blaðið - 09.08.2006, Síða 2
2IFRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 blaöiö
blaóiö
Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Sími: 510 3700 * www.vbl.is
FRÉTTASÍMI:
510 3799
netfang: frettir@ bladid.net
AUGLÝSINGADEILD:
510 3744
netfang: auglysingar@bladid.net
Lögreglan:
Sextán
Kátir biskupar
á Grænlandi
Sigurvegari stúlkna í skák Ólafur Kolbeinn Guð-
mundsson, forseti Kátu biskupanna, afhendir Jakob
ine Mathiassen, sigurvegara stúikna, bikar
Kátir biskupar héldu 60 manna skákmót í Kummiuut:
■ Sigldu með ísmanninum ■ Blöðrur vinsælar meðal barnanna
■ Draugur hafði áhrif á ferðaáætlunina
líkamsárásir
Lögreglan í Reykjavík fékk til-
kynningar um 16 líkamsárásir
yfir verslunarmannahelgina.
Ein líkamsárásin var nokkuð al-
varleg en þar veittust þrír menn
að einum með þeim afleið-
ingum að hann þurfti að leita
aðhlynningar upp á Borgarspít-
ala. Hann fór heim samdægurs
án teljandi meiðsla.
Tíu árásir áttu sér stað í mið-
bænum en aðrar í heimahúsum
víðsvegar um borgina.
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Skákfélagið Kátir biskupar hélt
tæplega 60 manna skákmót í
smábænum Kuummiut á Græn-
landi í síðustu viku. Kátu biskup-
arnir héldu til Grænlands ásamt
Hróknum en fóru á eigin vegum
til Kuummiut þar sem þeir glöddu
börn með skák og gjöfum. Hrókur-
inn hélt mót á sama tíma í Tasiilaq.
„Við sigldum með ísmanninum
Sigurði Péturssyni til Kummiuut,
sem var ævintýri út af fyrir sig,“
segir Ólafur Kolbeinn Guðmunds-
son, forseti Kátu biskupanna. Með
biskupunum síkátu var Henrik
Danielsen í för ásamt Elísbetu Ól-
afsdóttur. Hann kenndi börnunum
skák ásamt biskupunum.
Kuummiut er 300 manna bær, en
um 80 krakkar komu á skákmótið
til þess að taka þátt. Biskuparnir
voru ekki með skákborð nema fyrir
56 manns og því ljóst að færri kom-
ust að en vildu, enda áttu þeir ekki
von á öðru eins.
„Ég held að ég geti fullyrt að þetta
sé með stærstu barnaskákmótum
sem haldin hafa verið á Austur-
Grænlandi,“ segir Ólafur Kolbeinn
sem er himinlifandi yfir móttök-
unum sem þeir fengu.
Biskuparnirgáfubörnumblöðrur
og nammi og segir Ólafur að hann
hafi sjaldan orðið vitni að jafn-
miklum vinsældum blöðrunnar og
á Grænlandi. Einnig gáfu þeir skák-
klukkur og ljósmyndabækur frá
Hafnarfirði en þaðan er félagið.
„Nokkrir félagar úr Kátu biskup-
unum ætluðu að gista í húsi sem
ísmaðurinn átti, en slepptu því
vegna þess að heimamenn höfðu
snúið öllu á hvolf eftir að hafa reynt
að fanga draug sem dvelur víst þar,“
segir Ölafur hlæjandi um aðbún-
aðinn sem þeir bjuggu ‘við. Hann
segir að ísmaðurinn hafi spurt
heimamenn hvað þeir hygðust gera
ef þeir myndu fanga drauginn og
svörin sem hann fékk voru þau
að draugurinn yrði sendur beint í
fangelsi í Nuuk ef til hans næðist.
Biskuparnir síkátu létu því bát ís-
mannsins nægja í það skiptið og
heimili hans.
Eftir vel lukkaða ferð sneru þeir
heim á mánudag og segir Ólafur
að Kátir biskupar séu langt því frá
hættir því þeir muni snúa aftur að
ári og halda enn veglegri skákhátíð
fyrir börnin.
NÝR VALKOSTIIR Á
transport"§0Í}
toll- og flutningsmiðlun ehf
Fiskislóð 26 • 101 Reykjavík • Sími: 578 4600
www.transport.is • transport@transport.is
Á förnum vegi
Hvernig er að vera
íslendingur
Vigdís Eva Guðmundsdóttir
nemi
„Það er stórkostlegt að vera Islend-
ingur"
Katrín Gunnarsdóttir
nemi
„Ég fíla það og sérstaklega danssýn-
ingamar sem sýndar eru á íslandi."
Ásgerður Gunnarsdóttir
nemi
„Bara fínt, alla vega gott í dag.“
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir
nemi
„Ég er nokkuð sátt.“
undirfataverslun
fyrir allar konur
Einkaumboðsaðili
fyrir Vanity Fairá
íslandi
Frábær verð og
gæði, persónuleg
þjónusta
mm
www.ynja.is
Útsölustaðir:EsarHúsavík • Dalakjör Búðardal
Hamraborg7, Kópavogi, Sími 544 4088
Heiðsklrt - LéttskýjaöSkýjað Alskýjað«á£i‘Rignlng1lítilsháttar^!^RignlngÍí^Súld - Snjðkoma-áÍL'ii. siydda Snjðél Skúr
ilúkjlý
Algarve 27
Amsterdam 19
Barcelona 28
Berlín 23
Chicago 19
Dublin 19
Frankfurt 20
Glasgow 15
Hamborg 20
Helsinki 24
Kaupmannahöfn 22
London 20
Madrid 29
Mallorka 27
Montreal 17
New York 23
Orlando 25
Osló 20
París 21
Stokkhólmur 24
Vín 21
Þórshöfn 12
Veðurhorfur í dag kl: 15.00
Veðursíminn 902 0600
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu íslands
Á morgun