blaðið - 28.06.2006, Side 10
10 I DEIGLAN
MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 blaöi6
Norrænn þjódfundur 2006
Heimssýn, hreyfing sjálfstæðis-
sinna í Evrópumálum, stendur
fyrir norrænni ráðstefnu á
Nesjavöllum og Laugarvatni dag-
ana 28. - 30. júlí næstkomandi í
samvinnu við norrænu samtökin
Frit Norden. Ráðstefnan Nor-
rænn þjóðfundur 2006 (Nordisk
Folkriksdag 2006) fer nú fram í
fyrsta sinn hér á landi en hefur
áður verið haldin til skiptis í Sví-
þjóð, Noregi og Danmörku síðan
1990.
Frjáls ákvarðanataka?
Hjörtur J. Guðmundsson hjá Heims-
sýn segir að grasrótarsamtökin Frit
Norden standi fyrst og fremst fyrir
áhuga á aukinni norrænni sam-
vinnu. „Hluti af því að hafa áhuga á
aukinni norrænni samvinnu meðal
samtakanna er sú skoðun að að-
ild að Evrópusambandinu sé ekki
hluti af þeirri þróun. Þvert á móti
telja þeir Evrópusambandið standa
auknu norrænu samstarfi fyrir
þrifum. í þessu samhengi má benda
á reynslu Svía af því að vera í Evrópu-
sambandinu en allt frá því að þeir
bættust í hóp aðildarþjóða hafa þeir
verið á ákveðnum klafa innan sam-
bandsins. Þeir geta t.d. ekki lengur
tekið sjálfstæða afstöðu til mála á
borð við þróunaraðstoð og mann-
réttindamál. Ástæðan er sú að þeir
eru skyldugir til að fylgja reglum
Evrópsambandsins í svo mörgum
málum. Norðurlöndin hafa markað
sér ýmsa sérstöðu í gegnum árin
og segja má að Noregur haldi uppi
merki Norðurlandaþjóða í þessum
málum því Danmörk, Finnland og
Svíþjóð eru gengin í Evrópusam-
bandið," segir Hjörtur.
Tímabær umræða
Hjörtur segir að umræða um nor-
ræna samvinnu hafi ekki farið hátt
að undanförnu en hún sé orðin
tímabær að hans mati. „Að mínu
Er þér heitt?
Skrifstpfu-
og tolvukœlar
íshúsid ehfS: 566 6000
Hjörtur J. Guðmundsson telur umræðu um norræna samvinnu þarfa
mati eiga íslendingar að horfa til alls
heimsins og meta stöðuna hverju
sinni. Það verður þó ekki framhjá
því litið að við tengjumst hinum nor-
rænu ríkjunum sterkum böndum,
sögulega og menningarlega. Það er
sjálfsagt að rækta þau tengsl. Þetta
er tímabær umræða því að undan-
förnu hafa hugmyndir heyrst um að
draga beri úr norrænni samvinnu og
að Norðurlandaráð sé úrelt fyrirbæri.
Um þetta virðist ekki hafa farið fram
mikil umræða og þessi ráðstefna er
því innlegg í slíka umræðu,“ segir
Hjörtur.
Viðfangsefni ráðstefnunnar
verða meðal annarra staða Norð-
urlandanna í heiminum, sérstaða
íslands, Noregs, Grænlands og
Færeyja utan Evrópusambandsins,
aukin norræn samvinna sem annar
valkostur við aðild að sambandinu
og íslensk/norræn saga og menn-
ing. Meðal framsögumanna á ráð-
stefnunni verða frú Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrv. forseti Islands,
Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs-
ráðherra, Laila Freivalds, fyrrv. ut-
anrikisráðherra Svía, Mininnguaq
Kleist frá Grænlandi, Steingrímur
Hermannsson, fyrrv. forsætisráð-
herra, Ragnar Arnalds, fyrrv. fjár-
málaráðherra og Ármann Jakobs-
son, íslenskufræðingur.
Aðgangseyrir að ráðstefnunni
er enginn, en þar sem húsrými er
takmarkað eru áhugasamir hvattir
til þess að skrá sig til þátttöku sem
fyrst.
Frekari upplýsingar má finna
á heimasíðu Heimssýnar: www.
heimssyn.is.
Klæjar þig í tærnar?
Gætu þaö verið fótsveppir?
Það er engin ástæða til að láta sér liða illa
á besta tima ársins.
Komdu og fáðu ráðgjöfhjá okkur.
^Lyf&heilsa
Við hlustum!
Lamisil er borið á eínu sinni á dag í eina viku. Hreinsið og þurrkið sýkt svæði vel áður en Lamisil er borið á. Bera skal Lamisil á í þunnu lagi á sýkta
húð þannig að það þekji allt sýkta svæðið. Lamisil er milt og veldur mjög sjaldan húðertingu. Lamisil inniheldur terbinafin sem er sveppadrepandi
(fungisid) efni og vinnur á sveppasýkingum i húð af völdum húðsveppa, gersveppa og litbrigöamyglu (“lifrarbrúnir blettir”). Lamisil á ekki að
nota gegn sveppasýkingum í hársverðí, skeggi eða nöglum nema samkvæmt læknisráði. Það má ekki nota ef þekkt er ofnæmi fyrir terbinafini eða
öðrum innihaldsefnum í Lamisil. Geymist þar sem böm hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningarseðil sem fylgir hverri pakkningu.
Emil Hjörvar Petersen
Upprisukvöld Nykurs
í kvöld fer fram upprisukvöld
Nykurs á Café Rósenberg. Þar
munu skáldin Arngrímur
Vídalín, Davíð A. Stefánsson,
Emil Hjörvar Petersen, Kári
Páll Óskarsson og Urður Snæ-
dal lesa upp úr frumsömdu efni.
Vilja skapa nýjan vettvang
Árið 1995 var Nykur stofnaður af
nokkrum ungum skáldum sem
bókmenntavettvangur og sjálfs-
hjálparbókarforlag. Á vegum Nyk-
urs komu út fyrstu verk skálda og
rithöfunda á borð við Andra Snæ
Magnason, Davíð A. Stefánsson,
Steinar Braga, Ófeig Sigurðsson
og fleiri. Alls komu út 13 bækur á
vegum Nykurs til ársins 2003.
Emil Hjörvar Petersen er einn
af meðlimum Nykurs og hann
gaf sér tíma til að ræða við blaða-
mann Blaðsins um félagsskapinn
og upprisukvöldið. „Félagsskapur-
inn samanstendur af fáum eldri
Nykur-mönnum og síðan af fleiri
ungum skáldum sem eru að feta
sín fyrstu skref í samningu og
útgáfu. Nykur vill skapa nýjan
vettvang og hefur metnað til þess.
Nykur er þá endurreistur á nýjum
forsendum með það að leiðarljósi
að marka félagsskapnum skýrari
stefnu,“ segir Emil Hjörvar.
Eins og fram hefur komið þá var
Nykur sjálfshjálparbókarforlag
en Emil Hjörvar sér ýmsa mögu-
leika á að víkka út félagsskapinn.
„Núna munum við virkilega finna
einhverja stefnumörkun og gera
þetta að bókaforlagi í framtíðinni.
Þessa stundina er þetta þó fyrst og
fremst nýr vettvangur fyrir skáld.“
Stefna gegn stefnum
Aðspurður hvaða stefnu Emil sjái
fyrir sér að Nykur taki þá segir
hann að eina stefnan sé að vera
á móti ákveðinni stefnu. „Við
viljum skoða hvert verk fyrir sig
og líta á gæði þess. Þannig viljum
við afneita því að bókmenntirnar
fari í einhvern farveg, heldur
stuðla að því að frelsi skáldsins
sé í fyrirrúmi. Við reynum frekar
að hjálpa fólki en að ritstýra því,
fyrir utan að sjálfsögðu prófarka-
lestur, umbrot og prentun. En það
að stjórna því hvað fólk á að skrifa
er eitthvað sem viljum ekki,“ segir
Emil Hjörvar.
I gegnum tíðina hefur með
reglulegu millibili sprottið upp
félagsskapur fólks sem reynir að
fóta sig í útgáfu. Sum verða langlíf
og stækka á meðan önnur skína
skært en stutt. Emil Hjörvar segir
að það séu nægar forsendur til að
fara af stað. „Það hefur sýnt sig
sögulega séð á Islandi að þetta
getur gengið upp. Mál og menn-
ing var stofnað þannig, Bjartur og
Nýhil einnig, rétt eins og Nykur á
sínum tíma. Nykur var lausari í
reipunum áður, en núna erum við
að reyna að halda betur utan um fé-
lagsskapinn,“ segir Emil Hjörvar.
I dag eru meðlimir Nykurs 12
talsins og hyggst félagsskapurinn
gefa út þrjár til fjórar ljóðabækur
í haust. „Nokkrir af þeim höf-
undum sem lesa upp á morgun
munu gefa út í haust. Þá eru flestir
í Nykur farnir að huga að útgáfu
og við munum byggja þetta upp
skref fyrir skref. I rauninni býðst
öllum að hafa samband við okkur
sem hafa áhuga á því. Þetta er ekki
lokaður félagssskapur að því leyti,“
segir Emil Hjörvar.
Upprisukvöldið mun fara fram
á Café Rósenberg klukkan 22.00.
Kynnir verður Hildur Lilliendahl
og sérstakur gestalesari verður
Ingibjörg Haraldsdóttir. Allir vel-
komnir og aðgangur er ókeypis.
Nykur var stofnaöur árið 1995 af nokkrum ungum skáldum sem bókmenntavett-
vangur og sjálfshjálparbókarforlag