blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 16

blaðið - 10.07.2006, Blaðsíða 16
76 I tíska MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ 2006 blaöiö Snyrtibudda mánaðarins Frísklegt og fágað Það er um auðugan garð að gresja þegar kemur að vörum í snyrtubudduna, enda kappkosta snyrtivörufram- leiðendur að kynna nýja strauma dag frá degi. Snyrtibudda Blaðsins að þessu sinni er sérstaklega skemmti- Ieg fyrir sumartímann, en áhersla er lögð á náttúrulegt en fallegt útlit. Með þessar vörur í farteskinu getur hver kona litið vel út og notið sín í sólinni - frískleg og fáguð. Mega-mushrooom Face Serum Hvert rakakremið á fætur öðru hefur komið frá snyrtivöruframleiðandanum Or- igins undanfarin misseri, sem öll hafa reynst vel fyrir húð íslenskra kvenna. Nýja mushroom kremið er svokallað serum krem og er í raun algjör rakabomba. Kremið nýtist best sem undirkrem áður en annað léttara rakakrem er sett á húðina. High impact maskari frá Clinique Geggjaður maskari sem sveigir og lengir augnhárin auk þess að gera þau lengri og fyllri með góðum lit. Það er þægilegt að nota maskarann og hann er þeim kostum gæddur að engar verða klessurnar eða önnur leiðindi sem geta fylgt brussugangi þegar hann er settur á. LOVE LY SARAH JESSICA PARKER THE FlftST SCENT Lagersala Verslunin flytur Póstsendum dí/s&fÁÁ/a/HÚjw Laugavegi 4, sími 551 4473 www.lifstykkjabudin.is ■ Farðu ekki hálfa leið MEÐ OKKUR - VIÐ HJALPUM ÞER AÐ GRENNAST LOSUM ÞIG VIÐ APPELSINUHUÐ AFEITRUM LIKAMANN STINNUM OG STYRKJUM FAKE Bake AIRBRUSH BRÚNKUMEÐFERÐIR KEYPIS MI 1 EUROWAVE WWW.ENGLAKROPPAR.IS STÓRHÖFÐl 17 SÍMI 5873750 Pro Lumiére frá Chanel Ljósbrjótandi faeði sem allar snyrti- buddur verða að' innihalda. Einn af þeim sem þekurfyel, en myndar ekki hallærislega grímu á andlitinu eða klessist í hársvörðinn. Nett lag af Pro Lumiére ásamt góðu sólarpúðri gerir andlitið flott sem aldrei fyrr. Náttúru- legt, fágað og virkilega flott meik. Gloss og afturgloss Það er náttúrlega engin kona með konum nema að eiga nokkur falleg gloss og helst í sem flestum litum og gerðum. Riflca glos- sinn númer FO5 er mjög fallegur - endist vel og gerir varirnar kyssilegri. Blanda af ferskju- og gulllituðum tónum gerir var- irnar sumarlegar og seiðandi. Star Bronzer sólarpúður Lancome sólarpúðrin hafa verið geysilega vinsæl undanfarin ár, enda frá- bær púður hér á ferð og sérstaklega falleg á litinn. Sólarpúður sem þetta er eitthvað sem allar konur verða að eiga, sérstaklega í sumar, og dúða létt á andlitið yfir daginn. Útkoman verður frísklegra andlit, meiri blómi og fallegra yfirbragð. Hægt er að fá mismunandi litatóna og velja má um glans- andi púður eða matt. Hvítur augnblýantur Það er algjörlega málið að setja hvíta augnlínu inn í augnhvarminn í sumar. Það stækkar augun og gerir andlitið bjartara yfirlitum. Augnblýantar frá Rifka henta vel í þetta, en þeir eru sérstaklega mjúkir og þægilegir í með- höndlun. Þá helst liturinn vel á. Blushcreme pearl Big shot frá MAC Þessi gyllti og glansandi kinnalitur frá Mac á heima í öllum snyrti- buddum, en hann gerir mikið fyrir heildarútlitið. Liturinn er þægilegur í notkun og auðvelt er að dreifa honum að vild, auk þess sem hann hentar flestum húðgerðum. Sérstak- lega flottur eftir sólarlandaferðirnar eða sundiaugarnar. PRO LUMIÉRE FONDDEtBNr MOOCLEUR UMFlANt PROfESSlONAl FlNlSH MAKEUP SPF 15 CHANEL

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.