blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 26
26 I AFÞREYING
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 blaöið
fRUMST/NliNG \
ÁLFABAKKA
THE BREAK UP KL 3-5:45-8-10:20
THE BREAK UPVIP KL 4:15-8-10:20
FAST & THE FU. 3 KL 3:30-5:45-8-10:20
BÍLAR ísL Val KL 3-5:30-8
CARSenskttol KL 3-5:30-10:20
THE LAKE HOUSE KL 3:30-5:45-8-10:20
SUTHER KL 10:30
SHESTHEMAN KL 8
KRINGLUNNI'wnjjk
THE BREAK UP
FAST & THE FUR. 3
BÍLAR ísl. tal
' CARS enskt tal
P0SEID0N
KL 3:45-6-8:15
10:30
KL 8:15-10:30
KL 4-6:30
KL 3:45-9
KL6
keflavIk
$ámmk
THE BREAK UP KL 8-10:10
THE CLICK KL.8
FAST&THEFU.3 KL 10:10
AKUREYRI
SAirnmk
THE BREAK UP
THE LAKE HOUSE
BÍLAR ísl. tal
KL 6-8:15-10:30
KL 6-8:15-10:30
KL 6-8:30-10:50
KL 6-8:30
KL 6-8:20-10:30
KL 10:50
THE BENCHWARMERS
kl. 4,6,8 og 10 B110 ARA
CUCK
kl. 3,5.30,8 og 10.30 Bi 10ÁRA
CUCKlLÚXUS
kl. 3,5.30,8 og 10.30 B110ÁRA
JUSTMYLUCK
M.8og1020
RV
kl. 3.40 og 5.50
DA VINCICODE
M.6og9Bl14AftA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
M.4
REErwoEinn
THE BENCHWARMERS
M.6,8og10Bl10ARA
CUCK
M. 5.30,8 og 10.30 Bi 10ÁRA
THE0MEN B116ARA
M. 10.30
X-MEN 3
M. 5.30 og 8 B112ÁRA
DAVINCIC0DE
M.8 B114ÁRA
TAKETHELEAD
M. 5.30B110ÁRA
THE FAST AND THE FURIOUS 3
M. 4,6,8 og 10.15 B112ARA
CUCK
M. 4,6,8og10.15Bl10ARA
STAYALIVE
M. 10.15 B116 ARA
TAKETHELEAD
M. 5.45og8Bl10ARA
RAUÐHETTA ÍSLENSKT TAL
M. 4
'kiur7j'iilutí\
THE BENCHWARMERS
kl. 6,8og10BJ-lO/WA
THE FAST AND THE FURIOUS 3
kl. 10.10 BL12ÍRA
cuckbiioAra
kl.6ogB
Að verma bekkinn,
að verma botninn
Boðskapur myndarinnar er sá að maður á ekki að leggja fólk i einelti
^ Kvikmyndir
Jón Þór Pétursson
The Benchwarmers__________
Leikstjóri: Dennis Dugan
Aðalhlutverk: Rob Schneider, David Spade,
Jon Heder, Molly Sims og Jon Lovitz.
Lengd: 80 min
Bandaríkin 2006
★
Myndin The Benchwarmers eru nú
sýnd í kvikmyndahúsum borgar-
innar en í aðalhlutverki er konungur
aulalegra svipbrigða, Rob Schneider,
konungur gáfulega „dissins“, David
Spade, og nú konungur nördismans
Jon Heder.
Myndin fjallar um þrjá menn sem
koma saman og spila hafnabolta. Á
völlinn koma hrekkjusvín sem þeir
skora á og vinna. Atburðarás fer af
stað og herramennirnir þrír keppa
víðs vegar um Ameríku við 12 ára
krakka en þjálfarar þeirra eru algjör
hrekkjusvín. Aðeins Rob Schneider
getur eitthvað í hafnabolta en grínið
felst meðal annars í því hvað hinir
tveir eru lélegir. Seinna í myndinni
kemur í ljós að persóna Rob Schnei-
der á sér skítugt leyndarmál sem á
eftir að draga dilk á eftir sér.
Bekkjavermirnir eiga þá við
gamla stríðnispúka að etja sem
stríddu þeim þegar þeir voru yngri
en þjálfa nú nýja kynslóð af stríðni-
spúkum. Það skemmtilega við þetta
allt saman er það að allir virðast
vera með þroska á við tíu ára gömul
börn og allt snýst þetta um að berj-
ast gegn kúgun hrekkjusvína sem
virðast hafa einhvern undarlegan
kvalalosta er tengist geirvörtum.
Það er sjaldan sem ég fer i bíó og
reiðist en það gerðist á The Bench-
warmers og eftir klukkutíma af
Disney-legum aulabröndurum kom
hlé og hægt var að anda léttar. Það
sem tók við eftir hlé var þvi miður
einungis verra. Myndin náði þannig
þeim vafasama heiðri að verða lé-
legri með hverri mínútu og þarf nán-
ast hæfileika til að geta gert eitthvað
svona illa.
Allir nördarnir eru þá með
eða enda með ljóshærðum þokka-
gyðjum og er það kunnuglegt leið-
arstef í bandarískri kvikmyndagerð.
Það væri þá gaman að sjá einu sinni
ótrúlega nördalega konu með karl-
módeli en sennilega er það svo bylt-
ingarkennd hugmynd að ekki má til
þess hugsa, að minnsta kosti ekki
næstu tuttugu árin.
Allur húmor myndarinnar er á
saur- og þvagstiginu og heyra má
hvern aulabrandarann á fætur
öðrum. Það eru í heildina svona
þrír staðir í myndinni sem ástæða
er til að reyna að brosa án þess þó
að það verði að veruleika. Eini ljósi
punkturinn í myndinni er furðuleg
persóna Jon Lovitz en það er samt
ekkert sem getur bjargað þessari
mynd fyrir horn.
Boðskapur myndarinnar er sá
að maður á ekki að leggja fólk í
einelti og leyfa öllum að vera með,
ekld bara þeim sem skara fram úr
i íþróttum, nördar eru líka fólk eða
eitthvað í þá áttina. Þetta er þá mat-
reitt á sama andlausa mátann og svo
margt frá draumaverksmiðjunni
í Hollywood og prumpusenurnar
geta varla höfðað til neinna annarra
en kralcka á aldrinum 7-12 ára.
jon@bladid.net
Steintryggur
1 Englandi
Það ermikið um að vera hjá
hljómsveitinni Steintryggi
um þessar mundir.
Hljómsveitin Steintryggur er í
Stóra-Bretlandi núna þar sem
hún lék á tónlistarhátíð smá-
þjóða í Wales.The Small Nation
Festival um helgina og mun
leika á Rythm Sticks-hátíðinni í
London þann i8.júlí.
Steintryggur eru Steingrímur
Guðmundsson og Sigtryggur
Baldursson og hefur starfað
frá 2003 en það ár kom út geisla-
diskurinn Dialog sem fékk lof-
samlega dóma í fjölmiðlum og
fór í dreifingu í Evrópu í apríl á
síðasta ári og í framhaldi af því
fóru þeir félagar í tónleikaferð
um Bretland og Vestur-Evrópu
síðastliðið haust.
Smáþjóðahátíðin var fyrst
haldin 2002 og tónlistarmenn
víða að úr heiminum taka þátt í
henni. Hún er haldin á sveitabæ
i Cambria-fjöllunum í Wales.
Rythm Sticks-hátíðin er stærsta
slagverkshátið í Evrópu og koma
margir þekktustu slagverksleik-
arar heims þar fram, má þar
nefna nöfn eins og Trilok Gurtu
og Evelyn Glennie, en hátíðin
er haldin í Royal Festival Hall í
London.
Steintryggur mun leika nýtt
efni af væntanlegum geisladiski
en Steintryggsmönnum hefur
borist liðsauki, Ástralinn Ben
Frost sem sér um hljóðmynd og
“special effects”. Munu þeir félagar
eyða vikutíma milli tónleikanna
til að ldára upptökur á nýjum
diski, og hafa til þess fengið
leigða hlöðu í Wales, langt frá
mannabyggðum. Ekki ósvipað
Jack Nicholson i „The Shining".
Þriðjudaginn 11. júlí
ALLT SEM TENGIST NÝBYGGINGUM OG
VIÐHALDI Á NÝJUM SEM GÖMLUM HÚSUM
Auglýsendur, upplýsingar veita:
Ragnarsdóttir • Sími 510 3722 • Gsm 848 0231 • kolla@bladid.net
L. Rúnarsdóttir • Slmi 510-3727 • Gsm 856-4250 • kata@vbl.is
Hvaðerað gerast?
Blaðið vill endilega fjalla um atburðl
líðandi stundar. Sendu okkur línu á
gerast@bladid.net.
10.00-Námskeið
Námskeið í söng og leiklist.
Borgarleikhúsið, Anddyri
20.30 - Leiklist
Light Nights 4. Sýning
Iðnó
Listasýningar
101 gallery-opnunar-
tími 14:00-17:00
Steinunn Þórarinsdóttir. Sýn-
ing frá 9. júní til 22. júlí. Opið
fimmtudaga, föstudaga, laugar-
daga frá 14-17.
101 gallery - Hverfisgata, 101
Reykjavík
Ásgerður Búadóttir
veflistakona - opnun-
artími 09:00 -20:00
Sumarsýning Listvinafélags
Hallgrímskirkju. Ásgerður Búa-
dóttir sýnir í forkirkju Hallgríms-
kirkju. Ásgerður er frumkvöðull
nútímavefíistar á íslandi og hafa
verk hennar ætíð haft sterka skír-
skotun til landsins og til náttúr-
unnar. Sýningin er í samvinnu
við Listasafn Háskóla íslands.
Til 26. ágúst.
Hallgrímskirkja - Skólavörðu-
holti, 101 Reykjavík
Joris Rademaker sýnir í Listagil-
inu - opnunartími 12:00 - 00:00
Sýningin heitir Mjúkar línur
/ Smooth lines og var opnuð 1.
apríl. Þettá er hluti af myndaröð
sem enn er í vinnslu. Myndirnar
eru unnar á striga og pappír á
óhefðbundinn hátt. Unnið er
með spaghettí og graffitísprey.
Sýningin stendur til 6. okt. 2006
Karólína Restaurant - Kaup-
vangsstræti 23,600 Akureyri
Ljósmyndir frá Grænlandi
í Norræna húsinu - opnun-
artími 09:00-17:00
Sumarsýning í anddyri Norræna
hússins 23. júní til 27. ágúst. Ljós-
myndir frá Austur-Grænlandi
eftir danska ljósmyndarann Ole
G. Jensen. Opið virka daga kl. 9-
17. Laugardaga og sunnudaga kl.
12-17.
Norræna húsið - Sturlugötu 5,
101 Reykjavík
Maðurinn í náttúrunni
- Náttúran í manninum
- opnunartími 11:00 -17:00
Yfirlitssýning á verkum Guð-
mundar Einarssonar frá Miðdal.
Unnin í samstarfi við Náttúru-
fræðistofu Kópavogs. Safnbúð
og kaffistofa. Lokadagur sýning-
arinnar er í dag.
Listasafn Kópavogs, Gerð-
arsafn - Hamraborg 4,200
Kópavogur
Málverkasýning Ólafs
Jónssonar - opnunar-
tími 12:00-20:00
Ólafur Jónsson (iló), Berjalandi,
Kjós opnaði málverkasýningu
1. júní sl. og verður hún opin í
sumar.
Kaffi Kjós - Meðalfellsvegur,
270 Mosfellsbær
Patrick Huse, Innileg fjar-
vera - Intimate Absence
- opnunartími 11:00 -17:00
Norski listmálarinn og ljós-
myndarinn Patrick Huse opnaði
sýningu á ljósmyndum og mál-
verkum í Hafnarborg laugardag-
inn 3. júní kl. 15. Sýningar hans
eru viðamiklar og fara víða um
heim en að þessu sinni kemur
sýning frá Henie-Onstad lista-
miðstöðinni í Ósló. Sýningunni
lýkur í dag.
Hafnarborg - Strandgötu 34,
220 Hafnarfjörður