blaðið - 09.08.2006, Blaðsíða 27
blaðið MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006
Sambandsslit enn og aftur
Sjarmatröllið Jude Law og þokkagyðjan Sienna Miller
hafa nú endað ástarsamband sltt enn á ný. Segja sögur að
í þetta sinn sé skilnaðurinn endanlegur. Kunnugir telja að
Miller hafi ekki tekist að komast yfir hiiðarspor Law með
barnfóstrunni. Láí henni hver sem vill.
35
Stórkostlegur Mugison
Dragkeppni Islands 2006 í
Pjóðleikhúskjallaranum í kvöld:
Tár, )ros og
pinnahælar
Innipúkar landsins komu saman
á skemmtistaðnum Nasa við Aust-
urvöll um helgina. Fjölmargar
hljómsveitir komu fram á hátíðinni
en nokkrar þóttu standa uppúr að
mati blaðamanna Blaðsins.
LAUGAROAGUR
Ég hafði aldrei heyrt um Solex
áður en það er stelpnaband frá Hol-
landi sem spilar mjög fjölbreytta
og skemmtilega skringilega tónlist.
Sum lög stelpnanna eru algerar
perlur og að sumu leyti minntu
þær mig á They Might be Giants!
kannski vegna þess að þær voru
bara tvær og voru einkennilegar
en skondnar.
Á eftir þeim spilaði önnur hljóm-
sveit sem ég hafði ekki áður séð
á tónleikum, hin bresk-íslenska
hljómsveit Eberg. Þetta var í þriðja
sinn sem hún spilar hérlendis en
hún hefur haldið tónleika víðs-
vegar um Evrópu við fínar undir-
tektir. Mér fannst hún alveg frá-
bærlega heillandi og ætla á næstu
tónleika með henni hérlendis.
Eftirminnilegasta band kvölds-
ins var Throwing Muses. Hljóm-
sveitin er formlega hætt en mun
halda ferna tónleika í ár. Fjöl-
margir harðir aðdáendur hennar
gerðu sér ferð til landsins til að
sjá hana á Innipúkanum. Geðveik,
kynngimögnuð, áköf, rafmögnuð
tónlist. Eyrun suðuðu það sem
eftir var kvöldsins af hráum gít-
arröddum Kristinar en það sem á
eftir kom var of mjúkt til að lenda
í nema kannski Hjálmar. Alltaf
jafn furðulegt að dansa við íslend-
ingaraggí og mýkt hljómanna full-
komlega sveitaleg eins og mosi og
blóðberg.
SUNNUDAGUR
Mugison steig á svið ásamt
trommu- og bassaleikara á loka-
kvöldi Innipúkans. Þeir Addi og
Guðni komu í stað tölvu og tækja
sem kappinn hefur notað á tón-
leikum síðustu ár. Eins gaman og
það er að horfa á hann aleinan á
sviðinu var stórskemmtileg tilbrey t-
ing að sjá hann með hljómsveit.
Mugison var í miklu stuði og
sýndi að hann er alls ekki háður
tölvunni til að setja á svið frábæra
tónleika. Hann spilaði vel valda
blöndu laga af slðustu breiðskífum
sínum, Lonely Mountain og Mug-
imama Is This Monkeymusic?
og tók sér það bessaleyfi að hæra
frjálslega I útsetningum laganna.
Þá spilaði hann einnig ný og áður
óútgefin lög sem lofuðu gríðarlega
góðu fyrir næstu breiðsklfu hans.
Hljómsveitin Ampop þykir að
mati margra töluvert betri á tón-
leikum en á plasti. Eins fín og síð-
asta plata þeirra, My Delusions, er
þá hljómar sveitin töluvert betur á
tónleikum og nær að skapa nánast
yfirnáttúrlega fallegan hljómvegg
á tónleikum sem gæti brætt hvaða
íshjarta sem er.
Ampop spilaði eldri lög I bland
við ný og skilaði sínu mjög vel - svo
vel að eftir tónleika þeirra hafði ég
fengið ráðlagðan dagskammt af
góðri tónlist og gat ekki hugsað mér
að hlýða á stuðboltana í Baggalúti.
birgitta@bladid.net
atli@bladid.net
„Keppnin er haldin í níunda
skiptið og í ár eru átta keppendur,
fjórar konur og fjórir karlar. Við
munum því krýna bæði kóng og
drottningu sem er nánast eins-
dæmi í heiminum,“ segir Georg
Erlingsson, framkvæmdastjóri
keppninnar. Dragkeppni Islands
2006 verður haldin í Þjóðleikhús-
kjallaranum í kvöld klukkan 22.
„Dómnefndin er ekki af verri
endanum í ár en í henni sitja
þau Páll Óskar Hjálmtýsson,
Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Skjöldur Eyfjörð, María
Pálsdóttir, en formaður
dómnefndar er Björn Gunn-
laugsson,“ segir Georg.
„Keppnin í fyrra
var frábrugðin
öðrum keppnum
okkar því þá
ákváðum við að
stækka keppn-
ina aðeins með
því að leyfa
d r a g - ?'
kóngum
að taka V„
þátt og það '
ætlum við
einnig að gera í ár.
En það vildi ein-
mitt svo skemmti-
lega til að Tínó the
tangolover sigraði í
Sigurvegarinn 2005
Tinó the tangolover vann
keppnina i fyrra og varð
fyrsti dragkóngur islands-
sögunar.
henni og þar með skráði hann sig
á spjöld sögunnar sem fyrsti drag-
kóngur Islands,“ segir Georg.
„Dragkeppni er mjög skemmti-
leg afþreying og eru áhorfendur
og keppendur brosandi, grátandi
og I hláturskrampa yfir þessu
öllu saman. Við ætlum núna í ár
að byrja keppnina á svipaðan hátt
og í fyrra og þá er rétt að nefna
framhaldið á stuttmyndinni
Dragzilla Queen of the
mountain þar sem
ég, Keikó, fór í fullum
skrúða upp á Esjuna á
25 cm hælum og núna fá
áhorfendur að sjá hvort
ég komst niður aftur,“
segir Georg, sem
kallar sig Keikó
þegar hann er í
fullurn skrúða.
„Það má með
sanni segja að
það verði tár,
bros og pinna-
hælar í Þjóð-
leikhúskjallar-
anum í kvöld
og vonumst við
til þess að sjá
sem flesta og ef
þið látið ykkur vanta
fáið þið hælaskó I
hjartastað," segir Ge-
org og hlær.
naism
Alvöru Qallahjól
Full búð af
góðum tilboclum
Tyax Comp B6
Freistingar undirheimanna
og flóknir eiturlyfjahringir
Hinir klassísku sjónvarpsþættir
Miami Vice áttu sitt blómaskeið á
níunda áratugnum og nú hefur hug-
myndin verið löguð til og stílfærð
fyrir 21. öldina undir handleiðslu
hins frábæra leikstjóra Michaels
Mann.
Það eru stórleikararnir Colin
Farrell og Jamie Foxx sem leika
löggurnar Crockett og Tubbs, en
þeir vinna á laun við að uppræta
stóran eiturlyfjahring sem flytur
inn gríðarlegt magn af eiturlyfjum
til Miami. Á meðan Tubbs vinnur
með innflytjendunum í suðurhluta
Florída er Crockett í slagtogi við
eiturlyfjabaróna I Suður-Ameríku.
Eftir því sem þeir vinna lengur
með glæpamönnunum verða skilin
á milli raunveruleikans og lyg-
anna óljósari og ekki bætir úr skák
þegar Crockett verður ástfanginn
af eiginkonu stórtæks vopna- og
eiturlyfjasala. Eins og í þáttunum
sálugu munu flottir bílar, flottir
kroppar og flott föt vera í aðal-
hlutverki á meðan þeir Crockett
og Tubbs reyna að forðast freist-
ingar undirheimanna og uppræta
eiturlyfjahringinn.
Alvöru fjallahjól á
frábæru verð!
30% afsláttur
I
GAP
S: 5200 200 www.
M I*