blaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 1
FRJÁLST,ÓHÁÐ & ÓKEYPIS!
■BRUÐKAUP
Brúðarkjólatíska næsta
árs í máli og myndum
■ SPORT
Hneykslismálið á Ítalíu
losar um knáa kappa
| SlÐA 22
161. tölublað 2. árgangur
miðvikudagur
19. júlí 2006
Andarungar hafa nær horfið af tjörnum borgarinnar:
Mávar átu andarungana
■ Mávar hafa drepið fullorðnar endur ■ Lítið um unga ■ Ekki bara hægt að sakast við mávana
Ungarnir á tjörnum í Reykjavík hafa nær
horfið með öllu, samkvæmt Ólafi Sigurðssyni,
meindýraeyði í Reykjavík. Hann segir mávinn
ábyrgan fyrir að éta þessa loðnu vini barnanna.
Mávurinn gerir reyndar gott betur en Ólafur
segir dæmi þess að þeir hafi hrifsað í sig heilu
endurnar á tjörninni.
Fuglafræðingurinn, Jóhann Óli Hilmarsson,
kemur þó mávinum til bjargar og segir marga mis-
munandi þætti vera fyrir því að varp anda hefur
verið áberandi lítið í sumar og ekki sé sanngjarnt
að kenna honum einum um.
í síðasta mánuði tilkynnti Gísli Marteinn Bald-
ursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, að
skjóta ætti máva til að fækka þeim. Sílamávurinn
hefur leitað í meira mæli enn ofar í borgina þar
sem æti vantar. Afleiðingar þess virðast ekki ein-
göngu fara í taugarnar á mönnunum því andar-
ungar hafa vart sést í allt sumar, allavega í minni
mæla en oftast áður.
„Mávarnir hakka þá í sig,“ segir Ólafur Sigurðs-
son meindýraeyðir, en alvitað er að mávurinn
étur meira eða minna allt, en hann er þó aðallega
fiskæta. Ólafur segir ekki hægt að sjá annað en
að varp við tjarnir hafi farist fyrir og nær öllu
leyti í tjörninni. „Það er allt uppétið," segir hann.
Jóhann Óli Hilmarsson segir að það geti stafað
af mörgum mismunandi þáttum að ungarnir eru
færri nú en áður. Hann segir kalt tíðarfar í maí
geta haft allnokkur áhrif og varpsvæði andar-
innar hafi minnkað líkt og gerðist við lagningu
Hringbrautar.
„Það er auðvelt að kenna mávinum um hvarf
unganna ef manni er illa við þá.“ Hann segir
vissulega rétt að einstaka mávar sveimi yfir tjörn-
unum gagngert til að veiða unga og að sama gildi
hjá öðrum tegundum líkt og þegar tófa verður dýr-
bítur. „Eina leiðin til að losna við mávana er bara
að hætta að gefa þeim brauð á tjörninni," segir
Jóhann. Hann segir að menn þurfi samt ekki
að hafa áhyggjur því andarstofninn sé sterkur.
Hann mun ná sér ef skilyrðin verða rétt á næsta
ári að sögn Jóhanns.
valur@bladid.net
3777000 - wtnw./'//./o./'v
Jla/n 6 orqci/ a
Z/iI/joð
SafaríÁur eícfsíei'Álur
140 <pr. 6orgari með Íuöfö/Ju osifagí\
fersfu grœnmeíi oy sosu, fransfar
oy pepsi. 1.080.- Ár.
OBœ//u u/ð: HJe/Áon 100. - Ár
WWW.SVAR.IS
Vinsselasta .
fgrtólvaH’
ACER 3633WLMÍ
Intel Celeron 1.5Ghz örgjörvi
512MB DDR2 vinnsluminni
60GB haröur diskur
svan) -
SÍÐUMÚLA 37-SÍMI 510 6000
■ VEIÐI
Aukablað um
veiði fylgir
Blaðinu í dag
|SlÐUR 13-20
■ VEÐUR
Hýnandi veður
Sums staðar verða smá-
skúrir en jafnframt er búist
við hækkandi hitastigi, allt
upp 117 stig.
| SlÐA 2
■ LÍFIÐ
Barneignir
breyttu Brad
Var orðin þreyttur á að hugsa
bara um sjálfan sig.
| SIÐA26
tmmmm