blaðið - 11.04.2006, Síða 30
30 I ÍPRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR ll.APRÍL 2006 blaöið
Hugþrautin
Hugþrautin er vikulegur liður á íþróttasíðu
Blaðsins. Tveir menn úr íþróttaheiminum
mœtast í spurningaeinvígi og tengjast allar
spurningarnar íþróttum á einn eða annan
hátt. Reglurnar eru einfaldar: keppend-
urnir fá sömu 16 spurningarnar og sá
sem hefurfleiri rétt svör heldur áfram
en sá sem taparfœr að velja næsta
andstæðing sigurvegarans. Tak-
ist einhverjum að sigra fimm
keppnir í röð verður hann
krýndur Hugþrautarmeistari
og fær að launum veglegan
verðlaunagrip.
Ásgrímur Albertsson
Leikmaður HK í knattspyrnu
Patrekur Jóhannesson
Leikmaður Stjörnunnar í handknattleik
1. Frá hvaða borg kemur ítalska
knattspyrnuiiðið Lazio?
P: Róm
Á: Róm
2. Hvaða þekkti íþróttamaður
lék í kvikmyndunum Kazaam,
Steelog BlueChips?
P: Jordan
Á: Shaquille O'Neill
3. Hvaða þjóð er þrefaldur
Ólympíumeistari í handknatt-
ieik kvenna?
P: Danmörk
Á: Noregur
4. f hvaða íþróttagrein vann
Skotinn Stephen Hendry sjö
heimsmeistaratitla á 10. ára-
tugnum?
P: Snóker
Á: Snóker
5. Hvaða grunnskóli sigraði
keppnina Skólahreysti 2006,
sem fram fór á dögunum?
P: Ég veit það ekki
Á: Salaskóli
6. Hvaða boxarar börðust í
hinum heimsfræga„Rumble
in the Jungle" bardaga sem
háður var í Afríkuríkinu Zaire
árið 1974?
P: Hef ekki hugmynd
Á: Muhammad Ali og George
Foreman
7. Hvers lenskur er Formúluöku-
maðurinn Jacques Villen-
euve?
P: Kanadískur
Á:Franskur
8. Hver er fyrirliði íslenska
kvennalandsliðsins í knatt-
spyrnu?
P: Ásthildur Helgadóttir
Á: Ásthildur Helgadóttir
9. Hvará landinu starfar íþrótta-
félagið Hvöt?
P: Blönduósi
Á: Blönduósi
10. Hver er þjálfari spænska
handknattleiksliðsins Ciudad
Real, sem Ólafur Stefánsson
leikurmeð?
P: Talant Dujshebaev
Á: Dujshebaev
11. Hvaðnefnistverðlaunagrip-
urinn sem hlýst fyrir sigur í
(slandsglímunni?
P: Grettisbeltið
Á: Grettisbeltið
12. Hvaða tveir fslendingar leika
LENGJAN
LEIKIR DACSINS
Spilaðu á naesta sölustað eða á lengjan.is
Leoben - Kapfenberg 1,60 2,95 3,50
París SG - Lille 1,85 2,75 2,90
Pasching - Rapid Vín 1,85 2,75 2,90
Exc. Mouscron - Charleroi 2,00 2,70 2,65
Frankfurt - Bielefeld 1,85 2,75 2,90
Colchester - Hartlepool 1,50 3,00 4,00
Swansea - Swindon 1,40 3,20 4,50
Walsall - Bournemouth 2,00 2,70 2,65
Rochdale - Carlisle 2,90 2,75 1,85
Udinese - Inter 3,35 2,90 1,65
Lyon - Marseille 1,40 3,20 4,50
Linfield - Drogheda 1,70 2,85 3,25
með enska 1. deildarliðinu
Reading?
P: Brynjar Björn Gunnarsson
og ívar Ingimars.
Á: fvar Ingimarsson og
Brynjar Björn Gunnarsson.
13. Hvar verða sumarólympíuleik-
arnir haldnir árið 2012?
P: Ekki var það London? Nei,
eir verða í New York.
:London
14. Þjálfarinn Konstantin Sheved
var nýverið dæmdur í langt
bann fyrir að kalla íslenskt
kvennalið af leikvelli í
miðjum leik. f hvaða íþrótta-
grein var þetta?
P: Blaki
Á: Blaki
15. Hvað heitir aðalmarkvörður
Manchester United?
P: Er það ekki einhver Banda-
ríkjamaður? Nei, ég er ekki
með þetta.
Á: Edwin van der Sar
16. Hvorereldri, EiðurSmári
Guðjohnsen eða Guðjón Valur
Sigurðsson?
P: Eiður Smári.
Á: Eiður Smári.
Ótrúleg frammi-
staða hjá Ásgrími
Ásgrímur sigrar Patrek með 14 réttum svörum gegn 11.
Patrekur bar sig vel eftir keppnina
enda stóð hann sig með ágætum
þrátt fyrir að lúta í lægra haldi. „Þetta
var hörkurimma og allt annað en
keppnin á móti Arnari i síðustu viku.
Vanmat og ekki vanmat, ég veit það
ekki. Ég ætla ekkert að vera að væla,“
sagði Patrekur. „Maður verður bara
að taka þessu. Ég er nokkuð sáttur
með frammistöðu mína en var þó að
klikka á spurningum sem ég átti að
taka, eins og t.d. með Ólympíuleikana.
Á heildina litið er ég sáttur þó það sé
auðvitað leiðinlegt að vera dottinn út.
En svona er þetta, maður vinnur ekki
alltaf," sagði Patrekur.
Ekki náðist í Ásgrím eftir að úrslit
lágu fyrir þar sem hann hélt utan í
æfingabúðir til undirbúnings fyrir
Hugþrautina.
bjorn@bladid.net
Rétt svör:
1. Róm
2. Shaquille O'Neill
3. Danmörk
4. Snóker
5. Salaskóli
6. Muhammad Ali og George Foreman
7. Kanadískur
ínæstu viku...
Þar sem Patrekur hefur lokið keppni
fékk hann að velja næsta andstæð-
ing Ásgríms. Ákvað hann að skora
á Svavar Vignisson, handknattleiks-
mann úr IBV og lögreglumann.
,Svavar er besti línumaður landsins í
dag og nú er bara að sjá hvort hann
sé jafn klár í þessu og handboltanum.
Ég held að hann geti vel skákað Ás-
grími,“ sagði Patrekur. Svavar tók
áskoruninni að sjálfsögðu og verður
spennandi að sjá hvort Eyjamaður-
inn nær að velta HK-ingnum Ásgrími
úr sessi.
8. Ásthildur Helgadóttir
9. Blönduósi
10. Talant Dujshebaev
11. GrettisbeítiS
12. Brynjar Björn Gunnarsson og Ivar
Ingimarsson
13. Lundúnum
14. Blaki
15. Edwin van der Sar
16. Eiður Smári Guöjohnsen
Skeytin inn
Wayne Rooney, leik-
maður Manchester
United, neitar því
að ósætti ríki milli hans og Mi-
chael Owens, leik-
manns Newcastle,
en saman mynda
þeirframherjapar
enska landsliðs-
ins. Fjölmiðlar á
Bretlandseyjum
greindu frá því
um helgina að Rooney skuldaði
tæpar hundrað milljónir króna
vegna fjárhættuspila sem Owen
hefði kynnt hann fyrir. Var sagt
að Rooney væri öskureiður 0 wen
vegna þessa en sá síðarnefndi
hefur um árabil verið þekktur
fjárhættuspilari. „Sögusagnir
um að Wayne og Michael séu
ósáttir og deila ríki þeirra á milli
eru með öllu ósannar, a.m.k. af
hálfu Waynes,“ sagði talsmaður
Rooneys. „Þeir
eru mjög góðir fé-
lagar og vinátta
þeirra byggist á
gagnkvæmrivirð-
ingu. Það hefur
ekki breyst.“ Tals-
maður Owen tók
í sama streng og sagði að þeir
væru bestu vinir og að þeir hlökk-
uðu mikið til að spila saman á
HM í sumar.
Oliver Kahn, markvörður
Bayern Múnchen, ætlar
að halda áfram að leika
með þýska landsliðinu þrátt
fyrir að hafa
misst stöðu sína
í byrjunarliðinu.
Jurgen Klins-
mann, landsliðs-
þjálfari Þýska-
lands, tilkynnti
fyrir helgi að
Jens Lehmann myndi standa á
milli stanganna á heimsmeist-
aramótinu í sumar, en hann
hefur átt frábært tímabil með Ar-
senal á meðan Kahn hefur leikið
illa að undanförnu. Lehmann
á að baki 29 landsleiki en hann
hefur verið varamarkvörður
Kahns á undanförnum fjórum
stórmótum. Kahn, sem var fyrir-
liði Þjóðverja á HM 2002, hefur
hins vegar leikið 84 landsleiki.
„Ég má ekki vera hégómagjarn og
yfirgefa liðið. Ákvörðunin hefur
verið tekin og ég þarf einfaldlega
að sætta mig við hana. Liðið, og
þar á meðal Jens Lehmann, fær
allan minn stuðning,“ sagði
Kahn á blaðamannafundi í gær.
„Ég held að það sé mikilvægt fyrir
strákana að ég verði með þeim í
sumar, þrátt fyrir vonbrigði
mín.“
Sam Allerdyce, stjóri Bolton,
segist hafa áhuga á að fá
Robbie Fowler til liðsins
fari svo að Liverpool láti hann
fara eftir timabilið. „Liverpool
hefur átt í vand-
ræðum með að
skoramörkátíma-
bilinu þannig að
ef Robbie heldur
áfram að skora
munu þeir vilja
halda honum. Vörnin hjá þeim
hefur aftur á móti verið stórkost-
leg og þannig viljum við að vörn
Bolton verði á komandi árum,“
sagði Allerdyce. Fowler hefur
verið að bæta sig með hverjum
leiknum og á sunnudaginn hélt
hann upp á 31 árs afmælið sitt
með því að skora sigurmarkið
í viðureign Bolton og Liverpool.
Samningur Fowlers rennur út í
júlí og hefur hann lýst því yfir
að hann vilji vera áfram í röðum
Rauða hersins.