blaðið - 09.08.2006, Blaðsíða 4
4 I FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 blaöiö
Lögreglumenn í háloftunum:
Þyrla stöðvar stút
Lögreglumenn um borð í TF-SIF,
þyrlu Landhelgisgæslunnar, stöðv-
uðu för ölvaðs ökumanns um helg-
ina er þyrlan var við umferðareftir-
lit á vegum landins.
Þyrlan var notuð við löggæslu-
störf alla helgina og var sjónum
einkum beint að umferð um Vest-
urlandsveg og Suðurlandsveg en
einnig að útihátíðarsvæðum. Um
var að ræða samstarfsverkefni
ríkislögreglustjóra, lögreglunnar
í Reykjavík og Landhelgisgæsl-
unnar. Þótti verkefnið takast afar
vel og voru m.a. höfð afskipti af
þó nokkrum ökumönnum sem
virtu ekki leyfilegan akstur. Þá
var einnig fylgst með umferð utan
vegar og höfðu lögreglumenn um
borð afskipti af fólki á fjórhjólum.
Þrír menn stálu
veski Kona frá
Spáni var rænd og
slegin aðfaranótt
mánudags. Myndin
er hvorki af mönnu-
num né konunni.
Lamin í miðbæ Reykjavíkur:
Spænsk kona rænd
Kona sem er að ferðast um fsland
var rænd aðfaranótt mánudags en
þrír menn hrifsuðu af henni veskið
og slógu hana.
Konan sem er spænsk var á göngu
í miðbæ Reykjavíkur seint um nótt
þegar mennirnir mættu henni og
rændu. Konan kærði atvikið til lög-
reglu sem barst tilkynning stuttu
síðar um dvalarstað mannanna.
Lögreglan greip þá glóðvolga og
voru þeir færðir á lögreglustöðina.
Einn ræningjanna er erlendur og
hugðist fara til Bandaríkjanna en
hann hefur verið úrskurðaður í far-
bann. Málið telst upplýst
Sólskálar
’r?o
- Garðhús
rt>/
Vs/a
íslensk framleiðsla
Islensk hönnun
Sérsmiði
www.solskalar.is
solskalar@soiskaiar.is
Simi; 5M 4300 - Smtötbóö 10 - 210 CUröabæ
LUGG^Rl
ARÐHUSlldhf
Agnar Þorisson Það er
algengt að vara sé ekki til hjá
okkur þegar hún er auglýst.
Húsasmiðjan auglýsti útigrill:
Grillin voru bara
til á Egilsstöðum
■ Viðskiptavinum vísað frá ■ Lögbrot segja Neytendasamtökin
■ Lítið samráð milli markaðssviðs og verslana
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
Á fimmtudegi fyrir verslunarmanna-
helgina voru ferðagasgrill auglýst
í verslunum Húsasmiðjunnar en
viðskiptavinum á höfuðborgarsvæð-
inu var vísað frá samdægurs því að
grillin voru einfaldlega uppseld áður
en auglýsingin birtist.
Skýrar vinnureglur
Jón Viðar Stefánsson, markaðs-
stjóri Húsasmiðjunnar, segir að
vinnureglur fyrirtækisins varðandi
auglýsingar séu skýrar.
„Markaðsdeildin hefur náið sam-
starf við vörustjóra varðandi aug-
lýstar vörur og við reynum ávallt að
gæta þess að nóg sé til af þeim vörum
sem auglýstar eru. Þetta er erfiðast
þegar við auglýsum í blaðinu okkar
þvi prentferlið tekur nokkra daga og
Lög um eftirlit meö óréttmætum
viðskiptaháttum
6. gr. Óheimilt er að veita rangar,
ófullnægjandi eða villandi upplýsing-
ar í auglýsingum eða með öðrum
hætti eða beita öðrum slíkum
viöskiptaaöferðum sem sama marki
eru brenndar, enda sóu upplýsingar
þessar og viðskiptaaöferðir fallnar
til að hafa áhrif á eftirspurn eða
framboð vara, fasteigna, þjónustu
eða annars þess sem haft er á boð-
stólum í atvinnustarfsemi sem lög
þessi taka til.
„Þetta er
bannað
samkvæmt
lögum."
Jóhannes Gunnarsson,
formaður
Neytendasamtakanna.
í millitíðinni getur varan selst upp,“
segir Jón Viðar.
„Ég get ekki staðfest þetta einstaka
mál varðandi ferðagasgrillin en það
er ekki algengt að vara sem auglýst
er sé ekki til í verslununum. Ég viður-
kenni að það hefði mátt skoða þetta
betur og sjá til þess að nóg væri til af
grillunum.”
Til á Egilsstöðum
Þrátt fyrir orð markaðsstjórans
kvarta starfsmenn Húsasmiðjunnar
undan því að þetta gerist reglulega.
„Grillin voru til á Egilsstöðum, þau
ldáruðust bara daginn áður en aug-
lýsingin birtist. Ég leitaði í kerfinu og
þau voru ekki til í búðunum hér á höf-
uðborgarsvæðinu,” segir Pétur Valur
Pétursson, starfsmaður á miðgólfi
Húsasmiðjunnar.
Agnar Þórisson, deildarstjóri árs-
tíðarsvæðis Húsasmiðjunnar, sér um
sölu grillanna. „Ég kannast vel við
málið. Við þurftum að vísa fjölda við-
skiptavina frá því að þau voru ekki til
hjá okkur þegar auglýsingin birtist,”
segir hann.
„Það er algengt að vara sé ekki til
„Ég viöurkenni
að það hefði
mátt skoða
þetta betur."
Jón Viðar Stefánsson,
markaflsstjóri
Húsasmifljunnar.
hjá okkur þegar hún er auglýst og
við þurfum oft að vísa frá vegna þess.
Viðskiptavinirnir eru náttúrlega ekki
ánægðir með þetta en við starfsmenn-
irnir getum lítið gert í þessu. Sam-
ráðið milli markaðsdeildarinnar og
verslananna er bara ekki nógu gott,”
bætir Agnarvið.
Lögbrot
Neytendasamtökin líta þetta mál
alvarlegum augum og telja að hér sé
um lögbrot að ræða. „Það er okkar
skoðun að verslanir Húsasmiðjunnar
séu með þessu að brjóta lög um
óréttmæta viðskiptahætti. Þarna er
verið að veita rangar upplýsingar þvi
varan hefur greinilega ekki verið til
hjá þeim. Þetta er bannað samkvæmt
lögum,” segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna.
„Það er algengt að við fáum ábend-
ingar um þetta og líka að verið sé að
auglýsa vöru á tilboðsverði en fá ein-
tök eru til í verslununum. Þannig er
verið að blekkja viðskiptavini til að
koma en við viljum að settar verði
reglur fyrir lágmarks eintakafjölda
vöru sem auglýst er hverju sinni.”
VARNARSVAEÐI NATO
* ÓVIDKOMANDI
BANNADUR AÐGANGUR
NATO BASE
RfesTRICTED ACCESS
Sjö náttúruverndarsamtök:
Herinn greiði fyrir hreinsun
Landvernd og sex norræn nátt-
úruverndarsamtök hafa beint því til
ríkisstjórnar íslands að sjá til þess
að nauðsynlegar rannsóknir fari
fram og að menguð svæði á varnar-
svæðinu á Keflavíkurflugvelli verði
hreinsuð með fullnægjandi hætti á
kostnað mengunarvalds.
í frétt frá Landvernd kemur fram
að víða um heim hafi herstöðvar
verið starfræktar og valdið umtals-
verðri mengun í jarðvegi og grunn-
vatni. „tsland er engin undantekn-
ing í þeim efnum þar sem fundist
hefur mengun sem rakin hefur
verið til starfsemi Bandarfkjahers
á nokkrum svæðum á landinu. Fjöl-
mörg svæði eru órannsökuð hvað
þennan þátt varðar og er því brýn
þörf á rannsóknum þar sem þær
eru forsenda þess að fullnægjandi
hreinsun svæðanna geti átt sér
stað. Rannsóknir af þessu tagi eru
vandasamar, dýrar og tímafrekar en
engu að síður ber íslenskum stjórn-
völdum að tryggja að þær verði fram-
kvæmdar af óháðum aðilum undir
yfirumsjón fslendinga.“