blaðið - 29.08.2006, Qupperneq 4
4IFRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 blaðið
Lestarmaðurinn:
Danska lögg-
an leitar enn
Maðurinn sem hrinti Islend-
ingnum af lestarpallinum í
Kaupmannahöfn á laugardag-
inn er ófundinn samkvæmt
lögreglunni í Kaupmannahöfn.
Maðurinn hrinti íslendinginum
sem er 26 ára gamall fram af
lestarpallinum, vegna deilna
um sígarettu sem sá íslenski
hafði. Sauma þurfti átta spor í
nef íslendingsins en hann var
kominn af spítala á sunnudag.
Falleg - sterk - náttúruleg
Suðurlandsbraut 10
Sími 533 5800
www.simnet.is/strond
VSTRÖND
Fangavörður með fíkniefni á Litla-Hrauni:
Smyglaði eitrinu í smokki
■ Ætlaði í lögfræði í haust ■ Stórtækur fíkniefnasmyglari grunaður um aðild
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Fangavörður sem var handtekinn
á laugardaginn smyglaði fíkniefn-
unum inn á Litla-Hraun innvortis.
Samkvæmt Erlendi Baldurssyni var
handtakan afrakstur rannsóknar
sem hefur verið í gangi nokkurn
tíma innan fangelsismúranna.
Grunur kviknaði um að mikil
fjölgun fíkniefna innan fangelsis-
ins væri ekki af eðlilegum toga og í
ljós kom að fangavörðurinn sem er
tvítugur að aldri átti hlut að máli.
Einnig er búið að úrskurða tvo fanga
í sex daga gæsluvarðhald vegna
málsins. Annar þeirra
hafa verið dæmdur fyrir stuttu vegna
stórfellds fíkniefnamisferlis þar sem
hann reyndi að smygla nokkrum
kílóum af amfetamíni og talsverðu
magni af kókaíni til landsins.
Fangavörðurinn var handtekinn
á laugardaginn þegar hann kom til
vinnu. Samkvæmt heimildum hafði
verið uppi hugmynd að egna hann
í gildru og koma upp um fíkniefna-
brot hans með þeim hætti. Það var
ekki gert, heldur var hann hand-
tekinn þegar hann kom í vinnuna.
Hann var færður á spítala þar
sem hann var gegnumlýstur
og kom þá í ljós að maður-
inn hafði fíkniefni inn-
vortis. Hann hafði gleypt
smokka og komið fíkniefn-
unum þannig inn. Mað-
urinn er með
hreina sakaskrá og er sumarafleys-
ingamaður. Hann kann þó að þurfa
dvelja lengur við en hann uppruna-
lega ætlaði sér.
Ekki er leitað sérstaklega á fanga-
vörðum né öðrum fagaðilum sem
að fangelsum koma, því er ekki ljóst
af hverju hann valdi þessa leið til
þess að smygla fíkniefnunum inn í
fangelsið.
Laugardagurinn mun hafa
verið síðasti dagurinn hans
í vinnunni en hann var
við það að hefja nám í
Háskóla íslands en
þar hugðist hann
nema lögfræði.
„Það hefur
verið mjög mikil
aukning af fíkni-
efnum í sumar,“
segirErlendurBald-
ursson, afbrota-
fræðingur hjá
Fangelsismála-
stofnun.
Hannsegiraðmennhafisettákveðna
rannsókn í gang til þess að athuga
hvernig á þessari aukningu stæði. I
ljós kom að þeirra eigin maður stóð
fyrir þessu. Fyrir nokkrum vikum
fundust 200 grömm af hassi í klefa
fanga. Nokkur dæmi hafa komið
upp þar sem um verulegt magn af
fíkniefnum var að ræða.
„Þetta er mjög alvarlegt brot í
starfi,“ segir Erlendur Baldursson
en pilturinn braut af sér í opinberu
starfi og varð þar að auki uppvís að
fíkniefnamisferli. Annað eins hefur
aldrei komið upp í íslenskum fang-
elsum að sögn Erlends.
Hann segir að möguleikanum sé
haldið opnum að fangavörðurinn
hafi á einhvern hátt verið neyddur
til að gera þetta eða plataður en
málið er á viðkvæmu stigi eins og
er. Rannsóknarlögregla Selfoss
verst allra frétta. Þeir sem til varðar-
ins þekkja segjast allir steinhissa á
hegðun hans.
Pilturinn er í gæsluvarðhaldi á
lögreglustöðinni á Selfossi.
iiiiiiííi
IKI
KKKI
Litla-Hraun Annar fanginn
sem er í gæsluvarðhaldi
hefur áður orðið uppvis að
stórfelldu fikniefnamisferli
Norðurlandameistari í málaraiðn
Andri Þórer fyrsti Islendingurinn
sem hlýtur titilinn
Mynd/Frikkl
SJnnÁaupasíjórar
m öiun eryia aí/iuqio
Bjóðum upp á kjöt,
unnar kjötvörur
og álegg.
Persónuleg þjónusta,
gæði á góðu verði
Fyrsti íslenski Norðurlandameistarinn í málaraiðn:
Bestur málara á Norðurlöndum
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Andri Þór Arinbjörnsson, 24 ára
Reykvíkingur, bar sigur úr býtum
á Norðurlandameistaramótinu í
málaraiðn sem fram fór í húsnæði
Danska málarameistarafélagsins í
Kaupmannahöfn um síðustu helgi.
„Ég var nokkuð viss um að ég myndi
vinna keppnina þegar ég var búinn
að klára verkin,“ segir Andri Þór og
hlær.
Norrænt þing málarameistara var
haldið um helgina og var keppni
málarasveina meðal dagskrárliða.
„Keppnin var nú haldin í níunda
skipti, en hún hefur verið haldin á
tveggja ára fresti frá árinu 1990. Mál-
arameistarafélög norrænu ríkjanna
sendu einn keppanda hvert til leiks.
Við vorum því fimm málarar að berj-
ast um titilinn, en þetta er í fyrsta
sinn sem íslendingur sigrar,“ segir
Andri Þór.
Að sögn Andra Þórs var mikið
lagt í keppnina og hún tekin alvar-
lega. „Aðrir keppendur höfðu unnið
forkeppnir í heimalöndum sínum, en
sjálfur var ég valinn þar sem ég hafði
hlotið hæstu einkunn á sveinsprófi
yfir tveggja ára tímabil,“ segir Andri
Þór sem lauk sveinsprófi í fyrra.
Keppnin stóð yfir i fimm daga og
fékk hver keppandi sinn bás og leið-
beiningar um hvað ætti að gera. „Við
vorum með þrjá fleti sem átti að mála.
Einn hluti var frjáls, en annað sett í
ákveðnar skorður þar sem átti meðal
annars að spartla veggi og lakka
hurð,“ segir Andri sem hefur unnið
við málun hjá fyrirtæki föður síns.
Hann stundar nú nám í frumgreina-
deild Háskólans í Reykjavík og setur
stefnuna á nám i verkfræði. „Þessi
sigur á eftir að nýtast mér vel í fram-
tíðinni og þetta er mikill heiður.“
Hermann Óli Finnsson, formaður
Málarameistarafélagsins, segir þetta
vera frábæran árangur hjá Andra
Þór. „Við erum afskaplega stoltir
af okkar manni. Hann vann þessa
keppni með yfirburðum. Ég heyrði
það þegar verið var að ræða um bása
keppenda að hans bar af og áður en
tilkynnt var um sigurvegara var al-
talað að þetta væri besti básinn," segir
Hermann Óli sem skipaði dómnefnd
ásamt öðrum formönnum norrænu
málarameistarafélaganna.
Að sögn Hermanns var bás
Andra Þórs sá besti. „Þetta var mjög
skemmtileg og falleg útfærsla á
básnum hjá honum. Hann stóð sig al-
veg stórkostlega, enda erum við alveg
að rifna af monti.“