blaðið - 01.08.2006, Side 4

blaðið - 01.08.2006, Side 4
4IFRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaöið Fíkniefnamisferli: Með dóp í bílnum Fimm menn þurftu að gista fangageymslur lögreglunnar í Keflavík grunaðir um fíkniefn- amisferli á sunnudagsmorgun. Fíkniefnin fundust í bíl þeirra og er talið að um örvandi efni sé að ræða. Ekki liggja fyrir upplýs- ingar um magn efnanna. Allir mennirnir eru góðkunningjar lögreglunnar. Grundarfjörður: Vel heppnuð bæjarhátíð Hátíðin „Á góðri stundu" sem haldin var á Grundarfirði um helgina heppnaðist vel en hún var haldin í níunda sinn í ár. Á milli tvö og þrjú þúsund manns mættu á svæðið og skemmtu sér við fjölbreytt skemmtiatriði. Nokkur rigning var á föstudag- inn og laugardaginn en svo stytti upp auk þess sem lund gesta batnaði. Kom þetta fram á skessuhorni.is. Innbrot: Skóþjófar í Keflavík Tveir menn voru staðnir að verki við innbrot í íþróttaverslun í Keflavík aðfaranótt sunnudags. Menn- irnir eru grunaðir um að hafa brotið rúðu á útsýnisglugga til þess að komast inn. Þeir játuðu að hafa tekið skópör ófrjálsri hendi en neita að hafa brotið rúðuna og brotist inn. Málið er í rannsókn. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands: „Tími gleði og árangurs" ■ Öðruvísi vegferð ■ Nýtir embættið þjóðinni til gagns ■ Fjölmiðlalögin erfið ákvörðun Eftir Höskuld Kára Schram hoskuldur@bladld.net „Ef einhver hefði setið með mér fyrir tíu árum og lýst þeim tíma sem framundan væri þá hefði ég talið það vera fjarstæðukennda spádóma. Það sannar kannski enn á ný að eng- inn veit sína ævi fyrr en öll er,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti ís- lands. í dag eru liðin tíu ár frá því að hann tók formlega við embætti for- seta íslands. Ólafur segist ekki vera búinn að gera það upp við sig hvort hann bjóði sig fram aftur að tveimur árum liðnum. Viðburðaríkur tími „Mér hefur þótt það einna mikil- vægast í mínu starfi sem forseti að hafa haft tækifæri til þess að stuðla að árangri íslendinga á svo mörgum sviðum. Að fá að leggja lið í þeirri allsherjar útrás sem hefur einkennt íslenskt samfélag á undanförnum árum,“ segir Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti íslands. Ólafur segir þau tíu ár sem liðin eru frá því að hann tók við embætti hafa verið við- burðaríkur tími. „Þetta hefur verið tími gleði og árangurs. En líka tími sorgar og erfiðleika. Það er margt sem leitar á hugann við þessi tíma- mót. Þessi vegferð hefur á margan hátt verið öðruvísi en við væntum í upphafi. Það eru bæði persónulegar ástæður sem og aðrar. Erfiðleikar sem við fórum í gegnum við veikindi Guðrúnar Katrínar og andlát hennar. Síðan samband okkar Dorrit og til- koma hennar og fjölmargt annað.“ Ólafur segir í embætti sínu hafi hann lagt áherslu á að auka virkni forsetaembættisins á alþjóðavett- vangi. „f tíð Vigdísar hófst aukin virkni forsetaembættisins á alþjóða- vettvangi. Sú þróun hefur haldið áfram af miklum krafti í minni tíð. Ég hef reynt á virkan hátt að nýta kostí forsetaembættisins þjóðinni til gagns og ég hef sannfærst um að embættið er afar mikilvægt tæki fyrir fslendinga í hinu alþjóðlega samkeppnisumhverfi." Ekki gert upp hug sinn Eitt það mál sem vakið hefur hvað mesta athygii í forsetatíð Ólafs var þegar hann neitaði að skrifa undir fjölmiðlalögin árið 2004. Ólafur segist enn vera fullviss um að sú ákvörðun hafi verið rétt. Hann segir þó að pólitískur bakgrunnur sinn hafi gert þessa ákvörðun erfiðari. „Ég er enn sannfærðari í dag en þá að ég tók rétta ákvörðun. Á vissan hátt var kannski erfiðara fyrir mig Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands Segist ekki vera búinn aö gera upp hug sinn hvort hann bjóöi sig fram aftur. BMmeinarHugi II lk að taka þessa ákvörðun vegna þess að ég kom af vettvangi stjórnmál- anna. Ég gerði mér grein fyrir því að ég yrði kannski sakaður um það að vera með einhver annarleg og jafnvel flokkspólitísk sjónarmið í slíkri ákvörðun. Að því leyti má segja að bakgrunnur minn hafi gert mér erfiðara fyrir vegna þess að það var auðveldara að ráðast á mig. Á hinn bóginn hafði reynsla mín afvettvangi þjóðmála gefið mér djúpstæðari sannfæringu fyrir því hve nauðsynlegt væri að um skipan fjölmiðla væri víðtæk þjóðarsátt og frelsi þeirra væri ekki hindrað með valdbeitingu og þvingunum því slíkt gæti haft mjög alvarlegar afleið- ingar fyrir eðli okkar lýðræðis og stjórnskipan.“ Þá segist Ólafur ekki enn hafa gert upp hug sinn hvort hann muni bjóða sig fram aftur eftir tvö ár. „Ég hef ekki tekið neina ákvörðun um það. Það er í einlægni sagt. Það byggist á þeirri lífsreynslu sem þessi tíu ár hafa fært mér að það er hægt að vera með alls konar áætlanir og áform og svo breytist allt á einni klukkustund eða einni morgunstund. Það kenndi reynslan mér þegar við fengum til- kynningu um veikindi Guðrúnar Katrínar einn laugardagsmorguninn og það breytti öllum okkar áformum og lífi. Svo að ég hef einsett mér að taka þá spurningu til umfjöllunar með sjálfum mér, okkur Dorrit, og fjölskyldunni einhvern tímann á seinni hluta næsta árs. “ I I I I l I I Gúmmívinnustofan SMDírasjFddGsDs Öryggi bílsins byggist á góðum hjólbörðum • Polar rafgeymaþjónusta • Rafgeymar fyrir fellihýsi og mótorhjól • Frí ísetning og mæling 2 Michelin dekkar allt Gúmmívinnustofan - SP dekk • Skipholti 35,105 RVK sími 553 1055 • www.gummivinnustofan.is Tekjublað Frjálsrar verslunar: Ríflega 500 þéna milljón eða meira á mánuði Um 500 manns eru með milljón á mánuði eða meira í laun samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í gær. Þar af eru 57 konur. Tekjuhæsti einstaklingurinn í sam- antektinni er Hreiðar Már Sigurðs- son, forstjóri KB banka, með 22,5 milljónir í tekjur á mánuði. Launa- hæsta konan, Ragnhildur Geirs- dóttir, fyrrverandi forstjóri hjá FL Group var með 7,3 milljónir á mán- uði samkvæmt úttektinni. Forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, er launahæstur á meðal ( wá Tekjuhæstur allra með 22,5 I < • milljónir á ■ m.. .. ÍL: mánuði. dÉfit/ íÆ Hroiðar Már Slgurðsson forstjóri KB banka stjórnmála- og embættismanna með 1,7 milljónir en næstur á eftir honum er nýliðinn á stjórnarheimilinu, Jón Sigurðsson ráðherra og fyrrverandi Seðlabankastjóri en hann var með x,2 milljónir í mánaðarlaun á síðasta ári. Vigdis Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti er í þriðja sæti listans, einnig með 1,2 milljónir. Lægstur á meðal tilgreindra stjórnmálamanna er Guðjón Ólafur Jónsson alþingis- maður en hann hafði 357 þúsund krónur í tekjur á mánuði. Læknar eru fyrirferðamiklir á list- anum eins og oft áður og alls eru 121 læknir með milljón eða meira í laun. Það er Júlíus Valsson gigtarlæknir sem trónir á toppnum í læknastétt með 2,3 milljónir á mánuði. 1

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.