blaðið - 11.04.2006, Síða 27
blaðiö ÞRIÐJUDAGUR ll.'APRÍL 2G06
BÍLAR
Nýr Audi TT vekur
blendnar tilfinningar
Þegar Audi TT var kynntur til sög-
unnar haustið 1998 var frá upphafi
augljóst að þar var sígildur bíll á
ferðinni, hönnunin hafði mikil
áhrif og gerði heilmikið fyrir Audi
á hörðum markaði.
Um helgina var loks kynnt endur-
bætt útgáfa af TT, en þó margt sé
búið að bæta í bílnum er ekki gefið
Nýja útgáfan af Audi TT var kynnt við
Brandenborgarhliðið t Berlín, en við hlið-
ina var skúlptúr í yfirstærð.
að aðdáendurnir séu allir jafn-
hrifnir. Svipur bílsins er ekki jafn-
afgerandi og áður og sumt virðist
hafa verið sótt í smiðju keppinaut-
anna hjá BMW. Nýja Audi-grillið
er vitaskuld komið á sinn stað og
spillir engan veginn fyrir, en útlit
framljósanna hefur breyst talsvert
og vinnur frekar gegn grunnformi
bílsins, likt og segja má um skörp
horn á húddinu, sem skarast á við
hinar ávölu línur, sem gerði TT
einstakan.
Nýi Audi TT lítur út fyrir að vera
lengri en sá gamli, sem er kannski
ekki skrýtið í ljósi þess að hann er
aðeins lengri, tæpum 14 cm lengri
nánar tiltekið. Efniviður grindar
og yfirbygginggar er blandaður,
um 70% eru úr áli, en afgangur-
inn úr stáli. Annað nýmæli er, að
þegar billinn nær 120 km hraða á
klukkustund rís vindskeið aftan
af honurii, sem er vafalaust afskap-
lega töff.
TopGear enn á
ferö á íslandi
Óhætt er að segja að bílaþátturinn
TopGear, sem sýndur er á Skjá 1,
hafi blásið lífi í alla umfjöllun um
bíla hér sem annars staðar þar sem
þátturinn hefur verið sýndur, því
hann er í senn fræðandi og skemmti-
legur. I liðinni viku voru þáttagerð-
armenn BBC við myndatökur fyrir
TopGear hér á landi og má búast
við árangrinum á skjánum eftir
nokkrar vikur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem BBC
tekur upp hér á landi en skemmst er
að minnast heimsóknar þeirra Jer-
emy Clarkson, aðalstjórnanda þátt-
arins, og hjálparkokkanna Richard
Hammond og James May síðastliðið
vor þegar þeir tóku upp meginefni
tveggja þátta um þrjá blæjusport-
bíla hér á landi. Að þessu sinni var
Richard Hammond bins vegar einn
á ferð.
Myndatökurnar fóru fram við
Jökulsárlón og meðal annars kom
við sögu vélknúinn kajak. Richard
Hammond sagði við fulltrúa FÍB á
staðnum, að þeir hefðu verið mjög
heppnir með veður og birtu í mynda-
tökunum að þessu sinni og alls ekki
síður en i fyrravor. Hann ítrekaði
hrifningu sína og félaga sinna á að-
stæðum hér á landi til myndatöku
fyrir þáttinn og öllu viðmóti og við-
urgerningi hér á landi í tengslum
við þessa vinnu þeirra.
Ólafur Kr. Guðmundsson, varaformaður
FlB, og Richard Hammond frá TopGear
við Jökulsárlón í síðustu viku.
Smáauglýsingar
510-3737
Auglýsingadeild
510-3744
blaöió=
KÓPAL Glitra
Þekur betur
Kópal Glitra þekur betur, ýrist sama og ekkert og er svo til lyktarlaus.
Spurðu um KÓPAL.
Útsölustaðlr Mólnlngar: Byko Kópavogi • Byko Hringbraut • Litaver Grensásvegi • Byko Hafnarfiröi • Málningarbúöin Akranesi
Byko Akranesl • Axel Þórarinsson, málarameistari, Borgarnesl • Verslunin Hamrar, Grundarfiröl • Litabúöin Ólafsvlk
Núpur byggingarvöruverslun, ísaflröi • Vilhelm Guöbjartsson, málarameistarl, Hvammstanga • Verslunln Eyrl, Sauöárkróki
Byko Akureyri • Verslunin Valberg, ólafsfiröl • Byko Reyóarfirði • Verslunin Vík, Neskaupstaö • Byko Selfossi
Miöstööin Vestmannaeyjum • Byko Keflavlk • Rúnar Slg. Sigurjónsson, málarameistari, Grlndavlk
máfning
- það segir sig sjálft -