blaðið - 11.04.2006, Side 24

blaðið - 11.04.2006, Side 24
24 I HEILSA ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2006 blaðiö Brosað upp á nýtt Undanfarin ár hefurþaðfœrst í vöxt að fullorðið fólkfari í tannréttingar. Margir íslendingar muna eftir þeirri áþján frá unglingsárum sínum að hafa þurft á tannrétt- ingarmeðferð að halda, hvort sem var til að bæta útlitið eða bjarga tannheilsunni. Stór beisli, spangir eða undarlegur gómur höfðu þannig óskemmtileg áhrif á sjálfsmynd í mótun, enda lítill töffaraskapur í því að hafa „teina“ á tönnunum. Sumir spyrntu við því og neituðu að fara í meðferðina með þeim afleiðingum að á fullorðinsárum stendur fólk frammi fyrir því að þurfa, eða vilja loksins, fara í tannréttingar. En hvernig er það, hefur það auk- ist að fullorðnir „fái sér spangir“? Blaðamaður forvitnaðist um málið hjá Árna Þórðarsyni, tannlækni og tannréttingarsérfræðingi á tann- læknastofunni Ortis í Faxafeni. „Já, undanfarin ár hafa orðið miklar framfarir á nokkrum sviðum tannlækninga. Þessar framfarir og aukin útlitsvitund þjóðarinnar hefur haft í för með sér talsverða aukningu á fjölda fullorðinna sem sækjast eftir tannréttingarmeðferð þannig að þessu má svara játandi,“ segir Árni og heldur áfram. „Hvað framfarir varðar ber helst að nefna tilkomu titaniumplatna sem hægt er að nota sem akker- isfesti fyrir tannfærslu sem áður hefði verið óframkvæmanleg, en þessar ígræðslur má einnig nota til að byggja upp tennur í tannlausum bilum. I öðru lagi hafa orðið stór- kostlegar framfarir í gerð postulíns- króna sem eru orðnar svo fallegar að það sést varla munur á þeim og eigin tönnum. Síðan má nefna miklar framfarir og mikilvægar nýjungar í kjálkaskurðlækningum. Kjálkafærsluaðgerðir eru í dag bæði öruggari og markvissari en áður og þannig má rétta bæði „skúffur" og yfirbit með góðum árangri. Síðast en ekki síst eru tannspangir mun nettari í dag en þær voru áður fyrr og fyrir þá allra kröfuhörðustu er hægt að rétta tennur með spöngum sem settar eru innan á tennurnar og sjást því alls ekki. Sú leið hentar þó ekki nema í vissum tilvikum og er talsvert dýrari. “Ósýnilegar spangir” eða lítt áber- andi, tannlitaðar spangir, hafa líka opnað leið fyrir þá sem ekki geta eða vilja, t.d. starfs síns vegna, farið í tannréttingar þótt nauðsyn beri til. Þannig má segja að nýjungar á sviði tannréttinga hafa þannig opnað áður óþekkta möguleika til að leysa, oft á einfaldan hátt, vandamál sem áður voru ill- eða óleysanleg. Sam- vinna sérgreina, svo sem krónu- og brúarsmíði, kjálkaskurðlækninga, tannholdslækninga og tannréttinga, getur einnig leitt til þess að einstak- lingur sem ekki hefur brosað al- mennilega svo árum skiptir, breytir algerlega um persónuleika." Misjafnar ástæður að baki Hvað er það sem fullorðið fólk lœtur helst aftra sérfrá því aðfara í tannréttingar? „Það er annarsvegar kostnaður og hinsvegar tilhugsunin um að þurfa að hafa spangir á tönnunum í eitt, tvö eða jafnvel þrjú ár.“ Hversu kostnaðarsöm getur svona meðferð verið og kemur Trygginga- stofnun að greiðslum í einhverjum tilfellum? „Kostnaður við tannréttingar full- orðinna er afar misjafn eftir því hversu flókin og umfangsmikil með- ferðin er. Algengur kostnaður við hefðbundna tveggja til þriggja ára meðferð er á bilinu 5-700 þúsund og Tryggingastofnun kemur aðeins að greiðslum vegna tannréttinga full- orðinna þegar þörf er á kjálkafærslu- aðgerð samfara réttingu.“ Hverjar eru algengustu meðferðirnar? „Fullorðnum má gjarna skipta í tvo hópa: Þá sem hefðu átt að fara í tannréttingu á unglingsárum en gerðu ekki af einhverjum ástæðum, og hina sem þurfa að fara í tannrétt- ingar vegna þess að eitthvað hefur gerst á fullorðinsárum sem kallar á meðferð. Þar er t.d. mjög algengt að tönn eða tennur hafa tapast og aðlægar tennur síðan gengið til og skekkst, eða bit dýpkað á framtanna- svæði með tilheyrandi gliðnun efri framtanna og auknu framstæði. Tannholdssjúkdómar, sem gjarnan koma á fullorðinsárum, geta valdið tannlosi og tannreki. Á fullorðins- árum geta líka skapast ávanar sem ar nu en aður. ekki voru til staðar á yngri árum; til dæmis tanngnístur sem gjarnan er stresstengt og getur leitt til þess að tennurnar slitna. Þá geta krónur framtanna minnkað það mikið að af hljótast mikil útlitslýti. í slíkum til- vikum er oft þörf á tannréttingu til að skapa pláss fyrir krónur á þessar tennur,“ segir Árni. Kvillar hverfa Hvað tekur meðferð langan tíma? „Einföld rétting, t.d. til að leiðrétta þrengsli á framtannasvæði neðri góms, eða til að opna lítillega bil fyrir „implant", getur tekið frá 6 mánuðum upp í eitt til eitt og hálft ár. Flóknari réttingar taka venjulega 2-3 ár.“ Hverjir eru kostirþess aðfara í tann- réttingar, fyrir utan útlitsbreytingu? „Jákvæð útlitsbreyting er að sjálfsögðu mikilvæg. En hitt er þó kannski mikilvægara að þegar tennur hafa tapast, aðlægar tennur hallast eða snúist og bit dýpkað svo mikið að viðkomandi bítur t.d upp í góminn að innanverðu með neðri tönnum, er tannrétting alger for- senda þess að hægt sé að leysa vanda- mál þess sem í hlut á. Tannsmíði og uppbyggingar duga ekki einar sér. Því eru aðrir mikilvægir kostir við tannréttingar fullorðinna sem oft læknar fólk af kjálkaliðsvanda- málum, höfuðverk og fleiri kvillum sem geta fylgt röngu biti,“ segir Árni Þórðarson, tannlæknir, að lokum. margret@bladid. net Hvað eru lýti? Reglugerð um niðurgreiðslur á lýtaaðgerðum virka ekki sem skyldi. Fyrir um fimmtán árum síðan alvarlegum útlitsgöllum, t.d. voru fáir sem hugsuðu um eftir slys. brjóstastækkanir eða andlits- lyftingar þegar lýtaaðgerðir bar í dag er öldin önnur. Venjulegt fólk á góma. Flestir tengdu svona fer undir hnífinn í þeim tilgangi að aðgerðir við börn sem höfðu öðlast fallegra útlit, en ekki endilega útstæð eyru eða lagfæringar á til að laga eitthvað sem er svo mikið Fyrsta fíokks íslenskur harðfiskur c> GULLFISKUR H O L L U STA í H V B R J U M B ITA FÆST í BÓNUS frávik að það breytir því hvernig fólkinu tekst að lifa og starfa í sam- félagi við aðra menn. í júní 2001 var reglugerð frá árinu 1991 felld úr gildi, en hún varðaði niðurgreiðslur á lýtaaðgerðum. Ný reglugerði var sett í staðinn. Framkvæmdastjóri hjá Tryggingastofnun segir að reglu- gerðin þyki ófullkomin og erfið við- ureignar, sérstaklega þar sem mat á svona aðgerðum getur oft á tíðum verið huglægt. Það sem einni mann- eskju þykir í lagi þykir annarri lýti. Var gömlu reglugerðinni breytt í kjölfar þess að viðhorf gagnvart út- litsbreytandi aðgerðum hafa breyst í þjóðfélaginu? „Ég get því miður ekki svarað þess- ari spurningu. Ákvörðunin var tekin hjá Heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytinu sem semur allar reglugerðir er þetta varða, en þar hafði fólk eitt- hvað fy rir sér í þessu sem ég veit ekki hvað er,“ segir Kristján Guðjónsson framkvæmdastjóri sjúkratrygginga- sviðs hjá Tryggingastofnun. „Reglugerðin frá 1991 fannst okkur á allan hátt bæði þægilegri fyrir fólkið ogþægilegri að vinna með, en þessi sem er notuð í dag er virkilega erfið í framkvæmd. Með gömlu reglu- gerðinni fylgdu vinnureglur sem t.d. skilgreindu aðgerðir sem annað- hvort fegrunar eða lýtaaðgerðir og ef einhver vafi lék á þessu þá fór það fyrir sérstaka nefnd um þessi mál en í henni voru.m.a. starfandi læknar. Nefndin fór eftir ákveðnum leiðum til að skera úr um hvort útlitsgalla einstaklingsins bæri að flokka sem lýti. Til dæmis voru notaðar myndir og mælingar og í sumum tilfellum var fengið vottorð frá geðlæknum sem skar úr um hvort útlitsgallinn væri að hamla viðkomandi einstak- lingi í daglegu lífi og starfi. Þetta fyr- irkomulag virkaði mjög vel.“ Fyrir nokkrum árum var ekki algengt að fólk legðist undir hnífinn ótilneytt til þess að breyta útliti sínu, en viðhorf til slíkra aðgerða hafa breyst mikið undanfarin ár. Annað brjóstið vex en hitt ekki I gömlu reglugerðinni voru sumir hlutir skýrari en í þessari nýju. Til dæmis var ekki flókið mál að ákveða hvort barn með útstæð eyru hefði rétt á niðurgreiðslu eða ekki. „Hvað varðar útstæð eyru barna, þá var skýrt ákvæði í þeirri gömlu sem sagði að börn undir sextán ára hefðu rétt á endurgreiðslum frá TR, væri þessi útlitsgalli að hamla þeim en það ákvæði var fellt úr gildi í nýju reglugerðinni. Það sama má segja um lafandi augnlok, en ef slíkt var farið að byrgja mönnum sýn þá var hluti af kostnaði greiddur - ef ekki þurfti fólk að greiða kostnaðinn að fullu sjálft. í dag kveður reglugerðin á um að Tryggingastofnun eigi ekki að taka þátt í slíkum aðgerðum, hvort sem þetta hamlar fólki eða ekki. Satt best að segja hefur þessi nýja reglugerð reynst okkur afar torveld í framkvæmd. Samkvæmt henni eigum við að niðurgreiða það sem telst meiriháttar útlitsgalli, en þegar enginn er til að meta hvað telst meiriháttar útlitsgalli og hvað ekki getur verið erfitt að finna út úr þessum hlutum. Hvað á til dæmis að gera í tilfellum ungra stúlkna þegar annað brjóstið þroskast eðlilega en hitt ekki? Hér áður var tekið tillit til slíkra undantekninga. Reyndar veit ég um tvö dæmi þess að ákvæði í reglugerðinni hafi verið kærð og það er einmitt kostur sem vert er að benda á. Þetta var í tilfellum tveggja kvenna sem höfðu báðar mikinn hárvöxt í andliti sem ekki var hægt að fjarlægja svo vel væri nema með leiseraðgerð. 1 nýju reglugerðinni stendur að Tryggingastofnun nið- urgreiði ekki slíkar aðgerðir en konurnar kærðu þetta til úrskurð- arnefndar um almannatryggingar og niðurstaðan var konunum í vil. Semsagt þvert á reglugerðina. Með þessu ætti að sannast að reglugerðin virkar ekki eins og hún ætti að gera,“ segir Kristján að lokum. Reglugerðirnar má bera sarnan á vef- síðunni www.reglugerd.is margret@b\adid.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.