blaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 6
6IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 blaöið
Átökin í Líbanon:
Veitingamenn mótmæla óréttlátu skattkerfi:
Önnur vél til Damaskus
Vél frá Air Atlanta Icelandic fór í
gær á vegum danska utanríkisráðu-
neytisins til að sækja Norðurlanda-
búa frá Damaskus. Er þetta í annað
sinn sem vél frá fyrirtækinu fer til
að sækja flóttafólk frá Líbanon.
Vélin Iagði af stað frá London um
hádegi í gær og var áætlað að hún
mundi lenda í Kaupmannahöfn um
tíuleytið í gærkvöldi. Um er ræða
vél af gerðinni Boeing 747-300 sem
tekur rúmlega 540 manns í sæti.
Eins og fram hefur komið fór vél
frá Air Atlanta Icelandic til Damas-
kus á mánudaginn til að sækja Is-
lendinga og aðra Norðurlandabúa
sem voru að flýja átökin í Líbanon.
Fleiri sóttir Utanríkisráðuneytið sendi
aðra vél til Damaskus til að sækja
Norðurlandabúa.
Vélin var á vegum íslenska utanrík-
isráðuneytisins en hún lenti í Kaup-
mannahöfn um hádegisbilið í gær.
SJONARHOLL
Gleraugnaverslun
fyrir svipmikla
STÆRRI VERSLUN
MEIRA ÚRVAL
Ekki sami vaskur hjá
öllum veitingahúsum
■ Skekkir samkeppnisstöðu. ■ Ófremdarástand á markaðinum.
Eftir Höskuld Kára Schram
Ófremdarástand ríkir í samkeppn-
ismálum veitingastaða vegna flókins
og óréttláts skattkerfis að mati veit-
inga- og ferðaþjónustuaðila. Staða
íslenskra veitingahúsa gagnvart er-
lendum samkeppnisaðilum er veik
segir veitingamaður í Reykjavík.
Brýn nauðsyn er að lækka matarverð
á íslandi, meðal annars með afnámi
tolla samkvæmt yfirlýsingu frá Sam-
tökum ferðaþjónustunnar.
í yfirlýsingu sem Samtök ferðaþjón-
ustunnar sendu frá sér í gær kemur
fram að ófremdarástand ríki í sam-
keppnismálum veitingastaða vegna
flóldns skattkerfis. Veitingahús er
krafin um mismunandi virðisauka-
skatta eftir því hvar varan er seld
og hvernig þjónustu er boðið upp á.
Skora samtökin á stjórnvöld að ein-
falda skattkerfið til að draga úr mis-
munun og gera það gegnsærra. Þá
benda samtökin á að brýn nauðsyn
sé að lækka matarverð hér á landi til
að bæta samkeppnisstöðu íslenskra
veitingahúsa á alþjóðavettvangi.
Samkvæmt Ernu Hauksdóttur,
framkvæmdastjóra Samtaka ferða-
þjónustunnar, virðist það vera
undir hælinn lagt hvar sé verið að
innheimta annars vegar 14 prósenta
virðisaukaskatt og hins vegar 24,5
prósent. „Útsölustaðir á veitingum
eru orðni Qölbrey ttari en áður. Bakarí
Ósáttir veitingamenn Staða ístenskra veitingahúsa gagnvart erlendum samkeppnisað-
ilum er veik að mati veitingamanna. Segja skattkerfið of flókið og matvælaverð of hátt.
hafa t.d. verið að setja upp kaffihús í
mjög miklum mæli. Þar er rukkað
um 14 prósenta virðisaukaskatt en
veitingahúsin hafa hins vegar verið
að borga 24,5 prósent skatt. Það að
sama vara skuli vera skattlögð með
mismunandi hætti eftir því hvar
hún er keypt er það sem við köllum
ófremdarástand."
Erna segir ennfremur mikilvægt
að gripið sé til aðgerða til að lækka
matvælaverð hér á landi. Veitingahús
á íslandi séu í hópi þeirra dýrustu í
Evrópu. „Það er margt sem hjálpast
að við að gera veitingarekstur á Is-
landi erfiðan. Ef hins vegar gripið er
til ráða til að lækka aðföng þá munu
veitingahúsin lækka verðið hjá sér.“
Guðvarður Gíslason, veitinga-
maður á veitingastaðnum Apótek,
tekur undir orð Ernu og segir núver-
andi reglur skekkja samkeppnina.
Hann segir íslensk veitingahús líða
fyrir flóknar skattareglur og dýr mat-
væli á alþjóðlegum samkeppnisvett-
vangi. „Sumir sem búa á íslandi fara
aldrei út að borða hér vegna verðlags-
ins. Fólk gerir hins vegar mikið af
því í útlöndum. Verði verndartollar
og vörugjöld felld niður mun það
sídla sér í lægra verði sem síðan mun
stuðla að því að fólk fari oftar út að
borða.“
hoskuldur@bladid.net
.EPING
Við tökur á Astrópíu Nokkrir gildir tugthúsiimir harma hlutinn sinn.
Astrópía:
Hollywood
Tökur á kvikmyndinni Astrópiu
standa nú yfir í Hafnarfirði, en
búið er að breyta gömlu frystihúsi
á Hvaleyrarholti í kvikmyndaver,
en flestar aðrar tökur fara einnig
fram í Firðinum. Með aðalhlut-
verkið fer Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir, vinkona landsmanna
úr Kastljósinu, en hún leikur sam-
kvæmisdömu, sem óvænt þarf
að standa á eigin fótum eftir að
kærastanum og fyrirvinnunni er
stungið inn. En blómarósin fær
í Hafnarfirði
sér vinnu í leikjaverslun fyrir full-
orðna, þar sem nerðirnir Sveppi og
Pétur Jóhann standa við diskinn
og kynna hana fyrir ævintýraver-
öld hasarblaða og hlutverkaleikja.
Áður en varir þarf hún hins vegar
sjálf að gerast ofurhetja og færist
þá fjör I leikinn. Myndinni leik-
stýrir Gunnar Björn Guðmunds-
son eftir handriti Ottós Geirs Borg
og Ævars Grímssonar, en það eru
þeir Júlíus Kemp og Ingvar Þórðar-
son sem framleiða hana.
Morð í Kenía:
Sex táningar myrtir
Sex piltar á tán-
ingsaldri, sem grun-
aðir voru um að hafa
framið rán og nauðg-
anir, voru myrtir af
æstum múg í borg-
inni Nakuru í Kenía.
Hópurinn réðist á drengina með spillingar og
kylfum, barði þá til dauða og kveikti lögreglunnar.
í Hkum þeirra. Með-
limir hópsins voru
sjálfskipaðir lög-
gæslumenn á svæð-
inu en slíkir hópar
eru algengir I land-
inu sökum mikillar
óvandvirkni kenísku