blaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 18
' 18 I TÍSKA ......... ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðiö ------------------------------------------------------------------------------------------------------;---- Töfi og vel snyrt um páskana Páskafríið er handan við hornið og hvort sem fólk fer úr bænum eða slappar af heima, er boðið í stórar fermingarveislur eða minni boð vilja allir líta sem best út. Vorið er á næsta leiti og margir vilja fá sér fatnað í nýju sumarlitunum og dömurnar vilja jafnvel fá sér nýtt naglalakk eða andlitsfarða í stíl. Þegar búið er að snyrta sig og lakka neglurnar er punkturinn yfir i-ið að setja á sig gott ilmvatn, t.d. léttan og ferskan sumarilm. Sólin er farin að hækka á lofti og hvort sem fólk er að spóka sig úti eða er í bíltúr er alveg nauðsyn- legt að hafa sólgleraugu. Margir eru farnir að leita að gömlu sól- gleraugunum en hvort sem þau finnast eða ekki getur verið góð hugmynd að fá sér ný sólgleraugu og fagna vorinu með nýtt útlit. Velsnyrtar neglur Naglalökkin frá Beyu eru sumarleg og sæt og greinilegt að Ijósir litir verða allsráðandi I sumar. Ljúfur og léttur ilmur Nýi ilmurinn frá Jennifer Lopez heitir Love at first Glow og er léttur og ferskur. Ilmurinn er kvenlegur og kemur I fallegum umbúðum. Nýtt sólarpúður í Terracotta línu Guerlain Sumargjöf dömunnar í ár. Nú er komið á markað nýtt sólar- púður frá Guerlain. Púðrið ber heitið Terracotta Sheer bronzing powder og kemur í tveimur litatónum, fyrir ljósa og dekkri húð. Terracotta sólar- púðrið hentar öllum húðgerðum og dregur fram ljóma hjá öllum. Púðrið inniheldur mismunandi liti sem blandast saman í burstanum og gerir það að verkum að húðin fær á sig fallega og perlukennda áferð. Tónarnir eru hannaðir sérstaklega með það fyrir augum að húðin verði sem náttúrulegust og því þarf engin að vera hrædd um að fá á sig þunga og áberandi grímu. Með púðrinu er hægt að fá nýjasta burstann í Terrac- otta línunni, en hann er sérstaklega góður í púður af þessari gerð og passar í flest öll veski. Hér er komin tilvalin sumargjöf fyrir dömuna - fallegt sólarpúður og bursti í stíl! ÚR&GULL Flröl • Miftbeo Hafnarfjarftar • Sfmi: 565 4666 KENNETH Verð kr. 9.950 Wi Verð Kr. 12.000 I Verð kr. 14.500 BlaOiö/Frikki Efst má sjá gleraugu frá Police sem kosta 17.300. í miðið eru gleraugu frá Prada sem kosta 22.300 og neðst eru þá gleraugu frá Dolce og Gabbana sem kosta 26.500. Smart sólgler- augu fyrir sumarið Stór sólgleraugu eiga eftir að vera áberandi í sumar að mati Ágústu Pálsdóttur verslunarstjóra hjá Opt- ical Studio sól. „Sólgleraugu eru stór hluti af útliti fólks og fyrir karl- menn eru þau einn af fáum fylgi- hlutum sem þeir geta notað. Fyrir suma eru sólgleraugun hluti af per- sónuleikanum og margir nota þau einnig innandyra.“ Ágústa segir marga vilja brey ta til á hverju sumri og fá sér ný sólgler- augu. „Sólin getur verið mjög óþægi- leg hérna á íslandi og margir kann- ast við það vandamál að keyra í sól á vorin eða haustin þegar sólin er lágt á lofti og blindar sýn. Þá má ekki gleyma því að gleraugun vernda augun og það má því segja að þau séu tíska með tilgang." í Optical Studio sól er hægt að fá sólgleraugu í öllum verðflokkum allt frá þúsund krónum og upp úr en verð gleraugn- anna og gæði haldast í hendur.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.