blaðið - 01.08.2006, Síða 18

blaðið - 01.08.2006, Síða 18
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006 blaðiö medela Harmony" Handdæla li ÝM Örvar fyrst og mjólkar svo www.ymusJs UNGBARNARÓLUR HJÁ OKKUR FÁIÐ ÞIÐ ÚRVAL AF UNGBARNARÓLUM 18 I BÖRN Holl og góð næring börnum nauðsyn Holl og góð næring eröllum börnum nauðsynleg þarsem líkami þeirra er að stækka og þroskast. Góðar matarvenjur hefjast snemma á lífsleiðinni og er um að gera að halda hollum mat að börnunum. Hvað er barnið að borða? Rannsóknir sýna að börn borða alltof mikið af hvítu brauði, kexi og kökum, flögum, súkkulaði og gos- drykkjum. Þetta á við um íslensk börn eins og svo mörg önnur þó að skortur á almennilegum mat sé ekki vandamálið. Mikið hefur ver- ið talað um að börn á íslandi séu að verða of feit en það stafar bæði af lélegu mataræði og lítilli hreyf- ingu og því þurfa foreldrar að grípa í taumana. Af hverju er góð næring mikilvæg? Þó svo að vart sé hægt að tala um næringarskort hjá ungviðinu þá er staðreynd að börn eru ekki að fá öll þau næringarefni sem þau þarfn- ast. Inntaka steinefna eins og sinks, járns, kalks og magnesíum er í lág- marki. Ástæðan er meðal annars lítil fjölbreytni i mataræðinu og mikil ásókn í sykur gerir það að verkum að hollustan verður minni fyrir vik- ið. Þetta ásamt hreyfingarleysi eyk- ur líkurnar á offitu, beinþynningu, hjartasjúkdómum og sykursýki seinna á lífsleiðinni og eins hefur lélegt mataræði áhrif á einbeitingu sem getur komið niður á námsgetu. Breytingar á mataræðinu Litlar breytingar geta gert gæfu- muninn og hér koma nokkrar ábendingar: Sjáið til þess að barnið borði al- mennilegan morgunmat og forðist að kaupa morgunkorn sem inniheld- ur sykur. Kaupið frekar gróft brauð en fínt og hreina ávaxatasafa frekar en syk- ursull. Útbúið fjölbreytt og næringarríkt nesti og leyfið börnunum að taka þátt í að útbúa það. Ekki kaupa gosdrykki nema fyrir sérstök tilefni. Hvetjið frekar barn- ið til þess að fá sér vatnsglas. í stað- inn fyrir snakk eins og kartöfluflög- ur má útbúa eitthvað hollt og gott sem hægt er að fá sér á milli mála og spillir ekki matarlystinni. T.d. hnet- ur, rúsínur og þurrkaðir ávextir. Unglingarnir Erfiðara getur verið að fylgjast með mataræði unglinganna þar sem þeir eru gjarnan minna inn á heimilinu en yngri börnin og eru farnir að ráða sér meira sjálfir. Stað- reyndin er hins vegar sú að matar- æði unglinganna er eitt hið versta ef miðað er við aðra aldurshópa. Þeir sækja mikið í snakk, gosdrykki og sælgæti ásamt skyndibitamat. Ung- lingar þurfa mjög næringarríka fæðu þar sem mikið er að gerast í líkama þeirra. Eins eru margir sem hætta að hreyfa sig á þessum aldri sem gerir illt verra. Vertu góð fyrirmynd Foreldrar og forráðamenn ættu að huga að mataræði sínu og vera barninu góð fyrirmynd. Það er um að gera að afla sér grunnþekkingar á næringarfræðinni og fræða barn- ið um líkamann og þær breytingar sem eiga sér stað í honum. Útskýrið fyrir börnunum af hverju líkaminn þarfnast góðrar næringar og leggið línurnar á degi hverjum. Hvetjið fjölskylduna til þess að taka upp heilbrigðari lifnaðarhætti. Borðið saman við hvert tækifæri og spjallið um daginn og veginn en rannsóknir benda til þess að almennilegt borðhald þar sem fjöl- skyldan sest niður saman og gefur sér tíma til að matast leiði til betri matarvenja. (H Tileinkað mjólkandi mæðrum Hjól fyriryngstu börnin MÍKLU ÚRVAU Tómstundahúsið, Nethyl 2, sfmi 5870600, www.tomstundahusld.is omsTumm Á Laugavegi 51 er verslunin Fat boy til húsa en þar er að finna skemmtilegar vörur fyrir alla ald- urshópa. Nýverið kom sending af flottum þríhjólum fyrir börn frá 9 mánaða til 3 ára þannig að þau geta farið að spreyta sig ansi snemma. „Hjólin eru miög þægileg og örugg“ segir Dabbý Árnadóttir hjá Fat boy. „Þau eru tvílit og koma í bleiku og gráu og grænu og bláu. Þetta er mjög sniðugt fyrir þau allra yngstu þar sem börnin geta farið að æfa sig í jafnvægislistinni og þetta frí- ar líka foreldrana frá því að þurfa að bogra yfir börnunum á meðan þau æfa sig á hjólinu". Kosturinn við hjólið er sá að það kemur búið ýmsum aukahlutum sem gerir það að verkum að barnið getur farið að nota það mjög snemma. Utan um barnið er öryggisgrind og því er ekki hætta á að það velti úr og eins er grind fyrir fæturna. „Hjólið er auðvitað með stýri líka sem barnið getur tekið um þegar það er komið með þroska til þess og hið sama má segja um pedalana. Á hjólinu er líka handfang þannig að foreldr- arnir geta ýtt barninu áfram“ seg- ir Dabbý. „Þegar barnið er orðið nógu gamalt er svo hægt að taka alla fylgihluti af og þá er þetta bara hefðbundið þríhjól sem barnið get- ur notað að vild“ segir Dabbý Árna- dóttir hjá versluninni Fat boy.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.