blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 9

blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 9
blaðið MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 FRÉTTIR I 9 Á myndinni sést stél vélarinnar þar sem að hún staðnæmdist. Vélin sem fórst í gær var í eigu S7-flugfélagsins, en það er næst- stærsta flugfélag Rússlands á eftir Aeroflot. Á myndinni sést stél vélarinnar þar sem að hún staðnæmdist. «a? Stuðningsmenn Manuels Lopes Obradors söfnuðust saman á Zocalo-torgi í Mexfkóborg á laugardag. Obrador, sem telur að brögð hafi verið í tafli við talningu atkvæða í kosninguuum f síðustu viku, boðar áframhaldandi mótmæli. Fjöldamótmæli í Mexikóborg vegna úrslita í forsetakosningunum: Vilja telja aftur Fjöldamótmæli fóru fram í mið- borg Mexíkóborgar um helgina. Þar er talið að hátt í 300 þúsund manns hafi safnast saman á laugardag til að styðja Manuel Lopes Obrador, for- setaframbjóðanda vinstrimanna, í baráttu sinni fyrir því að öll greidd atkvæði í kosningunum fyrir viku verði talin aftur. Obrador tapaði fyrir íhalds- manninum Felipe Calderon í kosn- ingunum en munurinn var aðeins um hálft prósent. Obrador heldur því fram að brögð hafi verið í tafli og ætlar að kæra úrslit kosning- anna til sérstaks dómstóls, sem úrskurðar um lögmæti kosninga, og til hæstaréttar landsins. Dóm- stóllinn sem tekur afstöðu til lög- mætis kosninganna hefur frest til sjötta september til þess að taka lokaákvörðun um niðurstöðu kosn- inganna. Frambjóðendur hafa frest til dagsins í dag til þess að kæra kosningarnar. Dómstóllinn hefur umboð til þess að breyta niður- stöðum kosninga eða jafnvel að boða til nýrra. Á mótmælafundinum á laugar- dag boðaði Obrador fleiri mótmæla- fundi og sagði að stuðningsmenn sínir víðsvegar um Mexíkó myndu fylkja liði og halda til höfuðborgar- innar næstkomandi miðvikudag Stuðningsmenn Obradors fagna komu hans á fjöldamótmælin. til þess að krefjast endurtalningar. Þrátt fyrir að Obrador hafi ítrekað að mótmælin yrðu friðsöm er óttast að upp úr geti soðið milli stuðnings- manna hans og þeirra sem styðja Calderon. Fylkingarnar að baki frambjóðendunum tveim eru ólíkar. Obrador nýtur mests fylgis hjá fá- tæku fólki í landinu og þykja stjórn- málaáherslur hans minna um margt á þá pópúlísku leiðtoga sem hafa komist til valda í Rómönsku Amer- íku á undanförnum árum. Felipe Cal- deron nýtur hinsvegar hylli efnaðra fólks. Hann er talsmaður frjálsra við- skipta og náins samstarfs við Banda- ríkin á mörgum sviðum. Mexíkóar bjuggu lengi við land- lægt kosningasvindl og einn stjórn- málaflokkur, Stofnanavæddi bylt ingarflokkurinn, fór með öll völd í landinu frá árinu 1929 til 2000. Þessi staðreynd útskýrir að einhverjuleyti hversu litla trú stuðningsmenn Obra- dors hafa á lögmæti kosninganna. Kosningarnar í síðustu viku voru þær fyrstu eftir að þingið sam- þykkti sérstök lög sem koma eiga í veg fyrir að kosningasvindl fyrri ára endurtaki sig. En þrátt fyrir ásakanir Obradors um að brögð hafi verið í tafli lýstu kosningaeft- irlitsmenn frá aðildarríkjum Evr- ópusambandsins (ESB) því yfir á föstudag að þeir hafi ekki tekið eftir neinu athugaverðu við fram- kvæmd kosninganna. Auk þess hafa þjóðarleiðtogar víðsvegar um heim, þar á meðal George Bush, forseti Bandaríkjanna, og Steven Harper, forsætisráðherra Kanada, óskað Calderon til hamingju með að hafa náð kjöri. Yfirvöld lýstu yfir sigri Calderons á fimmtudag og er verðandi forseti byrjaður að útlista áherslur forsetatíðar sinnar.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.