blaðið - 01.08.2006, Qupperneq 37
Afmælisbörn dagsins
HERMAN MELVILLE RITHÖFUNDUR, 1819
Menn eru sólgnari í peninga en
menningu og samt veltur nam-
ingjan meira á því hvað við
höfum í höfðinu en í vösunum.
Arthur Schopenhauer
blaöiö ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 2006
kolbrun@bladid.net
Kvikmynd um
Bronte systur
Til stendur að gera kvikmynd
um Bronte systumar frægu og
bróður þeirra Branwell. Kvik-
myndun hefst að öllum líkindum
á Englandi í októbermánuði.
Þegar hefur verið ráðið í aðal-
hlutverkin. Michelle Williams,
sem lék í Brokeback Mountain,
fer með hlutverk Charlotte
Bronte, Nathalie Press leikur
Emily Bronte og hin nýsjálenska
Emily Barclay leikur Önnu. Jon-
athan Rhys Meyers leikur hinn
drykkjusjúka Branwell Bronte
og Ben Chaplin leikur Arthur
Bell Nicholls sem kvæntist
Charlotte níu mánuðum fyrir
dauða hennar.
Systkinin dóu öll á besta aldri,
Branwell lést 31 árs, Emily var
þrítug, Anne tuttugu og níu
ára og Charlotte lést þremur
vikum fyrir þrítugasta og níunda
afmælisdag sinn. Tvær systur
þeirra, María og Elísabet, létust
á ungra aldri í heimavistar-
skóla. Charlotte, Emily og Anne
skrifuðu skáldsögur og þær
þekktustu eru Jane Eyre eftir
Charlotte og Fýkur yfir hæðir
sem var eina skáldsaga Emily.
Deilt um Hem-
ingway ketti
Óvenjuleg deila er risin upp
vegna katta sem eru afkom-
endur gæludýrs sem Ernest
Hemingway átti. Hemingway
bjó um tíma í Kay West í Flórída
og skrifaði þar meðal annars
skáldsögurnar To Have and
Have Not og For Whom the Bell
Tolls. Hús hans er nú orðið að
safni og þangað koma hundr-
uðir þúsunda manna ár hvert
og borga aðgangseyri. Á safn-
inu hafast við tæplega fimmtíu
kettir. Landbúnaðarráðuneyti
Bandaríkjanna vill nú sekta safn-
eigendur fyrir að sýna kettina
án tilskilins leyfis. Eigendurnir
halda því hins vegar fram að
gestir borgi til að sjá húsið
en ekki kettina. Kettirnir heita
flestir í höfuðið á þekktum lista-
mönnum. Þannig munu Pablo
Picasso og Simone de Beauvoir
vera meðal þeirra katta sem
búsetu hafa í húsinu. Leiðsögu-
maður sem leiðir gesti um húsið
segir kettina njóta gríðarlegra
vinsælda meðal gesta. „Þeir
eru einstakir. Hver og einn hefur
sinn eigin perónuleika og þeir
eru einstaklega sjálfstæðir,"
segirhann.
Mynd/Eggert
Kvintett Ragnheiðar Gröndal
Frelsiö í djassinum
vintett Ragnheiðar
Gröndal heldur tón-
leika á Café Rósenberg
í kvöld, þriðjudaginn
í. ágúst kl. 22:00. Á efn-
iskránni eru létt djass- og blúslög
í útsetningum hljómsveitarinnar.
Ragnheiður, sem er tuttugu og
tveggja ára gömul, er í hópi þekkt-
ustu söngkvenna landsins. Segja
má að söngferillinn hafi hafist þeg-
ar hún tók þátt í söngkeppni Samfés
árið 2000 þegar hún var að útskrif-
ast úr grunnskóla. „Eftir það komu
tækifærin smám saman hvert á
fætur öðru,“ segir hún. Þegar hún
er spurð hvernig henni líki að vera
orðin fræg rúmlega tvítug er svarið:
,Það er dálítið kjánalegt að tala um
frægð í litlu landi þar sem xo pró-
sent íbúa er þekktur. Ég er þakklát
fyrir þau tækifæri sem ég hef fengið
og það skemmtilegasta sem ég geri
er að syngja. Stundum fer ég að ef-
ast um sjálfan mig þegar ég er uppi
á sviði en það gerist æ sjaldnar eftir
því sem ég öðlast meiri reynslu. Yfir-
leitt er ég ekki stressuð, ég hef þörf
fyrir að tjá mig.“
Auðveldur söngstíll
Á tónleikunum i kvöld syngur
Ragnheiður djass og blúslög. „Það
er visst frelsi í djassinum því hann
snýst svo mikið um spuna. Djass
er sá söngstíll sem mér finnst auð-
veldastur enda ólst ég upp við hann.
Bróðir minn Haukur fór tólf ára
gamall að hlusta á djass og keypti
handa mér djassplötur þegar ég var
tíu ára með djasssöngkonum eins
og Ella Fitzgerald, Billie Holiday og
Nancy Wilson. Ég drakk tónlistina í
mig, hermdi eftir söngkonunum og
gleymdi mér í þessum heimi. Þetta
er minn bakgrunnur. Ég kvíði ekki
fyrir þessum tónleikum, þetta er
bara gaman, auðvelt og þægilegt.
Svo er tenging inn í þessa gömlu tón-
list með gítarleikaranum okkar sem
er Jón Páll Bjarnason sem er goð-
sögn í djasslífi á íslandi, stórkost-
legur gítarleikari. Hann ólst upp á
þeim tíma þegar djasstónlist var
eins og dægurtónlist. Það er gaman
að flytja þessa tónlist með honum.“
Kvintett á ferð um landið
Jón Páll lék inn á fyrstu sólóplötu
Ragnheiðar sem kom út þegar hún
var sextán ára gömul. Ég hringdi í
hann þegar ég var sextán ára og bað
hann um að spila með mér. Síðan
höfum við verið vinir. Hann er læri-
faðir minn, ég hef lært margt af hon-
um, segir hún.“
Bróðir Ragnheiðar, Haukur, spilar
á saxófón í hljómsveitinni, Morten
Lundsby er bassaleikari og trymbill-
inn Erik Qvick er einnig meðlimur í
hljómsveitinni.
Tónleikarnir eru liður í stuttri
tónleikaferð hljómsveitarinnar.
„Mér finnst mjög gaman að halda
tónleika úti á landi. Við verðum á
Mývatni um helgina og það er uppá-
haldsstaður minn á landinu,“ segir
Ragnheiður. „Þangað hef ég farið
með hljómsveitum síðustu árin og
það er alltaf jafn gaman."
Ragnheiður Gröndal. „Það er
visst frelsi í djassinum því hann
snýst svo mikið um spuna. Djass er
sá söngstill sem mér finnst auðveld-
astur enda ólst ég upp við hann.“
Kvintett Ragnheiðar Gröndal held-
ur tónleika á eftirfarandi stöðum:
1. ágúst Café Rósenberg,
Reykjavík kl. 22:00
3. ágúst Listasumar á Akureyri,
kl. 21:30
4. ágúst Gamli Bærinn,
Hótel Reynhlíð, Mývatn, kl. 22:00
ö.ágúst Gamli Bærínn,
Hótel Reynhlíð, Mývatn, kl. 22:00
6.ágúst Fossatún, Borgarnesi,
kl. 21:00
menningarmolinn
Síðasta dagbókar-
færsla Önnu Frank
Á þessum degi árið 1944 skrifaði
hin hollenska Anna Frank í siðasta
sinn i dagbók sína. Anna fékk dag-
bókina í afmælisgjöf þegar hún
varð þrettán ára og þar skrifaði hún
um líf sitt frá 12. júní 1942 til 1. ág-
úst 1944. Dagbókarfærslur hennar
gefa innsýn inn í huga stúlku sem
býr yfir miklum andlegum þroska,
er viðkvæm og sérlega næm á um-
hverfi sitt.
Fjölskylda önnu fór í felur undan
nasistum í júlímánuði 1942. Eftir tvö
ár í felum var sagt til fjölskyldunnar
sem var handtekin og flutt í útrým-
ingarbúðir. Anna lést í úr taugaveiki
í mars 1945. Faðir hennar, Ottó, var
eini fjölskyldumeðlimurinn sem
lifði helförina af. Hann fann dag-
bók dóttur sinnar og kom henni til
útgáfu. Dagbókin hefur verið þýdd
á fjölmörg tungumál og er ein rnest
lesna bók f heimi. Anna Frank er eitt
frægasta fórnarlamb helfararinnar.