blaðið - 19.07.2006, Blaðsíða 19
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 19. JÚLÍ 2006
27
Því aáfaöri sem maður er,
því fleiri frumlega menn finn-
ur maður. Venjulegt fólk
sér engan mun á fólki.
Afmælisborn dagsms
GEORGE MCGOVERN STJÓRNMÁLAMAÐUR, 1922
EDGAR DEGAS LISTMÁLARI, 1834
kolbrun@bladid.net
Orgelleikur á há-
degistónleikum
FimrnTudaginn 20. júlí leikur
Douglas A.
Brotchie,
organistiHá-
teigskirkju,
á hádegis-
tónleikum
tónleika-
raðarinnar
Alþjóðlegs
orgelsum-
ars í Hall-
grímskirkju.
Tónleikarnar,
sem byrja kl. 12, hefjast á Korn-
elíusarmarsi eftir Felix Mend-
elssohn upphaflega skrifaður
fyrir hljómsveit árið 1841. Næst
á eftir leikur Douglas Prelúdíu
og fúgu í G-dúr eftir J. S. Bach.
Þriðja verkið er Mozart Chan-
ges eftir ungverska tónskáldið
Zsolt Gárdonyi sem hann
skrifaði fyrir Mozart-tónlistarhá-
tíðina [ Oklahoma árið 1996. Þar
vinnur hann með stef úr einum
píanókonserta Mozarts á mjög
skemmtilegan hátt. Tónleik-
unum lýkur með einu þekktasta
orgelverki franska orgelskólans
Adagio og Tokkötu úr 5. orgel-
sinfóníu Charles-Marie Widor.
Andlit norðurs-
ins í Vestmanna-
eyjum
I sumar gefst Vestmanney-
ingum og gestum þeirra
tækifæri til að virða fyrir sér
Ijósmyndir Ragnars Axels-
sonar sem komið hefur verið
fyrir utan á salthúsi ísfélags
Vestmannaeyja við Kirkjuveg
og Strandveg. Sýningin Andlit
norðursins verður formlega
opnuð föstudaginn 21. júlí kl.
15.00 með ávarpi bæjarstjóra,
Elliða Vignissonar. Sýningin er
sú sama og Edda útgáfa með
stuðningi KB banka setti upp á
Austurvelli í Reykjavík sumarið
2005 og hátt í 200.000 manns
sáu. Myndirnar eru úr bókinni
Andlit norðursins sem komið
hefur út á fjórum tungumálum
og hlaut frábærar viðtökur bóka-
kaupenda auk þess sem kápa
bókarinnar var valin besta kápa
ársins 2004 í vali prentsmiðj-
unnar Odda.
Douglas A. Brotchie.
ia Hákon i géðmm félagsskap
Með Paul Cézanne
og Andy Warhol
ulda Hákon myndlist-
arkona vinnur nú að
sérstöku verki, stórri
lágmynd af nöktum
konum. Hollenskur
listsafnari sem býr á Spáni, sterkur
fjármálamaður, pantaði myndina
sérstaklega frá Huldu. Hollending-
urinn safnar nektarmyndum og
fyrirhugar sýningu viðs vegar um
Evrópu á hundrað nektarmyndum
úr eigu sinni. Meðal myndlistar-
manna sem eiga verk á sýningu list-
safnarans ásamt Huldu eru Paul
Cézanne, Andy Warhol, André
Derain, Raoul Dufy, Marlene Dum-
as, Lucio Fontana, Sam Francis,
Francis Picabia, Thomas Ruff,
Stephan Balkenhol, George Segal
og Karel Appel.
Mynd eftir pöntun
Hulda Hákon segist lítið vita um
hollenska listsafnarann og kemur
sér undan því að gefa upp nafn
hans. „Ég hef ekki haft samskipti
við hann og hef bara einu sinni
hitt hann,“ segir hún. „Hann er
með mann í vinnu hjá sér sem heit-
ir Gus og ég hringi bara í Gus ef
mig vantar upplýsingar. Þessi lista-
verkasafnari sá verk eftir mig sem
er í lobbýinu á hótel 101 og sýnir
kraðak af fólki. f framhaldinu bað
hann mig um að vinna fyrir sig
nektarmynd. Ég skila henni í ágúst
og í haust eða vetur hefst síðan far-
andsýning á nektarmyndunum. Ég
veit ekki hvar fyrsta sýningin verð-
ur haldin. Ég veit svo lítið um þetta,
Hluti af lágmynd Huldu Hákon. Mynd-
in verður sýnd viðs vegar í Evrópu.
að gera þetta. Ég ákvað að vinna inn
í þá goðsögn að íslenskar konur séu
fallegar. Égheld að það sé tvær ástæð-
ur fyrir því að sú saga er svo langlíf.
í fyrsta lagi kurteisi erlendra gesta
og síðan markaðssetning íslenskra
ferðamálafyrirtækja. En af því við
búum á hjara veraldar þá er ágætt
að orna sér við eitthvað og við get-
um ornað okkur við hugmyndina
um fegurð íslenskra kvenna. Ég
ákvað að hafa þær allar í passlegum
holdum og með stór brjóst. Brjóstin
verða næstum því jafn mikilvæg og
andlitin. Svo ætla ég að reyna að
gera þær allar sætar.”
Þegar Hulda er spurð hvort hún
fái ekki vel borgað fyrir verkið seg-
ir hún: „Þótt svona mynd sé dýr þá
tekur mig tvo mánuði að gera hana.
Mér finnst allt í Iagi að fá greitt
eins og dönsk hjúkrunar.kona.“
Hulda Hákon. Hollenskur listsafnari, sem safnar nektarmyndum, pantaði mynd eftir
hana sem hún vinnur nú að.
treysti því bara að þetta verði allt
fínt. Nú er ég að einbeita mér að
því að gera nektarmyndina."
Fyrsta nektarmyndin
Þetta er fyrsta nektarmyndin
sem Hulda Hákon gerir á ferlinum.
„Ætli það sé ekki bara út af almenn-
um teprugangi sem ég hef ekki lagt
i það áður. Nú stendur það allt til
bóta,“ segir hún. „Fyrstu viðbrögð
mín við tilboðinu voru að nektar-
myndir væru kannski ekki mínar
ær og kýr en svo finnst mér gaman
menningarmolinn
Jane Grey steypt af stóli
Á þessum degi árið 1553 var hin
fimmtán ára gamla Jane Grey
steypt af stóli eftir níu daga valda-
setu sem drottning Englands. Hún
var tekin af lífi ári seinna. Jane
var barnabarnabarn Hinriks VII
og var snemma talin afburða gáf-
uð. Hún giftist Guildford Dudley
sem var sonur Johns Dudleys eins
valdamesta manns Englands. John
Dudley notaði tengdadóttur sem
peð í valdatafli sínu og þegar hinn
ungi Játvarður VI, konungur Eng-
lands, lá fyrir dauðanum fékk Dudl-
ey hann til að gera Jane að arftaka
sínum. Þegar hann lést varð Jane
drottning. Blóð-María, hálfsyst-
ir Játvarðs og fylgismenn hennar,
steyptu Jane af stóli eftir níu daga.
Jane og eiginmaður hennar voru
hálshöggvin árið 1554. Árið 1833
gerði málarinn Paul Delaroche
mynd af aftöku Jane Grey sem nú er
í National Gallery.
Stígöu inn I birtuna!
Þú tekur fleiri myndir í lélegu Ijósi en þú gerir þér grein fyrir. Myndir sem eru engum til ánægju. Finepix F30 tekur frábærar myndir
f frábærum skilyrðum og einstakar myndir f lélegum skilyrðum. Því hún er með einstakt Ijósnæmissviö IS0100-3200,1 fullri upplausn,
sem er meira en nokkur önnur vél, auk þess aö vera með ótrúlega rafhlöðuendingu - 580 skot á hleöslu!
F30 er búin "Real Photo Technology" sem er blanda af myndflögu, linsu, örgjörva og hugbúnaði sem saman gefa flottustu
Fujifilm vélunum forskot á keppinautana.
Láttu myndgæöm ráða og veldu Finepix F30!
7IPA
200G
TIPA
véJársíns
2006
®il FUJIFILM ©3
OFFiciflL imeGins spoosor
GCRrKSrnr
Skipholti 31, sími S68-0450 Ijosmyndavorur.is
BSztffl
MYNDlKI