blaðið - 19.07.2006, Page 22
30
MIÐVIKURDAGUR 19. JÚLÍ 2006 Maðiö
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞER?
Ertu að missa af strætó, Gísli?
,,/n, því miðnr virðast ofmargir borgarbúar vera að ntissa af
strætó, því ágæta samgöngutæki. Því viljnm við breyta."
Gísli Marteiuu Baldursson, formaður
uiiihvcrfismðs Reykjavíkurborgar.
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn vilja ekki útiloka að
Reykjavíkurborg dragi sig út úr byggðasamlaginu
Strætó enda sé leiðakerfið ekki nægilega vel heppn-
að og mikið tap á rekstrinum.
Smáborgarinn
HANN VAR
ÓÖRUGGUR
ÍÆSKU
(fyrradag byrjaði nýr þáttur í
ríkissjónvarpinu, Glæpahneigð
(Criminal Minds), sem Smáborg-
arinn horfði spenntur á enda
fjallaði hann um raðmorðingja og
sérþjálfaða deild innan alríkislög-
reglunnar bandarísku. Þátturinn
var svona í anda Silence of the
Lambs nema það er engin Clar-
ice Sterling heldur miðaldra karl
sem kennirafbrotafræði.
Ef einhver hélt að greiningar-
deild KB-banka væri spennandi
þá missti Smáborgarinn vatnið
við það eitt að horfa á þetta
mæta fólk. Ekki síðan í CSI hefur
komiðjafnfrámunalega klártfólk
sem nánast veit alit og skilur allt.
Með þeim takmörkuðu upplýs-
ingum sem aðalsöguhetjan fékk
(hendurnar tókst henni að segja
deili á morðingjanum, frá áföllum I
barnæsku til hvaða rakspíra hann
notar. Gamalt borðspil sýndi fram
á að árásarmaðurinn væri óvenju
árásargjarn, hann upplifði áfall
í æsku, hann væri áhugamaður
um gelísku og svo framvegis. Af
svona innsæi er Smáborgarinn
hrifinn enda er ýmislegt sem fer
fram hjá honum vegna þess að
hann er oft utan við sig.
Smáborgarinn hefur séð ófáa
sjónvarpsþætti um ævina en
aldrei hefur hann séð þátt þar
sem jafnmikið er reynt að sýna
fram á hvað hann höfði mikið til
vitsmunanna.Áfimm mínútna
fresti kom einhver frasi sem
Oscar Wilde eða Nietzche eða
Yoda áttu að hafa sagt við eitt-
hvert sögulegt augnablik.
Sakamálin voru ekki sérlega
djúpstæð og þónokkrar sál-
fræðiklisjur sem fengu að fljóta
með hinu ofurklára FBI-teymi.
Gáfulegu frasarnir voru aftur
á móti það sem gerði þáttinn
óþolandi. Fólk mátti ekki fá sér
brauðbeyglu án þess að einn
Wilde-frasi félli ekki með myisn-
unum.Smáborgarinn hugsaði
með sér hvernig lífið væri ef fólk
talaði svona eins og tamdir apar.
„Teningunum er kastað," segir
félaginn og telurtíu áfram I Mata-
dor. „Þeir geta tekið líf okkar en
þeir munu aldrei taka frelsi okkar,"
segir formaður samtaka um
bætta byggð á Miðnesheiði.
Af hverju að tala eðlilega þegar
þú getu talað I misgáfulegum
frösum. Gríptu tækifærið, gríptu
daginn, gríptu Kit Kat.
Blaölö/FMi
Saknar þess að vera
ekki skammaður
Ásgeir Hannes Eríksson, veitingamað-
ur á Blásteini í Árbænum setur hljóðan
þegar hann er spurður út í ástríðu sína.
Eftir svolitla þögn og vangaveltur seg-
ir hann „Fyrir nokkrum árum hefði
ég hreint örugglega svarað því til að
ástríða mín væri matur en ég held að ég
hafi ekki ástriðu fyrir neinu í dag.“
Það er erfitt með að trúa því að mað-
urinn með umdeildu skoðanirnar geti
ekki hugsað sér neitt sem kemur blóð-
inu á hrey fingu en hann er fyrsta kastið
alveg viss um að hafa ekki meiri ánægju
af einu fremur en öðru. Maðurinn sem
hefur undanfarin ár skotið samfélaginu
á skjön með yfirlýsingum sem hafa far-
ið alveg öfugt ofan í margan manninn
hlýtur þó að hafa sérlega gaman af líf-
legum umræðum. „Gott rifrildi hleypir
blóðinu alltaf á gott flæði ef maður nær
sér á strik,“ segir Ásgeir. „Ég var í tæp
ellefu ár með vikulega pistla í blaðinu
Tímanum og öllum þeim blöðum sem
leidd voru af honum þar til DV varð til.
Þar fékk ég góða útrás með pistlaskrif-
um þar sem ég valdi mér venjulega að
skamma einhvern. Ég man nú fyrst og
fremst eftir því frá þessum tíma að það
voru engir sem vildu svara mér. Ég beið
og beið en sárafáir svöruðu. Þá sjaldan
sem það gerðist var það bara eitthvert
Kvennalista- og Alþýðubandalagskvapp
sem allir eru löngu orðnirleiðir á. En ég
sakna þess að vera ekki skammaður."
Ásgeir segir þó dögum rifrilda síður
en svo lokið. „í dag rífst ég mikið við
kúnnana yfir borðið á Blásteini, bara
um allt á milli himins og jarðar, en
samt koma þeir allir aftur.
Þeir koma til að fá sinn skammt af
rifrildi með matnum enda er hér oft
mjög glatt á hjalla. Maður ríður þó ekki
feitum frá þeim viðskiptum enda er að
venju tekið hraustlega á móti,“ segir Ás-
geir.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri linu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
4 S 8 2 6 9 3 7 1
6 9 7 3 4 1 2 5 8
1 2 3 5 7 8 4 6 9
9 4 6 1 8 3 5 2 7
5 3 1 9 2 7 6 8 4
7 8 2 4 5 6 9 1 3
8 1 4 6 9 5 7 3 2
2 7 5 8 3 4 1 9 6
3 6 9 7 1 2 8 4 5
Gáta dagsins:
3 2 4 8
8 7 4
7 6 9 1
3 4
6 1 7 9
3
9 4 8 1 2
5
1 4 7 9 5 3
Þessi svampur er handónýtur,
allt vatnið er horfið.
HEYRST HEFUR...
Flesta daga fæst Össur Skarp-
héðinsson við stjórnmál
og skrif, sem
njóta á má á
vefnum (ossur.
hexia.net). En
hann sinnir
fleiri hugðar-
efnum og þar ber sjálfsagt
hæst starf hans í SPES-sam-
tökunum, en þar er hann
formaður. Markmið samtak-
anna er að hlúa að börnum í
þriðja heiminum. í gær héldu
þrír vinir, þeir Gísli Hvann-
dal Ólafsson, Guðjón Heiðar
Valgarðsson og Dagbjartur
Ingvarsson, af stað í hljólreiða-
ferð eftir hringveginum til
styrktar SPES, en allir geta
vitaskuld lagt samtökunum
lið með því að fara á vefinn
(www.spes.is) og skrá sig í
þau...
Fyrir skemmstu var auglýst
eftir nýjum bæjarstjóra
á Bolungarvík og sótti
fríður flokkur manna um
starfið. Það voru þau Glúmur
Baldvinsson, blaðamaður
með meiru, Grímur Atlason,
tónleikahaldari, Guðrún Stella
Gissurardóttir, forstöðumaður
Svæðisvinnumiðlunar Vest-
fjarða, HlynurÓmarSvavars-
son, framhaldsskólakennari,
Indriði indriðason, viðskipta-
fræðingur, Kristján Jón Guð-
mundsson, hjá Atlantsskipum,
Róbert Örvar Ferdinandsson,
framhaldsskólakennari,
Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir,
viðskipta- og iðnrekstrarfræð-
ingur, Torfi Jóhannsson, við-
skipta- og rekstrarfræðingur,
og Tryggvi Harðarson, fyrrum
bæjarstjóri á Seyðisfirði. í
Víkinni eru menn
himinlifandi yfir
þessum mikla
áhuga og er talað
um að verið sé að
snúa atgervisflóttanum við...
Sem kunnugt er hélt Björn
Ingi Hrafnsson i langþráð
frí á dögunum, enda vafa-
laust kominn tími til þess að
hlaða geymana eftir heldur
drjúgar tarnir síðustu mán-
uði og misseri. En fríið hefur
þó ekki reynst fullkomlega
áreynslulaust fyrir Björn
Inga, því undir lok Kanarí-
eyjadvalar
hans mölbraut
hann vinstri
höndina í
fótbolta. Björn
Ingi kom heim
í gær og lét það verða sitt
fyrsta verk að fara á bráða-
móttökuna til þess að huga
að höndinni, en hann snýr til
starfa á morgun, enda Villi
Vill á leið í frí...
Hvíslað er um það við
Austurvöll að ein helsta
vonarstjarna Sjálfstæðis-
flokksins, Bjarni Bendiktsson,
kunni að láta af
stjórnmálaþátttöku
fyrr en varir. Er
rætt um að eftir
honum sé sóst til
þess að taka að sér að leiða
stórfyrirtæki en ljóst má vera
að Bjarni er ekki metnaðar-
laus á vettvangi viðskiptalífs-
ins, eins og hann á kyn til...
andres.magnusson@bladid.net