margir ósáttir „Þó að í brotthvarfi varnarliðsins geti falist mörg tækifæri fyrir suðurnesja- menn er fyrsta verkefnið að aðstoða þá hundruði einstaklinga sem nú missa vinnuna. Þessir einstaklingar koma úr öllum stjórnmálaflokkum og því ekki eðlilegt að boða þetta fólk og fjölskyldur þeirra til fundar á pólitískum vettvangi,“ segir í yfir- lýsingu Viktors. Hann segir að fjölmargir einstak- lingar hafi haft við hann samband og lýst þeirri skoðun sinni að þeir vildu ekki fara in á kosningaskrif- stofu til að ræða atvinnumál sín við forsætisráðherra. „Okkur fyndist ekkert óeðlilegt að formaður Framsóknarflokks myndi boða til fundar með frambjóð- endum, enda eru formenn flokka sífellt að hitta sitt fólk. Það er hins vegar óeðlilegt að forsætisráðherra Halldór Asgrímsson mun hitta íbúa Reykjanesbæjar í kosningamiðstöð A-list- ans í sveitarfélaginu í kvöld. boði til slíks fundar.“ En er forsætisráðherra með þessu að misnota aðstöðu sína? „Við viljum frekar líta þannig á að hann hafi verið fenginn til þessa af frambjóðendum A-listans en að hann sé meðvitað að styggja fólk,“ segir Viktor. Ekkert athugavert við fundinn Eysteinn Jónsson, oddviti Framsókn- arflokksins í Reykjanesbæ, segir málið vera á misskilningi byggt. „Þetta er einhver misskilningur hjá Viktori. Það var Framsóknar- flokkurinn í Reykjanesbæ sem boð- aði til fundarins. Við buðum forsæt- isráðherra að koma og erum honum mjög þakklát fyrir að sjá sér fært að mæta með svona stuttum fyrirvara. Það er ekkert athugavert við þetta, enda eru allir velkomnir á fundinn, sama hvar í flokki þeir standa. Við bíðum nú spennt eftir góðum fundi og vonumst til þess að ráðherra svari þeim fjölmörgu spurningum sem brenna á fólki hér á svæðinu," segir Eysteinn. BlaÖið/Frikki Gæddu sér á eigin kræsingum Félagar í íslenska kokkalandsliðinu komu saman á veitingastaðnum Salt á Hótel Radisson SAS 1919 í gær og Pylsubarinn LaugardáTs ■^Sibftinníb^1 sýndu matargerðarlistir sínar. Til- efnið var kynning á sýningunum Matur 2006 og Ferðatorg 2006 sem haldnar verða í Fífunni í Kópavogi um næstu mánaðamót. Sýning- arnar bera sameiginlegu yfirskrift- ina Sælkeraferð um ísland. Þar verður mikið lagt upp úr tengingu matarmenningar og ferðamennsku og dregin fram sú sérstaða sem einstakir landshlutar bjóða upp á í matargerð. Ýmsar keppnir verða jafnframt háðar og ber þar hæst álfu- keppnina í matreiðslu þar sem mæta munu til leiks keppendur víðs vegar að úr heiminum. í þakkarskuld við eldri kyn- slóðina mbl.is | Ólafur Ragnar Grímsson, forseti fslands, sagði í ræðu á af- mælishátíð Félags eldri borgara í gær, að útrásin, árangurinn í atvinnulífi, vísindum og á vett- vangi lista væri í raun afrakstur ævistarfsins sem kynslóð hinna eldri innti af hendi. Þjóðin væri í mikilli þakkarskuld við þessa kynslóð. „Umræðan að undanförnu er vonandi boðberi þess að senn skapist breið og öflug samstaða um að tryggja varanlegar úr- bætur á þessu sviði,“ sagði Ól- afur Ragnar í ræðu sinni. Leiðrétting Skilja má fyrirsögn á forsíðu laugardagsblaðs Blaðsins þannig að sjónskertir verði alls ekki þunglyndir í skammdeg- inu. Hið rétta er að sjónskerðing veitir vernd gegn árstíðasveiflu í líkamsstarfsemi og þar með gegn vetrarólyndi. Hvað varðar þunglyndi sem ekki tengist árstíma er það jafn algengt meðal blindra og sjón- skertra og sjáandi fslendinga. (3 Heiðsklrt (5 Léttskýjað Skýjað ^ Alskýjað ✓ rf Rlgnlng, litilsháttar Rlgnlng "> j Súld 'j' Snjðkoma Slydda ' jj Snjðél \1 Skúr Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Frankfurt Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Mallorka Montreal New York Orlando Osló París Stokkhólmur Þórshöfn Vín Algarve Dublin Glasgow 06 14 03 -03 08 04 -03 03 07 13 15 -06 0 18 01 11 -03 -02 08 16 05 05 «O0 -5° Á morgun Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn Byggt á upplýsingum frá Veöurstofu íslands © (3 -8° -6° 0° * 2° *

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.