blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 10

blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 10
blaðiðu Útgáfufélag: Ár og dagur ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Ritstjóri: Sigurjón M. Egilsson Fréttastjórar: Aðalbjörn Sigurðsson og Erna Kaaber. Ritstjónarfulltrúi: Janus Sigurjónsson BLAÐIÐ Breytingar verða á Blaðinu, það er óhjákvæmilegt að nýjum ritstjóra íylgja breytingar. Haldið verður í sumt, það sem þykir hafa tekist með ágætum verður áfram, sumu verður breytt og eitthvað verður aflagt. Dagblöðin þrjú hafa til þessa verið hvert öðru lík, mismikið milli daga, en oftast nokkuð svipuð í efnisvali og jafnvel framsetningu. Blaðið mun beygja af leið, hvorki til vinstri né hægri, heldur fara bara aðrar götur. Blaðið má hafa skoðanir, en þarf þess alls ekki og þess vegna er ástæðulaust að Blaðið hafi skoðanir. Auk þess lifir Blaðið ekki sjálfstæðu lífi, það er knúið áfram af þeim sem þar starfa, hópi fólks sem eflaust hefur ólíkar skoðanir á flestu. Þeir sem starfa á Blaðinu hafa möguleika á að koma skoðunum sínum á fram- færi, en skoðanir okkar sem störfum á ritstjórn Blaðsins eru skoðanir okkar, ekki Blaðsins og munu þess vegna aldrei sjást i fréttum þess. Blaðið mun kappkosta að vera heiðarlegt, hófsamt og vandað blað. Til að fylgja þeim ásetningi eftir er hægt að fara aðra leið en hin dagblöðin tvö, Morgunblaðið og Fréttablaðið. Mannlífið er fjölbreytt; glatt, sorglegt, fagnandi, hnípið, sigr- andi, glæsilegt og stundum vont. Þetta vita allir blaðamenn og blöðin þrjú munu öll á hverjum degi segja fréttir af sömu atburðum, ákvörðunum, fyr- irætlunum og öðru sem telst til frétta. Sérstaða Blaðsins mun meðal annars koma fram í því hverjir viðmælendur Blaðsins verða, framsetningu frétta, viðtala, upplýsinga og annars efnis. I fremur stuttri sögu Blaðsins hafa verið ráðnir þrír ritstjórar. Þeir sem á undan hafa verið, Karl Garðarsson og Ásgeir Sverrisson, hafa ásamt öðru starfsfólki unnið fínasta verk. Verkefni þeirra sem í dag starfa á Blaðinu er ekki einungis að viðhalda því sem gert hefur verið, heldur að auka við það. Bæta Blaðið og efla. Til þess er ýmislegt hægt að gera. Meðal þess er að skerpa og laga útlit og hönnun. Notkun mynda verður önnur og meiri, grafísk framsetning verður aukin. Umfram allt verður áfram unnið af heiðarleika og sanngirni. Blaðinu hefur tekist það vel og áfram verður kappkostað að vinna með þeim hætti. f haus Blaðsins segir; frjálst, óháð og ókeypis. Það eru orð að sönnu, ritstjórn Blaðsins hefur fullkomið frelsi og rit- stjóra hafa ekki verið settar einar né neinar skorður eða takmarkanir í einu né neinu. Blaðið lýtur sérstakri stjórn sem kemur ekki að öðrum fjölmiðli eða öðrum fyrirtækjum. Það kann að þykja mikið að á aðeins rúmi einu ári hafi þrír gegnt starfi ritstjóra á Blaðinu, það er þegar betur er að gáð svipað og var í bernsku Fréttablaðsins. Nýju dagblaði fylgir rót á fjölmiðlamarkaði, mótun dagblaðs tekur tíma og þegar þess er gætt er ekkert athugavert við að tíma geti tekið að móta blað og ritstjórn. Ég hlakka til komandi tíma og vonast til að Blaðið vaxi og dafni í sem mestu sambandi við lesendur sína. Þess vegna munu verða birt bréf frá les- endum og hinn almenni fslendingur verður umfjöllunarefni Blaðsins. Sigurjón M. Egilsson Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aöalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifíng: íslandspóstur SERBLAD HÚSBYGGJANDANS ~blaöió 10 I ÁLIT MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 bla6iö • á fundi á Svalbarða. Sól, 6 hiti ©og alveg geðveikt flotttr hjá helv. norsurunum ps. Et stiga vegir Holóttur vegur 3,5 km Til þess að bjarga Aefnahagsástandinu á íslandi b.kv. Geir H. Haarde Stjórnað með hræðslu Ég hef aldrei hvorki fyrr né síðar séð jafn mikið af byssum á einum stað og á Reykjavíkurflugvelli um árið. Þá var ég á leið frá Reykjavík til Egilsstaða um miðjan september- mánuð. Rjúpnaveiðitímabilið var nýlega hafið og nánast allir ferða- félagar minir voru greinilega á leið á rjúpnaveiðar á austanverðu land- inu. Allir höfðu með sér a.m.k. eina byssu í tösku eða byssupoka sem af- greiðsludama flugfélagsins skellti á farangursfæribandið eins og ekkert væri sjálfsagðara í heiminum. Þrátt fyrir að bannað sé að taka skotfæri með sér í handfarangri leyfi ég mér að fullyrða að flestir, ef ekki allir veiðimennirnir, höfðu ákveðið að virða fullkomlega að vett- ugi þetta litla bann flugfélagsins. Það var því talsvert magn af skot- færum með í för. Með alvæpni Sjálfum fannst mér nákvæmlega ekk- ert athugavert við að hver veiðimað- urinn á fætur öðrum skyldi skunda inn í flugstöðina með alvæpni. Ég velti því reyndar fyrir mér stutta stund hvort það væri ekki öruggt að kapparnir hefðu munað eftir að tæma skot úr byssum sínum, en held að ég hafi ekki dvalið lengi við þær vangaveltur. Líklega hef ég hugsað meira um það hvort flugvélin kæm- ist ekki örugglega á loft með allt þetta blý í farteskinu. Eftir að búið var að bóka alla ferðalanga inn í véiina, og starfs- menn voru búnir að raða farangri og byssum inn í farangursrými vélar- innar var mannskapurinn kallaður út í vél. Eins og beljur á leið í hús að loknum löngum degi úti á engi streymdu ferðalangar í einfaldri röð út í vél og komu sér fyrir. Beltin voru spennt, tímaritið Ský tekið upp úr sætisvasanum og menn bjuggu sig undir klukkutíma flug. Aðalbjöm Sigurðsson Forsetinn fékkfar Þar sem allir sátu og biðu eftir að flugvélin tæki sig á loft birtist hins- vegar allt í einu einn farþegi í viðbót. Þar var kominn enginn annar en forsetinn okkar, hr. Ólafur Ragnar Grímsson. Hann gekk sallarólegur inn í vélina, heilsaði ferðafélögum sinum og veifaði áður en hann sett- ist. Ég geri ráð fyrir að eins og aðrir hafi hann spennt beltið, dregið Ský úr sætisvasanum og búið sig undir flugið framundan. Eg sat hinsvegar talsvert aftar í vél- inni og hugsaði um það hvar annars staðar í heiminum slíkt gæti gerst. Að flugfélag myndi hlaða tugum skotvopna inn í flugvél - eins og ekkert væri sjálfsagðara - hleypa síðan mörgum misjafnlega trylltum veiðimönnum um borð með skot- færi - og þegar því væri lokið kæmi forseti landsins og fengi far. Hið saklausa ísland Líklega var ég einn um þessar hugs- anir því enginn virtist kippa sér upp við þessa stöðu mála. Ég man líka að mér fannst þetta hughreystandi. Að forseti landsins gæti ferðast á slíkan hátt, fullkomlega afslappaður án þess að hafa hjörð lífvarða í kring um sig og án þess að hafa af því sér- stakar áhyggjur að verða skotinn eða sprengdur í loft upp er einhver besta vísbending um að hlutirnir hér á landi séu að mestu leyti í lagi. Þennan dag var ég sáttur. Mér sýnist hisvegar að nú vilji menn fara að ala meira á ótta en áður var. Stofna á einhverja illskilgreinan- lega „leyniþjónustu" hér á landi til að bregðast við mögulegum hryðju- verkum og öðrum illvirkjum. Það er kannski óábyrgt að halda þessu fram en í þessu tilfelli tel ég að það eigi ekki að byrgja brunninn fyrr en barnið er dottið ofaní. Að sjá skratt- ann í hverju horni næstu árin og bú- ast stöðugt við hinu versta er hrein- lega ekki hollt fyrir þjóðarsálina. Höfundur er fréttastjóri Blaðsins Klippt & skorið IViðskiptablaðinu síðasta föstudag má lesa lærða nærmynd af Kristni Björns- syni (sem með eign sinni í Árvakri, útgáfuféiagi Morgun- blaðsins, á hlut í þessu blaði). Athygli vekur að Haligrímur Geirsson, framkvæmdastjóri Morg- unblaðsins, segir um frænda sinn, að hann sé „duglegur, kraftmikill og skjótur til ákvarðana og hefurþá oft ekki mikla þolinmæði. Hann viil láta hlutina ganga hratt og ætlast þá líka tii þess sama af öðrum." Þetta vekur nokkra athygli í Ijósi þess, að Hallgrímur sagði starfi sfnu lausu fyrír tæplega fjórum mánuðum, en féllst á að gegna því þar til stað- gengill fyndist, en Kristni var einmitt ætlað að finna hann. Vinstri-grænir eru hreint ekki hressir með að ísraelsher skuli hafa hneppt nokkra þingmenn Hamas f fangelsi. Þö vinstri-grænir séu þjóðernissósíalistar að upplagi er stutt í alþjóða- hyggjuna og af því tilefni skrifaði þingflokkur þeirra harðort bréf til þingforseta Knesset, Daliu Itzik. Dalia er merkiskona,fyrrverandiþing- maður Verkamannaf lokksins í israel, en hún gekk til liðs við Kadima, flokk Ariels Sharons, f fyrrahaust. En það er erfitt aðverjast þeirri hugsun, að Ögmundur Jónas- son - sem undirritar bréfið - og félagar hans f þingflokknum séu ekki nægilega kunnugir stöðu mála fyrir botni Miðjarðarhafs. Dalia er þar ávörpuð sem Dalia Itzik Kadima, líkt og hún hafi tekið sérflokksnafnið að eftirnafni! Bandaríska athafnaskáldið Kenneth L. Lay varð bráðkvaddursfðastliðinn mið- vikudag, en hann varð alræmdur fyrir svikamylluna Enron. Þar kom alls kyns óþverri í Ijós, en það sem flestum blöskraði sjálfsagt mest var hvernig stjórnendur Enron höfðu farið með lífeyrissjóði starfsmanna, notað þá að vild í alls kynsfjárfestingarævintýri og í raun brennt upp ævisparnað þúsunda starfs- manna sinna, sem stóðu uppi slyppir og snauðir. En er það ekki merkilegt, að Ken Lay hefur ekki fengið að kólna í nema einn sólarhring, þegar fregnir berast afþvíað FLGroup og Baugurvilji kynna sérstarf- semi lífeyrissjóða og séu að kanna möguleikann á stofnun nýs lífeyrissjóðs fyrir starfsfólk sitt? andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.