blaðið - 09.08.2006, Page 8
8 I FRÉTTIR
fj
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 blaöið
Grundartangi:
Eldur var laus
í álverinu
Slökkvilið og lögregla voru
kölluð að álverinu á Grundar-
tanga um hádegisbilið í gær
vegna elds í mölunarsamstæðu.
Talið er að of heitt efni hafi
fyrir slysni verið sett inn í sam-
stæðuna með þeim afleiðingum
að kviknaði í hlífðarplasti. Að
sögn lögreglunnar í Borgarnesi
gekk greiðlega að slökkva eldinn
og var tjón minniháttar.
Marel græðir:
115 milljónir
á hálfu ári
Marel-samstæðan hagnaðist
um 115 milljónir á fyrstu sex
mánuðum þessa árs samkvæmt
6 mánaða uppgjöri fyrirtækisins.
Þetta er töluvert minni
hagnaður en á sama tímabili í
fyrra en þá nam hann tæpum
350 milljónum króna. Skýrist
það fyrst og fremst af því að
hlutbréf í hollenska fyrirtækinu
Stork N V voru færð að markaðs-
virði og kom það fram í tapi í
hlutdeildarfélagi.
Þá jókst sala um 24% milli ára
og nam hún 6,7 milljörðum á
fyrstu sex mánuðum þessa ár.
Hvalfjarðargöng:
391 var á of
miklum hraða
391 ökumaður var tekinn
fyrir hraðakstur í Hvalfjarðar-
göngunum um síðustu helgi.
Umferðarlagabrotin náðust öll
á hraðamyndavélar sem þar eru
staðsettar og eiga ökumenn sekt
yfir höfði sér. Að sögn lögregl-
unnar í Reykjavík var 51 öku-
maður tekinn fyrir hraðakstur
annars staðar í umdæminu
um helgina og fimmtán fyrir
ölvunarakstur.
■rrE!t
- fer: tttá'iL
Tölvugerður nöturleiki Eins og
sést með þvi að bera myndirnar
saman þá er búið ýkja afleiðmgar
sprengjuárásarinnar
Mið-Austurlönd:
Olmert segir tillögur
Líbana „áhugaverðar”
■ Líbönsk stjórnvöld reiöubúin að senda 15 þúsund hermenn til suðurhlutans
■ Afvopnun Hizballah skilyrði fyrir brotthvarfi ísraela
Hugað að vopnum Israelskir hermenn huga aö vopnum sínum á meöan tekist
erá um hvernig eigi aö standa aö vopnahiéi á vettvangi Sameinuöu þjóöanna
Eftir Örn Arnarson
orn@bladid.net
Ehud Olmert, forsætisráðherra ísra-
els, sagði í gær að tillögur líbanskra
stjórnvölda um að senda 15 þúsund
manna herlið til þess að halda uppi
lögum í suðurhluta landsins væru
.áhugaverðar” og
„þess virði að skoða nánar” en ít-
rekaði að sllk útfærsla þyrfti að fara
saman við upprætingu Hizballah á
svæðinu.
Líbönsk stjórnvöld geta ekki sætt
sig við þá ályktun sem Bandaríkja-
menn og Frakkar hafa komið sér
saman um að leggja fyrir öryggisráð
Sameinuðuþjóðanna.Ályktuninfelur
meðal annars í sér að fjölþjóðaher
gæti landamæra ísraels og Líbanons
og kveður jafnframt á um að báðar
stríðandi fylkingar láti af aðgerðum.
Hún gerir hinsvegar ekki þá kröfu að
ísraelski herinn yfirgefi suðurhluta
landins. Stjórnvöld í Beirút eru mót-
fallin skrefum í átt að vopnahléi sem
fela ekki í sér brotthvarf ísraelska
hersins frá landsvæði þeirra. Á mánu-
dag samþykkti stjórnin að senda 15
þúsund manna herlið til landamær-
anna að því gefnu að Israelsmenn
yfirgefi svæðið. Hermennirnir eiga
að framfylgja afvopnun Hizballah á
svæðinu. Er þetta í fyrsta sinn frá ár-
inu 1982 sem líbönsk stjórnvöld reyna
að framfylgja fullveldi sínu í þessum
hluta landsins en vígamenn hafa
ráðið lögum og lofum á svæðinu. Það
þykir auka á trúverðugleika ákvörð-
unarinnar að fulltrúar Hizballah í
ríkisstjórn landsins greiddu atkvæði
með henni. Fulltrúar helstu ríkja Ar-
ababandalagsins voru í New York í
gær og reyndu að afla stuðnings við
því að ályktun Bandaríkjamanna og
Frakka yrði breytt þannig að kveðið
yrði á um brotthvarf ísraelska hers-
ins frá suðurhluta Líbanons.
Faraekki fyrren að
fjölþjóðalið kemur
Þrátt fyrir að Olmert hafi lýst því
yfir í gær að útfærsla líbanskra stjórn-
valda væri áhugaverð sagði
hann að stjórnvöld þyrftu
að skoða hana nánar og fara
yfir hversu raunhæf
hún er og hvenær
væri hægt að hrinda
henni í framkvæmd.
Forsætisráðherrann
sagði að því fyrr sem
ísraelskir hermenn
gætu yfirgefið Líbanon því betra,
ekki síst efþeir ná markmiðum stjórn-
valda um að uppræta vígstöðvar
skæruliða Hizballah. Hann sagði enn-
fremur að ísraelsmenn myndu ekki
kalla herlið sitt yfir landamærin fyrr
en fjölþjóðlegt lið væri komið á stað-
inn til þess að styðja við bakið á her-
mönnum líbanskra stjórnvalda.