blaðið - 11.04.2006, Síða 4

blaðið - 11.04.2006, Síða 4
Fœrð þú «itt af 200 eggjum sem innihalda miða fyrir tvo á Hafið biáa? Fjölskyldusýning sem slegið hefur I gegn í Austurbæ Vikulegar siglingar til Evrópu ATLAIMTSSKIP -FLYTJA VÖRUR- 5KOÐAÐU HEIMINN BORGARTÚNI 29 1105 REYKJAVÍK | ICELAND | WWW.EXIT.IS | TEL. +354 562 2362 | FAX. +354 562 9662 4 I miVLENDAR frétt: ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðiö Halldór ekki bjartsýnn á samninga við Bandaríkin Telur ekki útilokað að varnarsamningnum verði sagt upp en telur útilokað að horfa til Evrópu eins og sakir standa. 591 3000 Halldór Ásgrímsson, forsætisráð- herra, segir nauðsynlegt er að fá nið- urstöðu úr varnarviðræðunum milli fslendinga og Bandaríkjamanna áður en lengra er haldið gagnvart Atlants- hafsbandalaginu (NATO). Þetta kom fram í ræðu hans á fundi í Háskóla íslands f gær, þar sem hann gerði grein fyrir framtíðarstefnu fslands í öryggis- og varnarmálum. Forsæt- isráðherra sagði varnarsamninginn við Bandaríkin vera framlag hins herlausa íslands til NATO og skýr svör verði að koma fram af hálfu Bandaríkjamanna með hvaða hætti þeir telji unnt að sinna fullnægjandi loftvörnum landsins. „Næstu vikur munu því skera úr um það hvernig Bandaríkjastjórn hyggst standa að vörnum landsins og hvort að þeir geti aðstoðað okkur við að upp- fylla skuldbindingar okkar gagnvart Atlantshafsbandalaginu, og hvort fyrirætlanir þeirra séu nægilegar að þessu leyti,“ sagði Halldór og vísaði því algjörlega á bug að stefnuleysi ein- kenni varnarmál þjóðarinnar. Ekki bjartsýnn á samninga Halldór kvaðst játa að hann væri ekki bjartsýnn á framhald viðræðna við Bandaríkjamenn, þó svo hann vildi ekki vera svartsýnn heldur. Sagði hann að hann teldi sig fremur vera raunsæjan. „Það er hins vegar alveg ljóst að við fslendingar verðum sjálfir að axla þá ábyrgð sem fylgir því að vera sjálfstæð þjóð og axla þá ábyrgð Halldór Ásgrímsson í ræðustóli í hátíðarsal Háskóla fslands í gær. BlaoiÖ/Frikki sem fylgir því að byggja upp varnir og öryggi okkar.“ Kvað forsætisráðherra ekki unnt að neita því, að ekki ríkti lengur sama trúnaðarsamband og traust mílli fslands og Bandaríkjanna og áður vegna þess hvernig brottför varnar- liðsins hefði komið til. Vildi hann ekki útiloka að varnarsamningnum yrði sagt upp. Blaðið spurði Halldór hvort rétt væri að Bandaríkjamenn hefðu boðið f slendingum að hér yrði áfram haldið úti orrustuþotum og þyrlum í samningaviðræðum, sem upp úr slitnaði síðastliðið haust. Kvaðst hann ekki kannast við slíkt tilboð, en staðfesti á hinn bóginn að íslend- ingar hefðu slitið þeim viðræðum vegna hugmynda Bandaríkjamanna um kostnaðarþátttöku íslendinga við varnir landsins. Evrópa ekki í myndinni í bili Halldór vék að umræðu um aukna samvinnu við ríki Evrópu á varnar- sviðinu. Sagði hann að á vettvangi Evrópusambandsins væru vissulega ýmsar samþykktir um aukið varna- samstarf ríkja þess. Það mætti því ekki útiloka að í framtíðinni kynnu íslendingar að vilja horfa til þess, enda teldi hann augljóst að brotthvarf bandarísks herafla frá íslandi myndi treysta böndin við Evrópuríkin um leið og tengslin við Bandaríkin yrðu veikari. Eins og staðan væri nú, taldi Hall- dór hins vegar útilokað að horfa til Evrópu að því leyti. íslendingar myndu sinna varnarmálum sínum innan NATO og með tvíhliða samn- ingi við Bandaríkin meðan hann væri enn í gildi. Halldór sagði fslendinga þurfa að efla þátttöku, bæði í Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu og einnig á vett- vangi Atlantshafsbandalagsins. Starf- semi Atlantshafsbandalagsins sagði hann áfram verða kjarnann í varna- °g öryggismálum þjóðarinnar og svo yrði um ókomna tíð. Hann sagði einnig að stórefla þyrfti samvinnu á öllu Norður-Atlantshafinu á sviði björgunarmála og efla samstarfið við nágrannaríkin áþví sviði. Auglýsingar blaðiðu

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.