blaðið - 01.08.2006, Síða 10
10 I FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaAÍA
Rússland:
Mikil olía lak út
Yfirvöld í Moskvu tilkynntu í
gær um stórfelldan olíuleka í Bry-
ansk-héraði sem er við landamæri
Rússlands, Úkraínu og Hvíta-Rúss-
lands í. Lekinn kom upp í einni
stærstu olíuleiðslu Rússlands
á laugardag en í gegnum hana
renna 1,2 milljónir fata sem fara
til Austur- og Mið-Evrópu á degi
hverjum. Ekki er enn vitað hvort
að lekinn muni hafa áhrif á útflutn-
ing á olíu til álfunnar.
Misvísandi fregnir berast af
lekanum. Rússnesk stjórnvöld
segja hann mikinn og alvarlegan
á meðan að talsmenn fyrirtæk-
isins sem á leiðsluna segja hann
minniháttar.
Að sögn talsmanns orkumála-
ráðuneytis Rússlands dreifðist ol-
ían um 10 ferkílómetra svæði og
óttast er að hún hafi mengað grunn-
vatnsból. Orkumálaráðuneytið
telur að lífríki svæðisins stafi mikil
ógn vegna afleiðinga lekans.
Rússneskar olíuleiðslur Tals-
menn Transneft gera lítið úr fréttum
um olíulekann
Þrátt fyrir áhyggjur yfirvalda
dró talsmaður ríkisfyrirtækisins
OAO Transneft, sem á og rekur ol-
íuleiðslur Rússlands, úr fréttunum
í gær. Hann sagði að olían hafi
dreifst um mun minna landsvæði
en yfirvöld halda fram og að starfs-
menn fyrirtækisins hafi lokið við
að hreinsa lekann upp.
Nikótínlyf:
Hækka um
allt að fjórðung
Verð nikótínlyfja hefur hækkað
mikið á þessu ári samkvæmt verð-
könnun sem Neytendasamtökin
gerðu í síðustu viku og birtu í gær.
Þá hefur dregið úr verðmuni milli
apóteka þar sem verðið í því apó-
teki sem er ódýrast hefur
hækkað mest en minnst
er hækkunin hjá því apó-
teki sem er dýrast.
Nikótínlyfjaverð hefur
hækkað um tæpan fjórð-
ung að
meðaltali í Apótekinu en er þrátt
fyrir það sex prósentum ódýrara
en í Lyfjum og heilsu þar sem
verðið er hæst. Hækkun nikótín-
lyfja er þó minnst í Lyfjum og
heilsu á árinu, um 17 prósent.
nícorette
cotetteB
NICORETTE
lSmg/T6h
.
Voruvm/cuJ taka/ucpp vyýjar vórur
frá/ Vcuníty faXr oyy Lcuuuma/
frábcer verð otytyceðv ■ Pev^óvuAleg' pjónuátcv
Hamraborg 7 Kópavogi Sími 544 4088
www.ynja.is Útsölustaðir: Esar Húsavík Dalakjör Búðardal
Miðausturlönd
■ Alþjóðlegt herlið á að styðja við bakið á Líbönum
■ ísraelar boða hertaKaðgerðir gegn Hizballah
Nöturleg aðkoma
Líbanskir hermenn
og óbreyttir borgarar
leita að fórnarlömbum
í húsarúst 1 Qana
Mótmæli Iranskar konur skreyttu sig með eftirlíkingum af sjálfsmorðsprengj-
um í Teheran í gær og mótmæltu hernaðaraðgerðum Israela í Líbanon
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, segistsannfærð
um að samstaða sé að myndast meðal
helstu ríkja heims um hvernig megi
binda enda á átökin milli fsraela og
vígamanna Hizballah. Hún lét þessi
orð falla áður en hún hélt til Banda-
ríkjanna eftir að hafa fundað með
ráðamönnum í ísrael í gær.
Utanríkisráðherrann mun leggja
fram tillögur að lausn málsins fyrir
öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í
þessari viku og segir það geta orðið
til þess að skapa varanlegan frið á
svæðinu.
Vill varanlega lausn
Rice segir að með því að leggja fram
drögin nú geti aðildarríki öryggisráðs-
ins látið af deilum um tímasetningu
vopnahlés og einbeitt sér þess í stað
að lausn sjálfrar deilunnar. Þrátt fyrir
hin hörðu viðbrögð alþjóðasamfé-
lagsins vegna loftárásarinnar á Qana
á sunnudag og æ háværari kröfur
helstu ríkja heims um umsvifalaust
vopnahlé neita ísraelar að fallast á
slíkt. Bandaríkjamenn eru ekki reiðu-
búnir til þess að þrýsta á stefnubreyt-
ingu stjórnvalda í Tel Avív en leita
þess í stað að varanlegri lausn deil-
unnar á vettvangi öryggisráðsins.
Ríkisstjórn fsrael féllst á það á
sunnudag að láta af loftárásum í 48
stundir meðan rannsókn á hinni
mannskæðu árás á þorpið Qana í
suðurhluta Líbanons fer fram en að
minnsta kosti 54 létust í árásinni á
sunnudag og var meirihluti fórnar-
lambanna börn og konur, héldu þeir
loftárásum áfram í gær en ráðamenn
höfðu slegið þann varnagla að þeir
myndu grípa til árása gæti það komið
í veg fyrir eldflaugaárasir. Vigamenn
Hizballah svöruðu fyrir sig með
eldflaugaárásum.
Vopnahlé og friðargæsla
Að sögn Rice byggist mögulegt sam-
komulag umlausn deilunnar áþremur
stoðum. f fyrsta lagi vopnahlé, í öðru
lagi á umræðum um hvernig megi
forðast að það skerist aftur í odda á
milli ísraels og Hizballah og í þriðja
lagi á að alþjóðlegt friðargæslulið
verði sent til Líbanon og aðstoði her
landsins og ríkisstjórn að ná fullum
tökum á stjórn þess. Þriðja atriðið
felur meðal annars í sér að komið
verður í veg fyrir stuðning Sýrlands
og írans við vígamenn Hizballah í
Líbanon. En þrátt fyrir að Rice sé
sannfærð um að samkomulagið verði
til þess að tryggja varanlegan frið er
enn deilt um hvort að umsvifalaust
vopnahlé sé forsenda þess að það nái
fram að ganga. Einnig telja margir
að ómögulegt sé að leysa deiluna án
þess að Sýrlendingar og íranar komi
að málum. Flestir bandamenn Banda-
ríkjanna eru á þeirri skoðun að átök-
unum verði að linna strax. Aðeins þá
verði hægt að vinna að langtímalausn
deilunnar. Líkurnar á því minnkuðu
verulega í gær þegar Amir Peretz,
varnarmálaráðherra fsraels, lýsti þvi
yfir í gær að stjórnvöld myndu halda
áfram aðgerðum gegn Hizballah og
þær yrðu hertar á næstunni. Hátt-
settir menn innan hersins hafa látið
hafa eftir sér að það taki ísraelska her-
inn vikur frekar en daga að ná fram
markmiðum hernaðaraðgerðanna.
Það kann að vera að áframhaldandi
hernaður muni gera Bandaríkja-
mönnum enn erfiðara fyrir að ná
fram sátt um lausn deilunnar á vett-
vangi öryggisráðsins.
Sífellt umdeildari aðgerðir
Aðgerðir fsraelsmanna verða um-
deildari með hverjum deginum sem
líður og fjölmörg ríki heims hafa lýst
yfir vanþóknun sinni á sprengjuárás-
inni á Qana. Hún þykir minna um
margt á árás ísraelsmanna á sama
stað árið 1996. Þá létust um 100 Líb-
anar sem höfðu leitað skjóls í stöðvum
Sameinuðu þjóðanna og vakti árásin
hörð viðbrögð meðal alþjóðasamfé-
lagsins. Yfirvöld í Líbanon segja að
um 750 manns hafi fallið í landinu frá
því að átökin hófust. Meirihluti þeirra
eru óbreyttir borgarar. Um fimmtíu
manns hafa fallið í ísrael, þar á meðal
átján óbreyttir borgarar.