blaðið - 09.08.2006, Síða 22
30
MIÐVIKUDAGUR 9. ÁGÚST 2006 blaðiö
íþróttir
ithrottir@bladid.net
„Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham, var maðurinn á bak við kaup félagsins
á Michael Carrick. Það var svo sannarlega ekki þessi franski stjóri, Jacques Sant-
ini. Hann hefði ekki getað þekkt í sundur Michael Carrick og Michael Jackson.“
- Harry Redknapp um kaupTottenham á Michael Carrick frá West Ham fyrir tveimur árum.
Spurs seldi Carrick svo til Manchester United á dögunum fyrir 18,6 milljónir punda
Skeytin inn
Danski landsliðsmaðurinn
Thomas Gravesen er að
öllum líkindum á leið frá
Real Madrid. Umboðsmaður
hans, John Sivbæk, segir að lið frá
Þýskalandi, Ítalíu og Hollandi hafi
sýnt honum áhuga en helst vilji
Gravesen leika á Englandi. Sivbæk
sagðist þó ekki eiga von á að málin
myndu skýrast fyrr en að lokinni
æfingaferð Real Madrid til
Banda-
ríkj-
anna.
Gravesen
var keyptur
til Madridar-
liðsins frá Ever-
ton í janúar 2005 fyrir
2,5 milljónir punda.
Hann hefur ekki náð
að vinna sér fast sæti
í byrjunarliðinu og lék
aðeins sjö leiki með
liðinu í fyrra.
Villarreal er reiðubúið að selja
brasilíska miðjumanninn
Marcos Senna til Manchester
United ef félagið fær gott tilboð í
kappann. Alex Ferguson, stjóri
United, hefur lýst því yfir að hann
hafi áhuga á að fá Senna til liðsins.
„Við höfum áhuga á Senna en
við höfum líka áhuga á —
fleiri leikmönnum. Við
viljum styrkja miðjuna
hjá okkur og Senna ætti
að reynast okkur góður
liðstyrkur," sagði
Ferguson. Villarre-
al er talið vilja
fá um fjórar
milljónir punda
fyrir Senna, sem
er þrítugur að A
aldri.
Stephen Carr, varnarmaður
Newcastle, ætlar að halda
áfram að leika með írska
landsliðinu. Carr ákvað að hætta
að leika með írum eftir að þeim
mistókst að tryggja sér sæti á HM
í sumar, en segist hafa
snúist hugur og að
nú verði ekki aft-
ur snúið. Steve
~ Staunton, lands-
liðsþjálfari íra,
var hæstánægð-
ur með
ákvörðun
kappans
og sagði
hann
færa
mikla
reynslu
inn í
liðið.
Ribery vill burt
■ Lyon, Arsenal og Real Madrid líklegustu
Bruno Heiderscheid, umboðs-
maður franska landsliðsmannsins
Franck Ribery, segir að Lyon, Ar-
senal og Real Madrid séu þau þrjú
félög sem berjist harðast um að fá
kantmanninn í sínar raðir. Ribery
vakti athygli stórliða Evrópu eftir
frábæra frammistöðu á HM í sum-
ar og hefur beðið um að verða seld-
ur frá Marseille. Fjölmiðlar á Bret-
landseyjum greindu frá því í gær
að Arsenal væri að ná samkomulagi
við franska liðið um að greiða 13,5
milljónir punda fyrir kappann en
Arsene Wenger, stjóri Skyttanna, vís-
aði þeim fullyrðingum hins vegar til
föðurhúsanna.
Stuðningsmenn Marseille eru
æfareiðir út í Ribery fyrir að vilja
fara frá félaginu og á mánudag réð-
ust þeir að bifreið hans þegar hann
ók frá æfingasvæði liðsins.
Heiderscheid sagði það hafa ver-
ið kornið sem fyllti mælinn og nú
séu engar líkur á að Ribery geti
hugsað sér að vera áfram hjá Mar-
seille. „Franck líður mjög illa. Eftir
að stuðningsmennirnir móðguðu
hann var hann við það að bresta
í grát. Ég veit að hann elskar enn-
þá Marseille en hann þarf að fara
til liðs þar sem hann getur haldið
áfram að bæta sig,“ sagði Heider-
scheid.
13. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KARLA
miö. 09. ágúst kl. 19:15 KR - Keflavík
fim. 10. ágúst kl. 19:15 ÍA-Valur
fim. 10. ágúst kl. 19:15 FH - Fylkir
fim. 10. ágúst kl. 19:15 Grindavík - Breiðablik
fim. 10. ágúst kl. 19:15 Vikingur - IBV
12. UMFERÐ | LANDSBANKADEILD KVENNA
fös. 11.ágúst kl. 19:15 Valur-KR
fös. 11.ágúst kl. 19:15 Stjarnan - Fylkir
fös. H.ágúst kl. 19:15 FH - Keflavík
Tryggöu þér miöa á betra verði
á landsbankadeildin.is eöa ksi.is
Landsbankinn
Banki allra landsmanna í 120 ár
MTKLW ÚRVALf
Mourinho segist gjalda fyrir HM:
Leikmenn
þungir og hægir
Jose Mourinho, stjóri
Chelsea, segir að leikmenn
sínir eigi langt í land með
að ná fyrra formi sökum
þátttöku þeirra á heims-
meistaramótinu í sumar.
Chelsea er nýkomið frá
Bandaríkjunum, hvar liðið
var í æfingaferð, en Mourinho seg-
ir að liðið þurfi að leika sjö leiki í
viðbót áður en það verður að fullu
reiðubúið fyrir titilvörnina.
„Eftir fyrsta æfingaleikinn okkar
er auðvelt að sjá að við eigum enn
langt í land. Við gjöldum fyrir að svo
margir leikmanna okkar tóku þátt í
HM,“ sagði Mourinho, en Chelsea
tapaði á laugardaginn fyrir banda-
Tómstundahúsiö,
Nethyl 2, sími 5870600,
www.tomstundahusid.is
ríska liðinu MLS All Stars
með einu marki gegn
engu. „Leikmenn mínir
voru þungir, hægir og
ekki beittir. Við þurfum
augljós- —
lega
a
leggja
m j ö g
hartað
okkur
n ú n a
ogleika
fleiri æf- ' ^
ingaleiki,"
sagði Mo-
u r i n h o
ennfremur.
Jose Mourinho
Er margt til lista lagt.