blaðið - 28.06.2006, Side 2

blaðið - 28.06.2006, Side 2
2IFRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 blaAÍA blaðKÉ^ Hádegismóum 2,110 Reykjavík Sími: 510 3700 •www.vbl.is FRÉTTASÍMI: 510 3799 netfang: frettir@bladid.net AUGLÝSINGADEiLD: 510 3744 netfang: auglysingar@bladid.net Lánshlutfall íbúðalána- sjóðs lækkað Ríkisstjórnin ákvað í gær að lækka lánshlutfall Ibúðalána- sjóðs frá og með 1. júlí nk. Hlut- fallið mun þá lækka úr 90% í 80% og gildir það þar til annað verður ákveðið. Einnig hafa hámarkslán verið lækkuð úr 18 milljónum i 17. Þetta er gert til að stuðla að því með ótvíræðum hætti að markmið um hjöðnun verðbólgu gangi eftir sem fyrst. Úrskurður felldur úr gildi Úrskurður setts umhverfisráð- herra, Jóns Kristjánssonar, þar sem heimiluð var gerð set- og miðlunarlóns norðan og vestan Þjórsárvera og veituskurðar í Þjórsárlón án mats á umhverf- isáhrifum, var felldur úr gildi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Einnig var Landsvirkjun stefnt og íslenska ríkinu en þau voru sýknuð af kröfum stefn- enda. Hópur náttúruverndar- sinna ásamt Hjörleifi Guttorms- syni höfðuðu málið. Hjörleifur segir í viðtali að úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur sé stórsigur fyrir umhverfisvernd- arsinna og vonar að fallið verði frá fyrirhuguðum áformum um Norðlingaölduveitu í Þjórsár- verum. Islenska ríkinu var gert að greiða allan málskostnað eða eina og hálfa milljón alls. Of seint í rassinn gripið Forystumenn stjórnarandstöðunnar segja lítið til aðgerða koma sem ríkisstjórnin kynnti í gær og er ætlað að slá á verðbólguna. Viðbrögðin komi of seint, séu of lítil og forsjálni vanti. Eftir Gunnar Reyni Valþórsson Ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá því í gær þess efnis að fresta fram- kvæmdum og draga úr lánum Ibúða- lánasjóðs fær dræmar undirtektir hjá stjórnarandstöðunni. Svör vanti í sambandi við stóriðjustefnuna og þær ákvarðanir sem teknar hafi verið í gær vegi lítið þegar litið sé á hlutina í stærra samhengi. Álframkvæmdir ættu að vera undir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for- maður Samfylkingarinnar, segir að yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, sú í gær og einnig sú sem gefin var út í tengslum við kjarasamningana á dögunum, séu áhugaverðar út frá einu atriði. „Það er, að ríkisstjórn- arflokkarnir hafa viðurkennt að engin innistæða hafi verið fyrir þeim kosningaloforðum sem þeir gáfu fyrir síðustu kosningar." Ingi- björg bendir á að sjálfstæðismenn hafi svikið loforðið um að lækka álagningarprósentuna og að nú séu framsóknarmenn að draga í land með loforðið um 90% lán til húsnæð- iskaupa. „Þetta þarf reyndar ekki að koma á óvart vegna þess að það er margbúið að benda þeim á það að þessi loforð voru mikill hvati fyrir þá þenslu og þann óstöðugleika sem varð í þjóðfélaginu. Þeir eru loksins að viðurkenna þetta núna en hefðu betur gert það fyrr. Þetta er því heldur seint í rassinn gripið finnst mér.“ Ingibjörg segir að erfitt sé að tjá sig um frestanir framkvæmda þar sem ekki hafi fylgt útlistun á því um hvað sé nákvæmlega að ræða. „Það sem vantar inn í þessa mynd eru fyrirhugaðar álframkvæmdir. Þær þurfa auðvitað að vera undir í þessu líka, því þar liggja stóru upphæðirnar." Einn stór brandari „Það má segja að það sé bót í þeirri viðurkenningu ríkisstjórnarinnar að það sé vandi á ferðum," segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. „Það er þá af sem áður var, þegar þeir neituðu öllu.“ Stein- grímur segir að þegar betur sé að gáð vegi þessar boðuðu aðgerðir þó ekki þungt. „Þetta er annars vegar viðleitni til þess að vinda ofan af vitleysunni í húsnæðismálunum. Þar með er stjórnin að viðurkenna þau mistök sem gerð voru á sínum tíma með 90% lánum. Hins vegar grípa þeir til þeirrar gamalkunnu aðferðar að fresta nokkrum vegar- spottum. Það vegur nú ekki þungt og menn kannast nú ekki við að landsbyggðin sé aðalsökudólgurinn í þeirri þenslu sem ríkt hefur.“ Steingrlmur segir að á meðan ekki sé hróflað við þeirri stóriðjustefnu sem ríkisstjórnin aðhyllist, þar sem um sé að ræða hundruð milljarða en ekki nokkra milljarða, þá breyti þessar aðgerðir litlu. „Það eru þrjú risavaxin stóriðjuverkefni í undir- búningi og þess verður ekki vart að ríkisstjórnin ætli sér að snúa frá villu síns vegar þar. Þá er þetta eins og einn stór brandari, að ætla sér að fresta einhverjum vegarbútum.“ Varasamt að fresta vegaframkvæmdum Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist setja fyrirvara við að vegaframkvæmdum verði frestað. „Það var sett flýtifé í vegaframkvæmdir 2003 sem síðar var allt tekið til baka. Síðan átti að gera skurk í þessum málum á síðari hluta þessa árs og á því næsta. Ef menn ætla síðan að skera það allt niður held ég að fari nú að fara um fólk á þeim svæðum þar sem þenslan hefur ekki ennþá fundist.“ Guðjón bendir á að umferðin sé sífellt að auk- ast. „Flutningarnir eru allir komnir á vegina og ég sé bara ekki hvernig við getum leyft okkur að fara í nið- urskurð á vegaframkvæmdum, að minnsta kosti þar sem vegirnir eru hvað verstir." Guðjón segir að mun frekar sé reynandi að fresta framkvæmdum á höfuðborgarsvæðinu og nefnir hann til sögunnar tónlistarhús í Reykjavík og byggingu hátækni- sjúkrahúss. „Ég held að menn verði að draga saman þar sem þenslan er til staðar ef þetta á að virka til þess að draga úr verðbólgunni.“ Hann segir að forsjálni vanti í stefnu rík- isstjórnarinnar. „Ríkisstjórnin var síðast að hækka hámarkslán til íbúðakaupa í april. Þá var hækkað í 18 milljónir og síðan á að fara að lækka lánin örfáum mánuðum síðar. Það er ekki hægt að segja að það sé mikil forsjálni í þessu.“ gunnar@bladid.net ■ m m WW Æ Æm £Lm oiuuiu/mnK Dorgkeppni 1 Hafnarfirði Þessar hafnfirsku hnátur báru sig fagmannlega að við dorgkeppni á bryggjustúf í höfninni suður í Firði. Gæftir og aflabrögð voru eins og við var að búast I blíðunni; koli, ufsi og marhnútur. Heildarkostn- aður VG um 12 milljónir Heildarkostnaður Vinstrihreyf- ingarinnar-græns framboðs vegna nýafstaðinna sveitar- stjórnarkosninga var samtals um 12-12,5 milljónir króna sam- kvæmt bráðabirgðauppgjöri. Útlagður kostnaður flokksins á landsvísu við kosningarnar nam 4-4,5 milljónum króna. 1 fréttatilkynningu segir að sá kostnaður felist m.a. í launa- greiðslum, fundahaldi, ferða- kostnaði, hönnun og prentun, framleiðslu barmmerkja, send- ingarkostnaði, happdrætti og auglýsingum. Þessu til við- bótar veitti flokkurinn styrki til framboða á vegum hans og námu framlögin um 8 millj- ónum króna, þannig að heildar- kostnaðurinn varð 12-12,5 millj- ónir króna. 0 Helðskirt w LáttslfVJaðÍÍ*. Skýjað Alskýiað^k Rignlng.lltilsháttar^ShRigning-'dlS.Súld & '■* Sn|6komaÍÍ^> Slyddaífei. Snjðél'fi-^Skúr iiibJlh' Algarve 23 Amsterdam 17 Barcelona 27 Berlín 23 Chicago 17 Dublin 13 Frankfurt 23 Glasgow 19 Hamborg 17 Helsinki 21 Kaupmannahöfn 15 London 21 Madrid 26 Mallorka 29 Montreal 20 NewYork 23 Orlando 25 Osló 17 París 23 Stokkhólmur 20 Vín 25 Þórshöfn 11 Veðurhorfur í dag kl: 15.00 Veðursíminn 902 0600 Byggt ö upplýsingum frá Voðurstofu Islands Á morgun

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.