blaðið - 09.08.2006, Síða 19
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2006
27
Sippaðu.
Að sippa í tiu mínútur brennir ósköpunum öllum af hitaeiningum. Svo er mjög
einfalt mál að koma sippubandinu fyrir ofan i tösku. IVIeð pví geturðu stundað
hreyfingu hvar sem er og hvenær sem er.
Ekki gott að
vigta sig oft
Flest erum við (eða eigum ein-
hvern nákominn í sömu stöðu) að
vinna í því að missa nokkur kíló.
Bestu leiðirnar að því göfuga
markmiði eru eins og allir vita;
hreyfing, fituskert mataræði og
mikil vatnsdrykkja.
Árangurinn af þessu brölti mæl-
ist svo einna best á því að fötin
sem voru hætt að passa eru aftur
orðin eins og sniðin. En flestir
sem eru að taka á þessum
málum A eru líka
----duglegir
að stíga
á vigt-
i n a .
Það er gott og blessað, en það má
samt ekki ofgera því. Best er að
vigta sig alltaf á sama tíma,
þ.e. á morgn-
ana eftir
að búið er
að fara á
klósettið.
Að sama
skapi er
heppilegt
aðlátaalltaf
nokkra daga líða á milli þess sem
maður vigtar sig. Þannig er þetta
marktækast.
Til að komast að því hvort þú
sért í kjörþyngd er tilvalið að fara
á Netið og heimsækja vefsíðu
Manneldisráðs www.lydheilsu-
stod.is. Þar er að finna mikinn
og gagnlegan fróðleik um allt á
nilli himins og jarðar, en einnig
forrit sem sker úr um hvort
holdafar þitt sé enn á góðu róli,
eða komið undir eða yfir
strikið.
Vigtaðu þig á morgnana en ekki oftar en tvisvar í viku.
Sjö ráð til að koma í veg fyrir að augun þreytist
Augun mín og augun þín
1 dag vinna fleiri fyrir framan
tölvur en í fiski. Þetta kallar fram
annarskonar heilsufarsvanda en
sinaskeiðabólgur og þreytta fætur.
Til dæmis getur það verið vont fyrir
augun að horfa á skjáinn allan dag-
inn. Eftirfarandi eru hollráð til að
halda augunum heilbrigðum við
slíkar aðstæður:
1. Hafðu tölvuskjáinn beint fyrir
framan þig og rétt neðan við beina
sjónlínu.
2. Ekki láta skjáinn vísa að glugga
eða í átt að mikilli birtu.
3. Reyndu að forðast að vinna
fyrir framan tölvu í myrkri. Það
ætti alltaf að vera kveikt á lampa,
en ljósið frá honum má ekki vera
bjartara en það sem kemur af
tölvuskjánum.
4. Notaðu skjá sem kemur í veg
fyrir endurkast og gljáa.
5. Hafðu lampa með lampaskermi
á borðinu til að nota við lestur
pappíra, en sjáðu til þess að ljósið
frá honum endurvarpist ekki á
skjáinn.
6. Stækkaðu letur til að koma í
veg fyrir að augun þreytist við
lesturinn. Svartur texti á hvítum
grunni er alltaf bestur aflestrar.
Til að stækka letur er hægt að
halda niðri Ctrl takkanum og
renna svo skífunni á miðju músar-
innar upp eða niður (á við um PC
tölvur).
7. Sumum gæti hentað að nota
mildari gleraugu til að lesa af
tölvuskjá því almenn lestrargler-
augu gætu verið of sterk. Augn-
læknar ættu svo að geta gefið
upplýsingar um hvaða gleraugu er
heppilegast að nota þegar fólk þarf
að sitja langtímum saman fyrir
RÝMINGARSALA
Verslunin Völusteinn
Hættir
2. til 15.ágúst að
Bæjarlind 14-16
Mikið affallegri
föndurvöru á
frábærum tilboðum
VOLUSTEINN
fyrlr flm o fingur
BÆJARLIND14-16 / Sími 588 9505 / www.volusteinn.is