blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 12

blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 12
12 I BÍLAR MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 blaAÍA Hjálpaðu að hanna Fiat 500 iat 500 eða Cinquecento eins og hann er jafnan kallaður var ekki slorlegur þegar hann var kynntur til sögunnar. Á næsta ári má vænta nýrrar út- unar er það einmitt þannig bíll, sem gáfu af Fiat 500, bílsins sem nánast sjá má Omar Ragnarsson þeysa um bílvæddi Ítalíu einn síns liðs á eft- göturnar á þessa dagana. irstríðsárunum. Til nánari glöggv- Enþóhönnuninsévitaskuldlangt Og nýi Fiat 500 lofar góðu, Iftill, stflhreinn og notadrjúgur. Verðugur arftaki hins sfgilda Cinquecento. komin hjá Fiat vill framleiðandinn allt til vinna, svo bíllinn uppfylli þarfir neytandans og hefur sett upp sérstakan vef (www.fiat500.com) þar sem hægt er að koma á fram- færi snjöllum hugmyndum. Þegar hefur urmull góðra athugasemda borist og nokkrar hafa þegar verið samþykktar. Og mönnum er launað fyrir hugarflugið ef hugmyndin er notuð. Ford hefur undirritað samning við Diar um samvinnu við smíði nýja bílsins, en Ford hyggst fram- leiða eigin gerð hans - óbreytta fyrir utan yfirbygginguna - til þess að leysa Ford Ka af hólmi. Fjöldi bfla á hvert hundrað manna . 590 milljónir bíla í heiminum, en dreifingin er misjöfn Árið 2002 voru um 590 milljónir fólksbíla á jarðarkúlunni eða einn á hverja tíu íbúa jarðar. Dreifing þeirra er hins vegar ærið misjöfn milli þjóða heims og á þessu sér- kennilega heimskorti má sjá hvernig heimurinn lítur út þegar horft er til bílafjölda ríkja heims. Ef til vill kemur mörgum á óvart að bílaþjóðin í Vesturheimi er engan veginn jafnoki Vestur-Evrópu, hvorki hvað varðar fjölda bíla né hlutfallslegan fjölda miðað við höfða- tölu. Bandaríkjamenn bera þó höfuð og herðar yfir alla aðra þegar litið er til einstakra ríkja, en þar í landi voru 140 milljónir fólksbíla, en næst á eftir kemur Japan með 55 milljónir. Á sama tíma eru aðeins níu milljónir fólksbíla í Kína, fjölmennasta rikis heims, og sex milljónir á Indlandi, hinu næstfjölmennasta. Þegar litið er til fjölda bíla á hvert hundrað manna, trónir Nýja-Sjá- land á tindinum, en þar í landi eru 61,3 bílar á hvert hundrað. íslend- ingar voru aftur á móti í þriðja sæti með 56,1 bíl á hundraðið. f ljósi þess að um fjórðungur íslendinga er undir 17 ára aldri og um 5% yfir 75 ára aldri lætur því nærri að á Islandi sé bíll á mann. Þegar litið er til van- þróaðri hluta heimsins, landa eins og Mið-Afríkulýðveldisins, Bangla- desh og Tadjíkistan er minna en hálfur bíll á hvert þúsund. Mestu bílaþjóðir heims - bílar á hundraðiö 1 Nýja-Sjáland 61,3 2 Lúxemborg 57,6 3 (sland 56,1 4 Kanada 55,9 5 (talía 54,2 6 Þýskaland 51,6 7 Sviss 50,7 8 Malta 50,5 9 Austurríki 49,4 10 Astralía 49,3 * WWWfAB VARAHLUTmm * EIGUM ÁVALLT Á LAGER VARAHLUTI í FLESTAR GERÐIR BÍLA VIÐ ERUM YKKAR BÓIUUS! ^ f p, ng_»rn p n i/r rfTrp BODDVHLUrifi - GRIHDUR ■ UOS - SPLGLAR - SLIIHLUTIH VAIHSKASSAR OG FLLIRA Bildshöfda 18 - Simi: 567 6020 - ab@abvarahlutir.ls - www.abvarahlutir.is OPIÐ FRÁ; 8.00 - 18.00 Þotan rétt marði Audi Á Englandi fór nýverið fram hátíð fyrir alla bíladellukarla, en það var Festival of Speed í Goodwood, þar sem finna mátti alla heimsins bestu bíla. Stutt er síðan Ford GT atti kappi við flugvél á Akureyrarflugvelli, en á Englandi ákvað Audi að ganga alla leið og skoraði konunglega breska flugherinn á hólm. Audi stillti upp Rio TDI, sem nýverið vann Le Mans, en flugherinn ræsti eina af Harrier-þotum sínum, sem flogið getur jafnt lóðrétt sem lárétt. Það var tilraunaökumaður- inn Allan McNish, sem fékk heiðurinn af því að þenja hin 650 hestöfl í dísilskrímslinu frá Audi og keppnisvegalengdin var einn kílómetri. Á hinn bóg- inn er Harrier GR7 þotan með 15.000 hestöfl. Audi-bíllinn náði strax í upphafi góðu forskoti, en þotan dró hann uppi er á leið og varð sjónarmun á undan í mark. Um 5.000 manns fylgdust með keppninni. Nýrþriggja dyra Civic á leiðinni Verið er að kynna nýja þriggja dyra útgáfu af Honda Civic í Evrópu. S-týpan er afar svipuð fimm dyra Civic, en er talsvert sportlegri að sjá og fyrstu fregnir herma að aksturstilfinningin sé í samræmi við það. Búast má við nýja bílnum í sölu þegar um næstu áramót. Þessi útgáfa hins síunga Civic á sérstaklega að höfða til ungra kaupenda, sem sækjast eftir góðri hönnun og krafti í 3-dyra bíl. Að utan er hönnunin í fjör- legra lagi og minnir í raun að mörgu leyti á coupé. Mikið hefur verið lagt í að bæta aksturseiginleika með því að fínstilla fjöðrunina, en stýr- isviðbragðið er mun betra fyrir vikið og bíllinn er sagður stein- liggja í beygjum. Hægt verður að velja á milli 1,8 lítra i-VTEC bensínvélar eða 2,2 lítra dísilvélar. Honda gerir ráð fyrir því að hirða allar Euro NCAP stjörn- urnar fimm hvað öryggi áhrærir fram á við og til hliðar, þrjár stjörnur fyrir öryggi gagnvart gangandi vegfarendum og fjórar stjörnur fyrír barnaöryggi, sem mun þá gera þennan nýja Civic einn hinn öruggasta í sínum flokki. Með S-týpunni verður þó ekki látið staðar numið, því Honda hyggst byggja á þeim grunni við gerð nýrrar R-týpu, sem á að sigla í kjölfarið nokkrum mánuðum síðar. Hún á að vera enn frekar að skapi þeirra, sem kunna að meta kraft og góða verkfræði undir húddinu.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.