blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 30

blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 30
30 I FÓLK MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 blaðið SMÁ borgarinn SAMFÉLAG ÚTLITS- DÝRKUNAR HVAÐ FINNST ÞÉR? Magnús Stefánsson, félagsmálaráðherra. Ertu traustur vinur? Ég hef alltaf lagt mig allan fram við að vera það. Smáborgarinn erstundum með tvö- faldan og jafnvel þrefaldan persónu- leika. Þegar það gerist þá á Smáborg- arinn það til að lesa pistla eftirsig sem hann er gjörsamlega ósammála. Þá hristir Smáborgarinn höfuðið og lofar að gera betur næst. Um daginn skrif- aði Smáborgarinn til dæmis pistil um lýtaaðgerðir og eftir á fattaði hann að hann væri í rauninni ósammála sjálfum sér. Smáborgaranum finnst skipta máli hvort ungt fólk eða fullorð- ið fer í lýtaaðgerðir. Ef fertugar konur eða karlar ákveða að fara í lýtaaðgerð, þau um það. Smáborgaranum finnst sorglegra þegar ungar konur, sem eru varla búnar að taka út kynþroska, fara í lýtaaðgerð til þess eins að fegra útlitið. Það er dagsatt að við lifum í sam- félagi útlitsdýrkunar. Fólk er valið í vinnu eftir útliti, maki er valinn eftir útliti og vinir eru jafnvel valdir eftir útliti. Þetta er staðreynd en þrátt fyrir það er ekki þar með sagt að við eigum að hætta að berjast gegn því sem við erum ósammála. Smáborgarinn vill ekki lifa í samfélagi þar sem 15 ára stúlkur sjá engan annan kost en að fara í brjóstastækkun, svo þær geti eignast kærasta eins og hinar stelp- urnar. Það er dagsatt að hverjum þykir sinn fugl fagur og allir kannast við það hvernig ófríður einstaklingur verður fríður við nánari kynningu. Að sama skapi getur fallegur einstaklingur orð- ið ófríður þegar í Ijós kemur að hann er eigingjarn og leiðinlegur. Þó við lifum í samfélagi útlitsdýrk- unar verður Smáborgarinn að viður- kenna að hann hefur ekki oft séð Ijótt fólk. Ekki fólk sem honum finnst virki- lega Ijótt, svo Ijótt að hann verður nán- ast að líta undan. Vitanlega erfólk mis- fallegt en það er lítið til af fólkl sem er hreinlega forljótt. Það er alltaf eitt- hvað fallegt við einstaklinga, kannski eru það augun, nefið, málrómurinn eða litarhaftið. Kannski er Smáborgar- inn svona tregur eða kannski gekk allt Ijóta fólkið í aðra skóla og verslar í öðr- um verslunum en Smáborgarinn. Þroskaþjálfar marseruðu með trommuslætti og lúðrablæstri að félagsmálaráðuneytinu á föstudaginn til að vekja athygli á kjarabaráttu sinni. Þar sungu þroskaþjálfarnir lagið „Traustur vinur", sem Magnús söng iðulega á þeim árum er hann var í hljómsveitinni Upplyftingu Ólíkir áhorfendur Það hefur vart farið framhjá neinum að úrslitaleikur HM í knattspyrnu fór fram í gær. Að venju komust mun færri á úrslitaleikinn en vildu. Þeir sem mættu voru hinsvegar margir mjög skrautlegir. Þessi kona var sannfærð um að snillingurinn Zinedine Zidane myndi skora. Reuters Heimurinn snerist ekki um stjórn- Rems mál heldur knattspyrnu i gær. Jacques Chirac, forseti Frakklands, var meðal þeirra sem mættu á völlinn i Berlín til þess að styðja sína menn. Góð samstaða var meðal aðdáenda franska landsliðsins í anda hins göfuga leiks. Reuters SU DOKU talnaþraut 4 6 8 9 7 2 1 3 5 3 5 7 4 6 1 8 2 9 9 1 2 3 5 8 4 6 7 5 4 9 t 3 6 2 7 8 7 8 6 5 2 9 3 1 4 1 2 3 7 8 4 5 9 6 2 9 5 6 4 3 7 8 1 6 3 4 8 1 7 9 5 2 8 7 1 2 9 5 6 4 3 Lausn síðustu gátu: Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hvertala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Gáta dagsins: 5 8 4 9 1 5 3 9 1 6 7 8 5 2 9 7 2 6 8 1 4 2 9 3 4 8 7 6 3 8 5 9 Hvað þarf ég að gera til að fá fá þjónustu hér? HEYRST HEFUR... Ofurbloggarinn Össur Skarphéðinsson (ossur. hexia.net) er enn að og eins og oft áður er þessi mikli stílisti ámestuflugi í ferðasög- um sínum. Nýverið var hann á Ítalíu í erindum þingsins ásamt Ein- ari Oddi Kristjánssyni. Raunar varð ferð þeirra torsóttari en ráð var fyrir gert, því þeir félag- arnir voru ekki fyrr stignir á ítalska grundu en leigubílstjóra- verkföll dundu yfir. Össurvirð- isthafataliðað með því væri ítölsk alþýða að rísa upp gegn Einari Oddi, sem er heiðursfélagi í evrópsku atvinnurekendasam- tökunum... Leigubílstjóraverkföllin voru þó ekki langvinn og náðu þeir félagarnir að munstra einn slíkan til þess að aka sér um hina rómuðu eyju Kaprí. Um leið og hann ók þessum tveimur glæstu fulltrú- um elsta þjóðþings heims um eyjuna sungu þeir fyrir hann um Katarínu sem Davíð Stef- ánsson orti um forðum. Svo spurðu þeir bílstjórann hvort verið gæti að afi hans hefði verið einn af Kaprísveinunum sem skáldið frá Fagraskógi gerði ódauðlega. Hann varð glaður við að heyra að íslenskt skáld hefði fært hróður Kaprí alla leið norður undir heim- skautið, en gat ekki svarað þess- ari áleitnu spurningu nánar. Þess er hins vegar vert að geta að þeir Össur og Einar Oddur hrifust mjög af hinu fræga Ka- prívíni sem kennt er við Tíber- íus keisara sem hvergi undi sér betur en þar... Veitingahúsagagnrýni hefur orðið nokkuð bein- skeyttari undanfarin misseri og það þótt Jónas Kristjánsson hafi að mestu slíðrað penna sinn á þeim vettvangi. I staðinn hafa kvatt sér hljóðs meistarar á borð við Hjört Hows- er, sem ber næmt skyn- bragð á það sem máli skiptir á veitingastöðum, og gildir einu hvort hann fer á Vox eða í pulsuvagninn. Blaðamaðurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson (www. malbein.net/pallasgeir) lætur sér líka annt um bragðlaukana og fjallaði síðast um veitinga- staðinn B5 í Bankastræti, sem honum fannst ekki mikið til koma: Fiskurinn var vissulega rétt eldaður en á mörkum þess að vera ferskur. Hann var nógu lítið kryddaður til þess að greinilega fannst bragð af efni sem heitir TMA eða Trimethylacetelin og er virka efnið sem brýtur niður fisk- hold við rotnun og er reynd- ar ágætt í hæfilegu magni. Það voru semsagt herfileg mis- tök að fara þangað inn því við vorum svöng en lasinn spör- fugl hefði gengið svangur frá þessu veisluborði.“ andres.magnusson@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.