blaðið - 29.08.2006, Blaðsíða 12
12 I FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST 2006 blaftið
Olíusamráð:
Allir óskuðu
eftir fresti
Skaðabótamál Reykjavíkur-
borgar^ hendur olíufélögunum
þremur, Esso, Skeljungi og Olís,
vegna ólögmæts verðsamráðs
þeirra var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær. Að sögn
Vilhjálms H. Vilhjálmssonar,
lögmanns Reykjavíkurborgar,
voru allir aðilar sammála um að
óska eftir stuttum fresti til frek-
ari gagnaöflunar en málið verður
næst tekið fyrir 18. september
næstkomandi. „Þá fer það vænt-
anlega sína leið í áframhaldandi
meðferð og málflutning," segir
Vilhjálmur.
Reykjavíkurborg stefndi olíufé-
lögunum þremur síðastliðið vor
vegna ólögmæts verðsamráðs í
tengslum við útboð vegna elds-
neytiskaupa Strætisvagna Reykja-
víkur og Vélamiðstöðvar Reykja-
víkur. Krefst borgin 160 milljóna
i skaðabætur og annað eins í
dráttarvexti. Olíufélögin hafa öll
mótmælt bótakröfum borgar-
innar. Vilhjálmur er bjartsýnn
á að hægt verði að ljúka málinu
fljótt eftir að aðalmeðferð hefst.
„Ég er bjartsýnn á að dómur falli í
málinu fyrir áramót.“
Viöskipti:
Ó.Johnson
og sælkerar
Heildsölufyrirtækið Ó. John-
son og Kaaber ehf. hefur samein-
ast innflutningsfyrirtækinu Sæl-
keradreifingunni ehf. en nýlega
var gengið frá samningum þar
að lútandi.
Gert er ráð fyrir því að báðar
rekstrareiningar starfi áfram
óbreyttar en að skrifstofuhald
verði sameinað. Engar starfs-
mannabreytingar verða þó
gerðar. Þá mun Bjarni Óskars-
son, fyrrum eigandi Sælkera-
dreifingar, taka að sér umsjón
með sérstökum þróunarverk-
efnum innan hins sameinaða
fyrirtækis.
Hvað verður um gögnin? Bandaríkjaher hefur safnað
upplýsingum um starfsmenn sína um árautga skeið.
íslenskir starfsmenn hafa barist fyrir því að fá skjölin
um sig eða að þeim verði eytt.
Varnarliðið hefur safnað persónuupplýsingum um íslenska starfsmenn:
Ættu að eyða skjölunum
■ Upplýsingar um starfsfólkið frá A til Ö, segir starfsmaður varnarliðsins
■ Bandaríska ríkið á gögnin ■ Persónuvernd hefur ekki lögsögu
Eftir Trausta Hafsteinsson
t rausti@bladid.net
„Við viljum vita hvað á að gera við
þessar upplýsingar því þær mega
ekki fara á neitt flakk. Herinn segist
eiga þessar skýrslur en nú er verið
að loka sjoppunni og því spurning
hvað verður gert við þessi gögn,”
segir Kjartan Sigtryggsson, starfs-
maður Varnarliðsins.
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
hefur safnað persónuupplýsingum
um íslenska starfsmenn þess í marga
áratugi. Þar koma meðal annars fram
upplýsingar um heilsufar, fjölskyldu-
hagi, ástundun, námskeiðssókn og
starfsmat. Þessar upplýsingar eru
geymdar hjá starfsmannahaldi varn-
arliðsins og þar hefur starfsmönnum
verið neitað um að fá þessi gögn af-
hent eftir að ljóst var að herinn væri
að hverfa úr landi.
„Ef flytja á persónuupplýsingar
milli íslenskra fyrirtækja verður
viðkomandi aðili að veita samþykki
fyrir því. Ef herinn ætlar að flytja
einhver gögn til Bandaríkjanna þá
tel ég mig þurfa að veita samþykki
fyrir því,” segir Kjartan.
„Ég velti því fyrir mér hvað verður
um þessar upplýsingar. Munu þær
Starfsfólk varn-
arliðsins heyrir
undir banda-
ríska lögsögu..
Sígrún Jóhannesdóttir
forstjóri
Persónuverndar
lenda i einhverjum gagnbanka úti
sem hægt er að fletta upp í þegar sótt
er um dvalarleyfi i Bandaríkjunum
til dæmis? f þessum gögnum eru allar
upplýsingar um þig, þetta eru gríðar-
miklir staflar af möppum. Þarna er í
raun allt um starfsfólkið frá A til Ö.“
„Afhending persónuupplýsinga
Varnarliðsins er í góðum farvegi
hjá utanríkisráðuneytinu og það
mál verður leyst,” segir Ragnheiður
Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður
forsætisráðherra.
Höfum ekki lögsögu
Sigrún Jóhannesdóttir, forstjóri
Persónuverndar, telur við fýrstu
sýn að þarna reyni á lög um varnar-
samninginn og af honum megi ráða
að íslensk stjórnvöld hafi ekki lög-
sögu yfir varnarliðinu.
„Við fyrstu sýn þá sýnist mér þarna
reyna á varnarsamninginn sem lög-
Þetta eru engar
upplýsingar
í formi leyni-
legrar söfnunar.
Friðþór Eydal
upplýsingafulltrúi
varnarliðsins
festur var 1951 og af honum má ráða
að við höfum ekki lögsögu yfir varn-
arliðinu sem ábyrgðaraðila þessara
gagna. Sá sem safnar persónuupplýs-
ingum telst ábyrgðaraðili og í þessu
tilviki lýtur ábyrgðaráðilinn ekki lög-
sögu íslenskra stjórnvalda,“ segir Sig-
rún. „Varnarliðið heyrir undir banda-
ríska lögsögu. Ríkisborgararéttur
starfsfólksins skiptir ekki máli hér.
Varnarliðið fellur undir svokallaðan
úrlendisrétt sem gerir herinn óháðan
því landi sem hann er staðsettur í.
Persónulega er það mín skoðun að at-
huga þurfi hvort eðlilegast sé að eyða
þessum gögnum í stað þess að koma
þeim til íslenskra aðila.“
Engar viðkvæmar upplýsingar
Friðþór Eydai, upplýsingafulltrúi
varnarliðsins, segir þessar upplýs-
ingar allar vera starfstengdar og
engar viðkvæmar persónuupplýs-
ingar þarna á ferðinni. „Þetta eru
engar upplýsingar í formi leynilegrar
söfnunar. Þetta er skráning um starfs-
ferilviðkomandi.launakjör.starfsmat
og heilsufarsupplýsingar um þá sem
gengist hafa undir heilbrigðisskoðun.
Þetta eru gögn sem varnarliðið á og
starfsmenn hafa síðan fengið sín ein-
tök af. Hér er um að ræða eintök varn-
arliðsins,” segir Friðþór.
Varnarliðið á í viðræðum við
íslenska ríkið um varðveislu gagn-
anna, að undanskildum heilsufars-
upplýsingum sem varðveittar verða
hjá hernum um nokkurt skeið þar
til þeim á endanum verður ey tt.
„Um þetta gilda reglur hjá banda-
ríska ríkinu, eins og hjá öðrum at-
vinnurekendum, sem segja til um
að gögnin þurfi að varðveita í ákveð-
inn tíma, sérstaklega heilsufarsupp-
lýsingar. Þetta eru allt saman upplýs-
ingar sem starfsfólkið hefur sjálft
fengið eintök af. Allir starfsmenn
geta fengið afrit af þessum gögnum
hvenær sem er en það er ekki eðlileg
krafa að fá frumgögnin afhent.”
101 Hárhönmin
Okkur vantar hasfileikaríkt
fólk til starfa.
Meistara og nemar
koma til greina.
Upplýsingar gefur Þórhildur
í áma 551-3130 eða 847-7690
Stöðumælaþjófur:
Búið að skipta út öllum lásum
Starfsmenn Bílastæðasjóðs hafa
lokið við að skipta út lásum á
öllum stöðumælum borgarinnar
og var síðustu 40 lásunum komið
fyrir í lok júlímánaðar.
Eins og greint var frá í Blaðinu
í síðasta mánuði glataðist einn
af höfuðlyklum Bílastæðasjóðs
að stöðumælum borgarinnar í
byrjun sumars. Óprúttinn vegfar-
andi fann lykilinn og notaði hann
til að tæma um 35 mæla og stinga
peningunum í eigin vasa. í kjöl-
farið brá Bílastæðasjóður á það ráð
að skipta út lásum á rúmlega 600
stöðumælum.
Að sögn Stefáns Haraldssonar,
framkvæmdastjóra Bílastæðasjóðs,
voru nýir lásar pantaðir að utan
um leið og þjófnaðurinn uppgötv-
aðist. í millitíðinni var
sett af stað nýtt tæm-
ingarkerfi til að
tryggja að eftir
litlu væri að
slægjast fyrir
stöðumæla-
þjófinn. „Við
byrjuðum að
tæma mæl-
ana tvisvar
á dag til að
tryggja að það
væri alltaf lítið í
þeim.“
Samkvæmt Stefáni
kostaði hver lás um
800 krónur og nemur
því heildarkostnaður
Bílastæðasjóðs um
hálfri milljón. Stefán
segir að búið sé að
gera ráðstafanir
til að útiloka
að svipað geti
gerst aftur.
„Þessar læs-
ingareruend-
urnýjaðar
reglulega
vegna slits.
Þannig að nú
eru þær allar
En auð-
ru þetta
leiðindamistök og
það er búið að gera
ráðstafanir til þess
að koma í veg fyrir að
svona gerist aftur.“