blaðið - 28.06.2006, Side 14

blaðið - 28.06.2006, Side 14
22 I ÍPRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 28. JÚNÍ 2006 blaöiö Hið íslenska Tour de France Hafsteinn Ægir Geirsson sigraði örugglega í Hjólað um ísland sem er stœrsta hjólreiðakeppni semframfer hér á landi. Hjólað um ísland var haldin dagana stærstu hjólreiðakeppni heims, haldinn er hérlendis og eina af ör- 21.-25. júní en keppnin er haldin Tour de France. Um er að ræða fáum keppnum sem standa yfir í árlega hér á landi að fyrirmynd stærsta viðburð á götuhjólum sem meira en einn dag. Auk rjóma ís- Jnfmita Hafsteinn Ægir Geirsson og Davíð Þór Sigurðsson búnir að stinga aðra keppendur af við Nesjavallabrekkuna. Keppendurnir komu frá fslandi, Danmörku, Færeyjum og Bandaríkjunum. lenskra hjólreiðamanna komu kepp- endur frá Danmörku, Færeyjum og Bandaríkjunum. Hafsteinn Ægir Geirsson gerði sér lítið fyrir og sigraði á öllum fimm dagleiðum keppninnar og stóð því uppi sem öruggur sigurvegari. Haf- steinn fór 256 kílómetrana á 7:03:35 klst. í öðru sæti varð Davíð Þór Sig- urðsson, rúmum sjö mínútum á eftir Hafsteini, og í þriðja sæti varð Gunnlaugur Jónsson sem var rúmri mínútu á eftir Davíð. Gunnar Dahl Olsen frá Færeyjum varð í fjórða sæti og Henrik Andersen frá Dan- mörku í því fimmta. Fjölbreyttar leiðir Á miðvikudaginn fór fram sprett- keppni þar sem hjólað var frá Naut- hólsvík og endað við Perluna. Þó að vegalengdin sé stutt reyndi mikið á hæfni manna í að halda jöfnu álagi, enda er brautin flöt í upphafi en endar í brattri brekku. Á fimmtudag var farinn um 84 kílómetra langur hringur við Þingvallavatn og á föstu- deginum var hjólað frá Geithálsaf- leggjara að Nesjavallavegi - um 53 kílómetra leið. Leiðin inniheldur hina illræmdu Nesjavallabrekku sem er ein af skæðustu brekkum sem hjólreiðamenn landsins hafa komist í kynni við. Á laugardag var lengsta dagleið keppninnar, en þá var byrjað við Vatnsfell í rúmlega fimm hundruð metra hæð og hjólað vestur i átt að Búrfelli og þaðan farin sama leið til baka. Keppninni lauk svo á sunnu- deginum þar sem hjólað var frá Ljósafossi út að Biskupstungnabraut og sama leið til baka. Á þessum fimm dögum voru hjólaðir samtals 256 kílómetrar og þvi um mikla þrek- raun að ræða fyrir hjólreiðagarpana. ns með heilbrigðum Cristiano Ronaldo leikur við börn á æfingu með portúgalska landsliðinu. 9. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA mið. 28. júní kl. 19:15 Keflavík - Breiöablik mið. 28. júní kl. 19:15 ÍA-Víkingur miö. 28. júní kl. 19:15 FH - Grindavík mið. 28. júni kl. 20:00 Fylkir - ÍBV fim. 29. júní kl. 20:00 KR-Valur 8. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA þri. 4. júlí kl. 19:15 Stjarnan - Valur þri. 4. júlí kl. 19:15 FH - Þór/KA þri. 4. júli kl. 19:15 Keflavik - Fylkir þri. 4. júlí kl. 19:15 KR - Breiðablik Tryggðu þér miða á betra verði á landsbankadeildin.is eða ksi.is Ronaldo á leiðinni til Real Madrid Spænskir fjölmiðlar halda þvi fram að Portúgalinn Cristiano Ronaldo vilji yfirgefa Manchester United fyrir Real Madrid. Juan Miguel Villar Mir, forsetaframbjóðandi í forsetakosningum Real Madrid, hefur lofað því að verði hann kos- inn muni hann fá Ronaldo til liðs- ins. Dagblaðið Marca hefur það svo eftir Ronaldo að hann hafi rætt við Villar Mir um að koma til liðs- ins. „Ég hef sagt umboðsmanni mínum að ég sé tilbúinn að fara, enda dreymir mig um að leika fyrir Madrid,“ á Ronaldo að hafa sagt við blaðamann Marca. Auk Villars Mir eru fimm aðrir i framboði en þar á meðal eru fyrrum forseti félagsins, Lorenzo Sanz, og rallökumaðurinn Carlos Sainz. Annað loforð Villars Mir er að fá Ar- sene Wenger, stjóra Arsenal, til þess að taka við stjórn liðsins en Wenger hefur ítrekað lýst yfir tryggð sinni við Skytturnar og lofað að fara ekki þaðan. Helsta loforð Sanz er hins vegar að fá brasilíska sóknarmann- inn Adriano til Real Madrid og seg- ist hann hafa samið við Massimo Moratti, stjórnarformann Inter, um að það gangi eftir. „Villar Mir hefur átt í viðræðum við umboðsmann minn. Næsta skref hans er að tala við Manchester United,“ sagði Ronaldo og ítrekaði að engum ólöglegum aðferðum hefði verið beitt við viðræðurnar. Ronaldo var keyptur til Rauðu djöfl- anna frá Sporting Lisbon fyrir 12 milljónir punda í ágúst 2003. Hann er samningsbundinn félaginu til ársins 2010.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.