blaðið - 19.07.2006, Síða 2
2 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006 blaóiö
blaöi
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700* www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Fjaröarbyggð:
Helga Jóns
bæjarstjóri
Helga Jónsdóttir,
borgarritari,
hefur verið
ráðin bæjar-
stjóri í Fjarðar-
byggð. Staða
bæjarstjóra
þar eystra var
auglýst hinn 25.
júní og sóttu
20 manns um. Helga mun taka við
starfinu á næstu dögum.
Vetnisvagn Vetni verði áfram notað sem
aflgjafi á nokkra vagna.
íslensk nýorka:
Áfram vetni
á strætó
mbl.is Ákveðið hefur verið að fram-
lengja verkefni íslenskrar nýorku,
sem falið hefúr í sér rekstur vetnis-
knúinna strætisvagna í Reykjavík
til janúar 2007, en til stóð að hætta
rekstrinum í lok síðasta árs.
Að sögn Baldurs Péturssonar,
deildarstjóra í viðskipta- og iðnað-
arráðuneytinu, starfar nefnd innan
ráðuneytisins sem fjallar um aðild
opinberra aðila að alþjóðlegum vetn-
isverkefnum og sú nefnd mun skila
niðurstöðum fljótlega.
r- vC’ Örvar Arnarsson starfmaður
J . '< - jy<' •' J Glitnls
' Já, mér finnst það alltof hátt. Það
mætti lækka skatta."
%jaui :.ilwj - •■fi
Meira en tvö þúsund undirskriftir:
Vilja að Sigga á Grund
fái listamannalaun
■ Gott að fá hjálp, segir Sigga ■ Vinsæl alþýðulistakona
Eftir Val Grettisson
Rúmlega 2000 manns hafa skrifað
undir áskorun þar sem skorað er á
stjórnvöld að ganga ekki fram hjá
listakonunni Siggu á Grund þegar
listamannalaunum verður úthlutað
næst. Sigga á Grund hefur fengist
við útskurð síðan hún var tólf ára
gömul og er fyrir löngu orðin þjóð-
þekkt fyrir handverk sín. Henni
hefur verið neitað tiu sinnum um
listamannalaun en hún hefur engar
útskýringar á því hvers vegna henni
er sífellt hafnað.
Það var á Listakaffi á Þjórsár-
verum sem framtakssamir gestir
hófu undirskriftasöfnunina en for-
skrift hennar er, „ef hennar hand-
verk er ekki list, hvað er þá list?“
Nú þegar hafa ríflega tvö þúsund
skráð sig á listann og ljóst að þessi
alþýðulist nær til fjölmargra. Sigga
á Grund býr í nýsameinuðum Flóa-
hreppi á Suðurlandi og heldur þar
heimili.
Listamannalaunum er úthlutað af
fagnefndum sem metur hvert tilvik
fyrir sig. Þrír einstaklingar sitja í
Útskorin list Ljóst er að handverk Siggu
nær til afar margra
hverri nefnd en þær eru fjórar alls.
„Maður getur ekki unnið svona
langan vinnutíma og séð um öll
húsverkin þvi útskurðurinn er svo
tímafrekur," segir Sigga á Grund.
Hún vill í raun aðeins húshjálp til
þess að létta sér verkin svo hún
geti einbeitt sér algjörlega að út-
skurðinum. Hingað til hefur henni
gengið vel að selja verk eftir sig en
langar til þess að einbeita sér meira
að listrænum útskurði sem erfiðara
er að selja.
Verk Siggu hafa verið sýnd í
helstu galleríum landsins og má
þar nefna Hafnarborg í Hafnarfirði
og fleiri. Hún er sjálfmenntuð í út-
skurðarlistinni og hefur skorið út
frá barnsaldri.
Hún segir tímann líða og því
miður sé aldrei nóg af honum, þess
vegna vilji hún skilja meira eftir sig
en fyrirfram pöntuð verk. Húshjálp
væri því afar hentugur kostur til
þess að létta henni lífið á meðan
hún sinnir útskurðinum.
Sigga segist ekki vita hverjir hófu
undirskriftasöfnunina en þykir
vænt um hlýhug fólks til hennar.
„Það væri gott að fá smá hjálp til
þess að sinna listinni,“ segir Sigga
sem vinnur núna að því að skera út
hestamyndir.
valur@bladid.net
Á förnum vegi
Er matvælaverð
of hátt?
Kristján Gíslason námsmaður
Jú, það er tiltölulega dýrt. Sérstalega
þegar maður er í námi.“
Hrönn Magnúsdóttir í fríi
Já, það er alltof hátt. Það er hrein-
lega blóðtaka tyrir heimilið að versla
í matinn."
Eiríkur Árni Si
tónlistarmaðui
„Auðvitað er þaj
bara ekki hægt:
tryggsson
bf hátt. Þetta er ekki
Þórunn Snorradóttir
tryggingaráðgjafi
„Mér finnst það alltof hátt. Alldýrt þegar
maður rekur fjölskyldu."
'S'qrænmeti
sérmerkt þér!
0 Heíftsklrt0' -Léttskýjaft Skýjað Alskýjað Rignlng, Iftllsháttar^S^ Rlgning-öJ- Súld Snjókoma JÍ- . Slydda Sn|óé| fe~Skúr
Algarve 29
Amsterdam 31
Barcelona 30
Beriín 30
Chicago 21
Dublin 22
Frankfurt 33
Glasgow 26
Hamborg 27
Helsinki 20
Kaupmannahöfn 25
London 31
Madrid 31
Mallorka 30
Montreal 19
New York 26
Ortando 25
Osló 21
Paris 34
Stokkhólmur 19
Vín 31
Þórshöfn 13
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands