blaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 18

blaðið - 09.06.2006, Blaðsíða 18
261 TÍSKA FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ 2006 blaöiö Snyrtivörur i þágu mannréttinda The Body Shop var stofnað af Anitu Roddick árið 1976 sem hóf að framleiða og selja heimagerðar vörur úr náttúrulegum efnum. Hugmynd Anitu að þróa snyrti- vörur með náttúrulegum inni- haldsefnum og umhverfisvænum og einföldum umbúðum hlaut fljótlega byr undir báða vængi og fyrirtækið óx hratt. Til að byrja með var vöruúrvalið takmarkað og aðeins 25 vörur stóðu viðskipta- vinum til boða en á undanförnum áratugum hefur vöxtur fyrir- tækisins verið mikill og eru nú starfræktar um 2.000 Body Shop verslanir í 50 löndum víðs vegar um heiminn. Búðunum og vöruflokkunum hefur ekki aðeins fjölgað heldur nýtur fyrirtækið líka mikils trausts hjá neytendum og hefur hlotið viðurkenningu bresku neyt- endasamtakanna fyrir að vera áreiðanlegt og traust. Body Shop nýtur einnig mikillar virðingar í heimi viðskipta og fjármála. Umhverfisvernd og mannréttindi The Body Shop hefur frá upphafi lagt mikla áherslu á umhverfisvænar vörur og hefur fyrirtækið beitt sér fyrir breytingum til batnaðar bæði í um- hverfis- og mannréttinda- málum. Mark- mið Body Shop keðj- unnar hefur verið að koma til móts við kröfur nútím- ans án þess að stofna framtíð- inni í hættu. Body Shop hóf snemma við- skipti við fátæk samfélög og á eins árs tímabili keypti Body Shop vörur fyrir milljónir punda í gegnum The Community Trade Programme sem fól í sér kaup á um 400 tonnum af náttúrulegum hráefnum, til að nota í vörur sínar, frá fátækum samfélögum víða um heim. Með þessu hefur fyrirtækið komið á fót traustum viðskiptasam- böndum við bágstödd samfélög og hefur það þannig séð íbúum þess- ara svæða fyrir atvinnu og traustumtekjum. Fyrirtækið skiptir nú við 29 comm- unity trade birgðasala í 23 löndum og verkefnið sér meira en 10.000 manns víðs vegar um heiminn fyrir atvinnu. Make Me Fabulous förðun- arlínan kynnt í París Nýverið var haldinn blaðamanna- fundur í París þar sem Body Shop kynnti nýja förðunarlínu sem kemur í verslanir hér á landi í haust. Um er að ræða 250 nýjar vörutegundir sem hægt er að nota við hvaða tilefni sem llbelladonnan er. Þær voru þróaðar í sam- vinnu við Chase Aston sem er heimsþekktur förðunarfræðingur og hefur farðað fyrir mörg af stærstu tísku- húsunum í Evrópu. Við hönnun Make Me Fabulous línunnar var mikið lagt upp úr hönnun umbúð- anna sem eru mjög glæsilegar en engu að síður einfaldar og þægilegar í notkun. Vörurnar gera not- andanum kleift að prófa sig áfram og lögð er áhersla á að notandinn geti blandað saman og leikið sér með hinar og þessar vöruteg- undir þegar kemur að litum, áferð og tónum. Við hönnun línunnar lagði Body Shop áherslu á að það væri hægt að sam- nýta hinar og þessar vörur. Þannig er t.d. hægt að nota vara- liti sem kinnaliti og liti fyrir augabrúnir sem augnskugga. Innihaldsefnin í vörunum eru nátt- úruleg og innihalda marula olíu sem er fengin með viðskiptum við Eudafano konur í Norður-Nami- bíu. Marula olían mýkir og nærir húðina og gerir hana geislandi af ferskleika og fegurð. Grunnfarðar og hyljarar f nýju línunni má finna fjölbreyttar, fallegar og fágaðar vörur hvort sem förðunin á að vera stíl- hrein og falleg eða dram- atísk og glæsileg. Grunn- farðar og hyljarar koma í nokkrum litatónum og eru léttir og mjúkir. Þeir ganga vel inn í húðina og gera hana mjúka og tæra. Lighten- ing Touch er hyljari sem lýsir upp dökk svæði undir aug-' unum en virkar einnig vel á kinn- bein og annars staðar til þess að gefa húðinni geislandi og slétta áferð. Ásamt því að gefa húðinni fallegra yfirbragð þá eru vítamín í förðunum frá Body Shop sem næra húðina og viðhalda ferskleika hennar. Kinnalitir Kinnalitirnir í nýju línunni koma i ýmsum litum og tónum og gefa húð- inni mismunandi áferð. Hægt er að skapa fagurrjóðar og náttúrulegar kinnar með kinnalitunum eða nota þá til þess að draga fram kinnbeinin. Kinnalitirnir koma í hefðbundnu formi en einnig er hægt að fá blauta liti í litlum túbum sem endast mjög lengi. Blauti kinnaliturinn hefur þéttan olíugrunn sem gerir það að verkum að það er auðvelt að bera hann á. Hann fer vel inn í húðina og verður við það púðurkenndur og léttur. 30% ■ 50% afsláttur af völdum vörum í dag og á morgun Vertu þú sjálf vertu Belladonna www.belladonna.is Hlíðasmára 11* Kópavogi • sími 517 6460 Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-15 Sólarpúður og bronslitir Make Me Fabulous Bronzing & Illuminating er nýja sólarlína frá Body Shop. Litatónarnir í þessum vörum eru ótrúlega fallegir og gera húðina ferska, ljómandi og sumar- lega og henta til notkunar allt árið um kring. Eins og í hinum vörunum eru nærandi efni í þessari línu sem endurnæra þreytta húð. Bronsburstann má nota á andlit og líkama og með einni stroku er þreytulegt yfirbragð horfið og fal- legur og hraustlegur gljái kominn í staðinn. Shimmer Sun gelin eru nýjung í þessari línu og gefa húð- inni geislandi yfirbragð. I þeim eru virkilega fallegir litatónar og perlu- agnir sem endurkasta ljósi og gera húðina bjartari en ella. Eins er hægt að nota Sheer Sun Gel með Glow Enhancer sem gefur bjarta og geislandi áferð og á að nota á þau svæði í andliti sem taka mestan lit í sólinni eins og kinnbein, enni, nef og höku. Kinnalitur í Golden Pink er mjög fallegur með bronslitunum ___— og gefur hraust- legan lit. augunum fallegan og djúpan lit. Varalitir, gloss, varablýantar... Varalitirnir koma í djúpum og heill- andi litum og varablýantarnir henta vel til þess að móta varirnar þar sem þeir eru mjög mjúkir og góðir. Einnig er hægt að fá lituð gloss sem haldast vel á vör- unum og eru ekki klístruð. Body Shop Lip & Cheek Stain er hægt að nota bæði á varir og kinnar en liturinn Augnskuggar, maskarar, augnblýantar... Mikið úrval er af augnskuggum, möskurum og augnblýöntum í Make Me Fabulouslínunni. Glæsilegir litir og litatónar gefa augunum fallega áferð og umbúðirnar eru mjög klassískar. Body Shop hefur tekist að hanna línuna með glæsilegum lita- tónum sem gera mikið fyrir húðina og henta hvaða konu sem er. Augn- skuggana, sem eru sér- staklega mjúkir og einfaldir í notkun, má nota saman og suma þeirra er einnig hægt að nota með augnblýanti til þess að fá fram dramat- íska og spennandi áferð. Litirnir haldast vel á augnlokunum og er hægt að fá þá bæði sanseraða og matta. Eins er hægt að fá Cream Eye Colur frá Body Shop. Það eru blautir augnskuggar sem gefa augn- lokunum perlu- bjarta áferð og er jafnvel hægt að setja á kinnbeinin til þess að leggja áherslu á þau. Fyrir augabrúnirnar er hægt að fá pallettu með tveimur litum og tvöföldum bursta til þess að dekkja og móta brúnirnar en einnig er hægt að nota litina sem augnskugga og gefa tónarnir gerir kinnarnar fallega rjóðar og hraustlegar. New Sheer Lip Shine er þunnur varalitur sem gefur vör- unum náttúrulegt yfirbragð ásamt fallegum og eðlilegum lit. I Sheer Lip Shine eru A og E vítamín ásamt marula olíu sem gefur vörunum auk- inn raka. Make Me Fabulous línan frá Body Shop býður upp rj á mikla notkunarmögu- I leika enda mikill fjöldi af vörum í boði. Vörurnar eru ekki einungis fallegar og einfaldar í notkun heldur henta þær líka hverjum sem er þar sem úrvadið er mjög fjölbreytt og notendavænt. Stefna fyrir^ækisins í umhverfis- og mannréttindamálum gerir'iþað líka að verkum að néytendur styðja með viðskiptum sínum við þörf málefni og gera Body Shop kleift að halda áfram að styðja við bágstödd samfé- lög um heim aílan. hilda@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.