blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 9

blaðið - 28.06.2006, Blaðsíða 9
blaöið MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 FRÉTTIR I 9 Stund milli stríða Frelsisstyttan fær sér popp og horfir á körfuboltaleik í Madison Square Garden í New York. Myndin er úr Ijósmyndabók Grétu Pratt. f bókinni er aö finna safn Ijósmynda sem sýna samspil sögu Bandaríkjanna við nútímann. Grilla til að viðhalda kastljósi umheimsins Namibíumenn njóta þessa dagana þeirrar frægðarsólar sem skín á land þeirra í kjölfar þess að fyrsta barn þeirra Brads Pitts og Angelinu Jolie fæddist í landinu í síðasta mán- uði. Til þess að tryggja að landið haldi athygli umheimsins hefur verið ákveðið að halda þar heims- ins stærstu grillveislu í september. Veislan verður haldin á knattspyrnu- leikvangi í höfuðborginni Wind- hoek, og verða grilluð um níu tonn af pylsum ofan í gestina sem verða um 45 þúsund. Forseti Namibíu, Hifikepunye Pohamba, verður sérstakur heiðurs- gestur. Hann verður númer 44.159 í röðinni en þegar hann verður búinn að fá pylsuna hafa Namibiumenn slegið heimsmet Ástrala, sem er staðfest af Heimsmetabók Guinness. Fyrst kom barn Brads og Angelinu - og svo kom grill. Þeir grilluðu pylsur ofan í 44.158 manns árið 1993. Grillveislan er í boði stærstu kjöt- vinnslu Namibíu, Meatco. Ekki hefur verið staðfest hvort Namibíu- vinirnir Pitt og Jolie verði meðai gesta í grillveislunni. Þjóðarsátt Malikis frösk móöir fagnar sonum sínum sem var sleppt úr Abu Ghraib fangelsinu í Bagdad í gær. Hluti af áætlun Nouri al-Malikis, forsætisráðherra fraks, um þjóöarsátt felst meðal annars í stórfelldum náðunum fanga. Eftir Örn Arnarson Áætlunin sem Nouri al-Maliki, forsætisráðherra íraks, boðaði á sunnudag um þjóðarsátt í land- inu hefur fengið hlendin viðbrögð. Um sjötíu manns hafa látið lífið í sprengingum frá því að forsætis- ráðherrann tilkynnti um áætlun sína í þinginu og bendir það til að skálmöldinni sem hefur geisað sé ekki að ljúka. Á sama tíma hafa mikilvægir hópar súnníta fagnað áætluninni á meðan þungavigtar- menn í bandarískum stjórnmáium gagnrýna hana. Áætlun Malikis felur meðal ann- ars í sér að ákveðnir hópar upp- reisnarmanna verði náðaðir og fái aðild að hinu pólitíska ferli í land- inu. Tilboðið er tilraun írösku ríkis- stjórnarinnar til þess að reka fleyg á milii uppreisnarhópa í landinu. Þeir samanstanda annarsvegar af þjóðernissinnuðum iröskum súnn- ítum og hins vegar hópum íslam- ista sem eru meðal annars skipaðir erlendum vígamönnum. Tilboðið nær eingöngu til þeirra fyrrnefndu enda er talið að síðarnefndi hópur- inn, sem hefur tengsl við al-Qaeda- hryðjuverkanetið og önnur öfl sem berjast fyrir stofnun íslamsks ríkis í löndum Araba, sé fyrst og fremst skipaður erlendum vígamönnum. Það eina sem hefur sameinað þessa hópa er baráttan gegn sameigin- legum óvini. Tilbúnirtil viðræðna Bandaríska blaðið New York Times hefur sagt að sjö uppreisnarhópar, sem eru meira minna skipaðir stuðningsmönnum Saddams Hus- seins, hafi sent út þau skilaboð á mánudag að þeir séu reiðubúnir til viðræðu við stjórnvöld. Þingmenn, sem tilheyra stjórnmálaflokki forsætisráðherrans, hafa staðfest þetta og segja að al-Maliki íhugi nú að hitta leiðtoga þeirra að máli eða ræði við þá gegnum milliliði. Séu þessar fréttir réttar getur ár- angur af slíkum viðræðum orðið til þess að einangra uppreisnar- hópa íslamista í landinu. Að auki myndi einhverskonar samkomu- lag írösku ríkisstjórnarinnar við þjóðernissinnaða uppreisnarhópa sjíta styrkja ríkisvaldið í írak og gera að verkum að það ætti auð- veldara með að tryggja öryggi þegn- anna. Slíkt myndi eðli málsins samkvæmt hraða brottkvaðningu bandaríska herliðsins. En vissulega þarf margt að ger- ast til þess að þetta gangi upp og engin ástæða er til þess að fyllast bjartsýni á framhaldið. í áætlun Malikis kemur ekki skýrt fram hvaða hópar uppreisn- armanna eiga möguleika á uppgjöf saka og við hvaða hópa íraska rík- isstjórnin er tilbúin til viðræðna. Ljóst er að eigi áætlun Malikis að skila einhverjum árangri þurfa stjórnvöld að ræða við hópa sem eru sekir um árásir sem bæði þau og bandarísk stjórnvöld skilgreina sem hryðjuverk. Margir stjórn- málaskýrendur telja að hinn pól- itíski veruleiki í írak kaili á slíkar viðræður. En þótt þær séu hugsanlegar er ljóst að þær fengju seint náð fyrir augum bandarískra stjórnmála- manna. Fyrstu viðbrögð þunga- vigtarmanna í bandarískum stjórn- málum við áætlun Malikis komu fram í fjölmiðlum á sunnudag. Af þeim var ljóst að margir þingmenn úr röðum demókrata og repúblik- ana lýsa sig algjörlega mótfalina því að íraska ríkisstjórnin gangi til viðræðna við hópa sem þeir líta á sem hryðjuverkamenn sem beri ábyrgð á voðaverkum gegn banda- rískum hermönnum orn@vbl.is 20% afsláttur Húðvörurnarfrá Gamla apótekinu eru án viðbættra litar- og ilmefna. Þær eru góður kostur fyrir alla, ekki síst þá sem þola illa aukaefni í kremum Afsláttur gildir út júní Apótekarínn -CyfA 0*gr<* verðil Nóatúni 17« Akureyri • Mjódd • Smiðjuvegi Samkomulag á milli Hamas og Fatah israelskur hermaður hvílir sig viö landamærin viö Gaza í gær. Þrátt fyrir aö samkomulag sé í höfn meðal helstu stjórnmálaafla Palestínumanna er spennan á svæöinu mikil Hamas-samtökin og Fatah-hreyf- ingin hafa náð samkomulagi sem felur í sér tveggja ríkja lausn á deilu Palestínumanna og ísraelsmanna. Ríki Palestínumanna myndi ná til hernumdu svæðanna svoköll- uðu. Með því að fallast á þetta eru Hamas-samtökin óbeint að fallast á lögmæti tilvistar Israelsríkis en fram til þessa hafa samtökin hafnað tilverurétti þess. En þrátt fyrir að samkomulagið feli í sér óbeina viður- kenningu fellst Hamas ekki á tilveru- rétt ísraels og var sú afstaða ítrekuð af þingmönnum samtakanna í gær. Talsmaður ísraelsstjórnar sagði í gær samkomulagið palestínskt inn- anríkismál og að stjórnvöld myndu ekki taka upp viðræður af nokkrum toga við Hamas fyrr en samtökin féll- ust á fyrri kröfur þeirra. Samkomulagið, sem er byggt á skjali sem leiðtogar frelsisbar- áttu Palestínu sem eru i haldi í ísraelskum fangelsum lögðu fram fyrir nokkru, er í höfn eftir langar og strangar samningaviðræður á milli fulltrúa Hamas, sem leiðir ríkisstjórn Palestínu, og Mahmoud Abbas, forseta Palestínu og leiðtoga Fatah. Abbas hafði hótað að visa samkomulaginu til þjóðaratkvæð- isgreiðslu féllist ríkisstjórn Hamas ekki á það án mikilla breytinga. Á sama tíma og þessar viðræður hafa farið fram hefur mikil spenna ríkt á milli meðlima hreyfinganna tveggja og ríkisstjórn Hamas hefur verið nánast ófær um að stjórna landinu sökum alþjóðlegrar einangrunar. Samkomulagið kveður á um til- vist palestínsks rikis við hlið ísraels og byggir á áætlun sem Arababanda- lagið lagði blessun sína yfir árið 2002, en sú áætlun opnar á mögu- leika á fullum stjórnmálalegum samskiptum við ísraelsk stjórnvöld. í samkomulaginu eru vígamenn hvattir til þess að láta af árásum sínum innan landamæra I sraelsríkis, eins og þau voru skilgreind fyrir Sex dagastríðið árið 1967. Samtökin Heil- agt stríð lýstu því strax yfir í gær að þau teldu sig ekki bundin af sam- komulagi Hamas og Fatah. Þrátt fyrir samkomulagið fer spennan á svæðinu vaxandi. Hópar sem eru sagðir tengdir Hamas-sam- tökunum eru með ísraelskan her- mann í haldi. ísraelski herinn hóf mikinn liðssafnað við landamæri ísraels og Gaza-svæðisins og hótuðu í gær árásum á leiðtoga Hamas yrði hermanninum ekki sleppt úr haldi Dregur úr væntingum neytenda Verulega hefur dregið úr til- trú neytenda á efnahagslífið á síðustu mánuðum. Þetta kom fram í gær í Morgunkorni Glitnis. „Verulega hefur dregið úr tiltrú neytenda á efnahagslífið á síðustu mánuðum. Væntinga- vísitala Gallup stendur nú í 100,8 stigum sem táknar að aðeins örlítið fleiri neytendur eru nú jákvæðir gagnvart að- stæðum í efnahagslífinu en neikvæðir. Vísitalan hækkaði um 4,3 stig á milli maí og júní og gefur það til kynna aukna bjartsýni á meðal neytenda á síðustu vikum. Alls hefur vænt- ingavísitalan þó lækkað um 27 stig frá upphafi árs,“ sagði i Morgunkorni bankans.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.